Austurglugginn


Austurglugginn - 08.03.2007, Qupperneq 9

Austurglugginn - 08.03.2007, Qupperneq 9
Fimmtudagur 8. mars AUSTUR • GLUGGINN 9 Landsbankinn afhendir gjöf Egill Jónsson aðstoðarskólastjóri og Ágúst Ármann Þorláksson skólastjóri Tónskóla Norðfjarðar taka við tölvugjöfinni úr hendi Hjörvars O. Jenssonar útibússtjóra og Jóns Björns Hákonarsonar hjá Landsbankanum. Mynd: SigAð Útibú Landsbankans á Norðfirði afhenti nýlega TónskólaNorðfjarð- ar tölvu að gjöf. Tölvan sem er PC tölva af Dell gerð er gefin Tónskól- anum í tilefni 50 ára afmælis skól- ans og sem þakklætisvottur fyrir hljóðfæraleik ijögurra nemenda skólans og tveggja kennara hans í útibúinu í tilefni 120 ára afmælis skólans. „Tilefhin eru mörg og öll ánæguleg” að sögn Hjörvars O. Jenssonar útibússtjóra. Tölvan nýtist vel í öll störf við skólann „allt frá bókhaldsvinnu til þess að keyra tónlistarforrit” að sögn Agústar Armanns skólastjóra Tónskólans. Nemendur Tónskóla Norðfjarðar eru nú 140, þar af 22 í leikskóladeildinni á Kirkjumel. SigAð ÁAus iýjarðaíeíð 4771713 Hestakerra til sölu Eins hests kerra til sölu. Lysthafendur hafi samband við Bjarna i sima 471-1367 á kvöldin og 849-6031. Nei Raffa min, ég er eitthvað svo úrvinda, bara alveg tómur... Batti, ertu búinn að ryksuga? Skilum ónýtu rafhlöðunum! Onýtar rafhlöður geta verið hættulegar umhverfinu ef þær innihalda spilliefni. Þú getur losað þig við allar rafhlöður m.a. á bensínstöðvum Olís og söfnunarstöðvum sveitar- félaga um land allt eða fengið þér endurvinnslutunnu fyrir flokkað heimilissorp. ÚRVINNSLUSJÓÐUR Kynntu þér málið á www.urvinnslusjodur.is ^ Efnamóttakan hf CÞ 4Vh Fjallkonan, hver var hún? Fræðslufundur verður á vegum Gönguklúbbs Seyðisfjarðar í Björgunarsveitarhúsinu Sæbóli, á laugardaginn 10. mars klukkan 16:30. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir, aðgangur er ókeyp- is og boðið verður upp á kaffisopa. Þar verður fræðsluerindi um Fjall- konuna á Vestdalsheiði. Hver var hún, hvert var hún að fara, hvað varð henni að aldurtila, var hún ein á ferð ? Jón Ingi Sigurbjömsson á Egilsstöðum sýnir myndir og segir frá rannsóknum sem tengjast fundi Fjallkonunnará Vestdalsheiði sum- arið 2004. A vef Fomleifavemdar ríkisins www.fomleifavemd.is má skoða myndir frá fundinum og lesa meira um landnámskonuna. SigAð Sveitarfélagadagur KPMG Endurskoðunarfyrirtækið KPMG á Austurlandi hélt sveitarfélagadag sinn á dögunum þar sem farið var yfir málefni tengd bókhaldi og sveitarfélögum. Á sveitarfélagadeginum sem haldinn var í safnaðarheimilinu á Reyðarfirði töluðu Hlynur Sigurðsson endurskoðandi sem kynnti KPMG og sagði meðal annars að á undanförnum árum hafi starf endurskoðandans breyst, kröfur um gæði hafi aukist sem og áhersla á vönduð vinnubrögð og sagði sérhæfmgu vera málið til að bregðast við þessu. Magnús Jónsson og Jóna Árný Þórðardóttir viðskiptafræðingar hjá KPMG töluðu um skatta, þjón- ustugjöld og reikningsskilamálefni sveitarfélaga. Kári Haraldsson lögfræðingur hjá KPMG kom að sunnan og talaði um, áhættugreiningu virðisauka- skatts og fleira. Hann sagði meðal annars að skattaeftirlit beindist að stórum hluta að virðisaukaskatti, brot væru litin alvarlegum augum og eftirlit vegna virðisaukaskatts gæti náð sex ár aftur í tímann. SigurðurÓlafssonfræðslustjórihjá Alcoa kynnti „Lean management” sem útleggst straumlínustjórnun og Alcoa er að innleiða í alla sína vinnsluferla í álverinu á Reyð- arfirði. Straumlínustjórnun er aðferð sem virkar í öllum rekstri og sóun er markvisst „afhjúpuð” og hönnuð út úr kerfinu. Við inn- leiðingu getur framleiðni tvöfald- ast, þjónusta verður allt að 90%, gegnumstreymistímar og stopp- tímar minnka um 30-75%, aukin sala vegna aukins gegnumstreym- is 10-50%, birgðir minnka um allt að 90%, tíðni vörugalla minnka um 50%, vinnuslysum fækkar um 50%, kostnaður vegna yfirvinnu sóunar og svo framvegis minnkar um 10-50%. Guðlaugur Erlingsson ráðgjafi á fyrirtækjasviði KPMG fór yfir tölulegan samanburð og stýrði almennum umræðum sem voru líflegar. Á eftir talnaflóðinu voru svo léttar veitingar í boði KPMG. SigAð

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.