Austurglugginn - 08.03.2007, Side 11
Fimmtudagur 8. mars
AUSTUR • GLUGGINN 11
Skilorðsbundið
fangelsi fyrir brot
gegn valdstjórninni
Ríflega tvítugur karlmaður var í
seinustu viku í Héraðsdómi Aust-
urlands dæmdur í þrjátíu daga
skilorðsbundið fangelsi fyrir
brot gegn valdsstjóminni. Mað-
urinn veittist að lögreglukonu á
skemmtistað í Fellabæ, sem var þar
að sinna skyldustörfum og reyndi
að slá hana hnefahöggi í andlitið.
Hann var handtekinn og færður
á lögreglustöðina á Egilsstöðum
þar sem hann hótaði tveimur lög-
regluþjónum lífláti hefðu þeir
afskipti af honum. Þá hótaði hann
fjölskyldu þriðja lögregluþjóns-
ins sem hafði afskipti af honum
ofbeldi. Akærði játaði brot sín
skýlaust fyrir dómnum og var það
metið manninum til refsimildunar.
Á móti var tilraun hans til árásar á
lögreglukonuna talin með öllu til-
efnislaus og til þess fallin að valda
verulegu tjóni. Þá þóttu hótanir
hans í garð lögregluþjónanna mjög
ruddafengnar og grófar og til þess
fallnar að vekja hjá þeim ótta um
velferð sína og fjölskyldna sinna.
GG
Fjórtán mánuðir fyrir
hættulega líkamsárás
Kínverskur karlmaður var í Hér-
aðsdómi Austurlands dæmdur í
14 mánaða fangelsi fyrir sérlega
hættulega líkamsárás. Maðurinn var
ákærður fyrir tilraun til manndráps,
til vara fyrir sérstaklega hættulega
líkamsárás, en dómurinn féllst ekki
á að um tilraun til manndráps hefði
verið að ræða.
Maðurinn veittist að ítölskum sam-
starfsmanni sínum hjá Impregilo í
matsal starfsmannabúða við Axará í
Fljótsdal á nýársnótt og stakk hann
tvívegis með hníf. Árásarmaðurinn
var handtekinn strax um nóttina og
við yfírheyrslu hjá lögreglu á Egils-
stöðum játaði hann verknaðinn.
Fyrir dómi neitaði Kínverjinn að
hafa stungið Italann. Hann játaði
því að hafa stungið mann, en hann
ætlaði sér að stinga ítala sem hann
átti við í stimpingum á dansgólfi í
salnum. Hann sagði ítalina hafa
verið þrjá til fjóra og allra stærri og
betur sig komna en hann. Ákærði
kvaðst skömmu áður hafa lent í
átökum við Itala en þeir hefðu rætt
málin inn á salemi. Læknir sagðist
hafa gefið Kínverjanum verkjalyf
við verk í hægra brjóstholi, sem
hann grunaði að væri úr frá brotnu
rifbeini.
Vitni að atburðinum kvaðst hafa
séð Kínverjann standa upp úr sófa,
ganga í gegnum hóp af fólki stystu
leið að ítalanum, takast á við hann
með einhverjum hætti og yfirgefa
salinn.
Miðað við sönnunargögn í málinu
og framburð vitna þótti dómnum
ekki hafa neitt komið fram sem
benti til þess að ákærði hefði átt í
stimpingum við ítalina. Með hlið-
sjón af franrburði Kínverjans, að
stungan var líklega bara ein og
áverkarnir ekki alvarlegir þótti ekki
sannað að um manndrápstilraun
hefði verið að ræða. Auk fangels-
isvistarinnar er manninum gert að
greiða sakarkostnað, tæplega 670
þúsund krónur.
Árslaunin á mánuði
I dóminum kemur fram ýmislegt
sem mönnum gæti þótt fróðlegt að
vita um samfélag þeirra sem vinna
að byggingu Kárahnjúkavirkjunar.
Kínverjinn sagðist fá álíka há laun
hér á landi á mánuði og hann fengi
á ári í Kína. Honum var sagt upp
hjá Impregilo í kjölfar árásarinnar
en áður hafði hann unnið fyrir fyr-
irtækið í Kína.
ítalinn, sem starfaði hafði hér í einn
og hálfan mánuð, sagði að honum
íyndust allir Kínverjar eins og því
hefði hann ekki getað borið kennsl
á ákærða úr hópi Kínverja. „Hann
sagðist aldrei hafa talað við ákærða
áður en atvikið gerðist. Sagðist hann
aldrei hafa borið neitt sérstakt traust
til Kínverja og ekki séð ástæðu til að
umgangast þá.“
Þá kom Oddur Friðriksson, yf-
irtrúnaðarmaður, fyrir dóminn.
„Hann sagðist þekkja nokkuð vel
til samfélagsins á svæðinu. Hann
sagðist aldrei hafa orðið var við að
komið hefði til átaka á milli hópa á
svæðinu, en sagðist kannast við að
ákveðnir hópar héldu saman. Hann
sagðist hafa heyrt frá starfsfólki,
sem þama hefði sinnt heilbrigðis-
og öryggisgæslu að ákærði hefði
orðið fyrir ákveðinni niðurlægingu
þarna um kvöldið, sem jafnvel jaðr-
aði við kynferðislega áreitni. Hann
vildi þó ekki fara nánar út þessar
sögusagnir."
GG
^Íatgæðingur
VIKUNNAR
Helga Bjarnadóttir
Mexicó - súpa
3 sellerí stönglar
1 rauðlaukur
1 laukur
1 rauð paprika
100 gr. nautahakk
100 gr. svínahakk
1 stór dós tómatpúrra
I dós hakkaðir tómatar
8 dl vatn
200 gr. rjómaosur
5 dl matreiðslurjómi
1 dós nýrnabaunir eða baunamauk
ca. 2 msk grænmetiskraftur
ca. 2 tsk hvítlaukskrydd frá Pottagöldrum
2 msk olía
salt eftir smekk
Grænmetið brytjað smátt og steikt í olíunni, hakkinu bætt út í, steikt.
Setjið restina af uppskriftinni í pott, bætið hakki og grænmeti út í og
sjóðið við vægan hita í um klst.
Borið fram með muldum doritos flögum , rifnum osti og sýrðum rjóma.
Ávaxtakaka
4 gul epli
200 gr. döðlur
100 gr. sykur
100 gr. kókosmjöl
150 gr. hveiti
2 tsk lyftiduft
2egg
Eplin afhýdd, skorin í bita og sett í skál. Súkkulaði og döðlur saxað
gróft og blandað saman við eplin, þurrefnunum og eggjunum bætt út í,
hrært saman með sleif.
Sett í eldfast mót og þrýst létt ofan á.
Bakað við 160 gráður í 30 mín.
Borið fram með vanilluís eða þeyttum rjóma.
Ég skora áAlbertu Guðjónsdóttir á Fáskrúðsfirði
Með kveðju
Helga Bjarnadóttir