Austurglugginn


Austurglugginn - 08.03.2007, Side 7

Austurglugginn - 08.03.2007, Side 7
Fimmtudagur 8. mars AUSTUR • GLUGGINN 7 Intrum opnar á Reyðarfirði Léttar veitingar voru á borðum og strengjasveit lék fyrir gesti þegar Intrum opnaði nýja skrifstofu í„Litla Molanum" á Reyð- arfirði í siðustu viku. Mynd: SigAð Fangelsi fyrir ölvunarakstur Ríflega þrítugur karlmaður var í Héraðsdómi Austurlands dæmdur í 30 daga fangelsi og sviptingu ökuréttinda ævilangt fyrir ölvunar- og ofsaakstur. í febrúar í fyrra var maðurinn tekinn ölvaður undir stýri í starfsmannaþorpi Bechtel í Reyðarfirði. I janúar var hann svo stöðvaður á Reykjanesbraut á 139 km/klst hraða þar sem leyfdegur hámarkshraði er 70 km/klst. Það voru starfsmenn á svæðinu sem stöðvuðu ferðir mannsins eftir að grunur vaknaði hjá þeim um að maðurinn væri undir áfengis. Hann sagðist ekki hafa ekið undir áhrif- um en í ljósi framburði fjölda vitna þótti dómnum framburður manns- ins ekki trúlegur. Árið 2004 var maðurinn tvívegis tekinn ölvaður við akstur. Þar sem hann braut nú af sér í þriðja sinn svipti dómurinn hann ökuleyfí ævilangt. Hraðaakst- ursbrotið játaði maðurinn. Þá var maðurinn tekinn ölvaður undir stýri í nóvember síðastliðnum. Auk sviptingar ökuréttinda og fangelsisvistar var maðurinn dæmdur til að greiða 200 þúsund krónur í sekt og sakarkostnað, tæpar 280 þúsund krónur. GG Innheimtufyrirtækið Intrum opnaði nýja skrifstofu í „Litla Molanum”, Búðareyri 1 á Reyðarfirði síðasta föstudag. Þann dag flutti fyrirtækið einnig í nýtt húsnæði á Egilsstöðum að Kaupvangi 3a, sama húsnæði og tískuvöruverslunin Centrum er í. í samstarfi við Intrum á báðum stöðum eru fasteignasalan Domus, Lögheimtan, Pacta og leigumiðl- unin Rentus. Að sögn Sigurðar Jónssonar forstjóra Intrum á Is- landi stóð til að opna skrifstofuna á Reyðarfírði fyrr en gert var en það gekk ekki upp vegna þess hve erfitt var að fá hentugt húsnæði undir starfsemina „sem hefði þótt saga til næsta bæjar fyrir ekki löngu síðan” sagði Sigurður. SigAð „/rá sjávdrstðunní Síldarvinnslan tók í seinustu viku við Súlunni EA. Ár er síðan gengið var frá viðskiptunum en þar var tekið fram að skipið yrði afhent að lokinni vetrarloðnuvertíð 2007. Fyrsta skipið með þessu nafni var smíðað í Gautavík í Noregi árið 1902 fyrir Konráð Hjálmarsson í Mjóafírði. Það varþó ekki lengi þar heldur varþað selttil útgerðar Ottós Tuliníusar á Akureyri. Síðan hefur skipið verið endurgert og skipt um eigendur nokkrum sinnum. í Neskaupstað landaði Hákon EA 600 tonnum af frosinni loðnu á laugardagskvöldið, en skipið kom einnig með loðnu til hrognatöku. ísfísktogarinn Bjartur landaði þar einnig. Talsverð umferð var um Eskifjarð- arhöfn í seinustu viku. Jón Kjart- ansson landaði þar 1.994 tonnum af loðnu og Aðalsteinn Jónsson 1.077 tonnum af loðnu til bræðslu og hrognatöku og um 500 tonnum af frosinni loðnu. Skipið kom svo með tæplega 1.3800 tonn af loðnu að landi í byrjun vikunnar, en það hélt síðan til kolmunnaveiða. Fyrir helgi landaði Hólmatindur ríflega 70 tonnum af bolfíski til vinnslu og útflutnings. Björgúlfur EA land- aði þar á mánudag, Björgvin EA í fyrradag og Harðbakur í gær. Harð- bakur var einn þriggja ísfísktogara sem lönduðu þar í seinustu viku, hinir voru Brettingur og Björgvin. Togarar Loðnuvinnslunnar hafa Sildarvinnslan tók við Súlunni í seinustu viku. Mynd: Guðmundur Jónsson Á Vöpnafirði hafa togarar HB Granda verið að landa loðnu, Faxi kom með 1.173 tonn, Ingunn AK 1.714 tonn og Víkingur AK 1.116 tonn. landað annars staðar á landinu, Ljósafellið landaði í Reykjavík í gær þegar það var hálfnað með togararallið. Það heldur aftur til veiða að lokinni löndun í seinni hluta rallsins. Hoffellið landaði 1.200 tonnum á Þórshöfn í byrjun vikunnar. I seinustu viku land- aði Finnur Fríði 1.700 tonnum af loðnu á Fáskrúðsfírði, Saksabergið kom með 700 tonn og Hoffellið með 1.200 tonn. Þá landaði fær- eyska skipið Carlton 1.400 tonnum á fimmtudag. GG Fisktegund Bakkaí'j. Seyðisfj. Mjóifj. Neskaups. Eskifj. Reyðarfj. Fáskrúðsfj. Stöðvarfj. Djúpiv. AIIs Þorskur 3 38 0 14 149 0 31 3 2 240 Ýsa 0 3 0 5 27 0 9 0 1 45 Ufsi 0 2 0 14 3 0 10 0 0 29 Karfí / Gullkarfi 0 3 0 16 15 0 9 0 0 43 Langa 0 0 0 0 0 0 1 0 0 1 Steinbítur 0 0 0 0 1 0 0 4 2 7 Hlýri 0 0 0 1 2 0 0 0 0 3 Grálúða 0 16 0 0 39 0 0 0 0 55 Loðna 0 0 0 2487 3609 0 0 0 0 6096 Samtals afli 3 63 0 2538 3846 1 61 7 5 6524 Afli í austfirskum höfnum dagana 25. febrúar - 3. mars. Tölurnar eru byggðar á bráðabirgðatölum af vef Fiskistofu.

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.