Austurglugginn


Austurglugginn - 08.03.2007, Page 12

Austurglugginn - 08.03.2007, Page 12
12 AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 8. mars Listnemar mættir til Seyðisfjarðar Listnemarnir, þau Christelle Concho, Harpa Dögg Kjartansdóttir, Inga Martel, Irene Ósk Bermudez, James Greenway, Nika Kupyrova, Sigurrós Svava Ólafsdóttir, Vilborg Bjarkadóttir, Þórunn Maggý Kristjánsdóttir og Arild Tveito ásamt kennara sínum. Mynd: Skaftfell/Þórunn Eymundsdóttir. Dieter Roth-akademían, með nem- endum úr Listaháskóla Islands og erlendum gestanemum, mætti í menningarmiðstöðina Skaftfell á Seyðisfirði í seinustu viku. Þetta er sjötta árið í röð sem akademían, undir stjóm Bjöms Roth, heldur nokkurra vikna vinnubúðir í Skaft- felli fyrir hóp myndlistamema. Hópurinn vinnur saman í tvær vikur að undirbúningi sýningar sem opnuð verður 17. mars. Stór hluti bæjarbúa á Seyðisfirði er viðrið- inn undirbúning sýningarinnar þar sem nemendurnir vinna að verkum sínum inn á verkstæðum bæjarins undir handleiðslu heimamanna. Gestum Skaftfells gefst tækifæri á að spjalla við nemenduma þar sem þeir verða við vinnu í sýningarsal Skaftfells. GG Dagskrá 700IS tilbúin Endanleg mynd er óðum að komast á dagskrá tilraunavikmyndahátíð- arinnar 700IS sem haldinn verður á Austurlandi 24. — 31. mars næst- komandi. Sjö manna hóptrr, skip- aður þeim Agnieszka Sosnowska ljósmyndara, Eddu Ottarsdóttur fjölmiðlakonu, Þórhildi Laufey Sig- urðardóttur, grafískum hönnuði og listakonu, Olöfu Björk Bragadóttur myndlistarkonu, Kari Osk Ege myndlistarkonu, Ingunni Þráins- dóttur grafískum hönnuði og Krist- ínu Scheving, framkvæmdastjóra hátíðarinnar, hefur þann starf að velja úr og flokka þau 500 verk sem Hákon Hákon Unnar Seljan Jóhannsson, gmnnskólakennari í Bolungarvík en að öðm leyti Reyðfirðingur, varð í öðm sæti á fyrsta undankvöldi keppninnar um Fyndnasta mann Islands í seinustu viku. Vinsældir keppenda vom mældar með desí- bilamæli og taldist sá hafa sigrað sem fékk hávæmstu viðtökumar meðal áhorfenda. Einungis munaði einu desíbili á Hákon og þeim sem vann og tryggði sér rétt til að keppa á úrslitakvöldinu. I kvöld keppa tveir Austfírðingar í öðrum undanúrslitariðli, þeir Daníel Geir Hjörvarsson Moritz, kennara- nemi og fyrrverandi blaðamaður og Jónas Reynir Gunnarsson, Fellbæ- ingur, teiknimyndasöguhöfundur, framhaldsskólanemi, nú seinast leikskáld og verðandi grínisti. Þess má til gamans geta að Norð- bárust á hátíðina í ár. Opnunarkvöld hátíðarinnar að þessu sinni verður í gamla sláturhúsinu á Egilsstöð- um, en þar munu tveir austurrískir listamenn sýna verk sitt í samvinnu við plötusnúðinn Gísla galdur. Af öðrum þáttum hátíðarinnar má nefna listamannaspjall með Steinu Vasulka, Rúrí og Finnboga Péturs- syni á Eiðum, heimildamyndasýn- ingu á Skriðuklaustri, fyrirlestur um böm og tilraunakvikmyndir í Menntaskólanum á Egilsstöðum og námskeið í vídeólist. Nánari upplýsingar um hátíðina er að finna á www.700.is GG úr leik Einungis munaði einu desibili að Hákon Seljan kæmist áfram. Mynd: Kjartan Árni Albertsson fírðingurinn Hlynur Benediktsson skemmti í hléi á fýrsta undanúr- slitakvöldinu. GG Súper Maríó í Sláturhúsinu „Það er metnaður i þessari sýningu, það er leikgleði og skemmtun og það fleytir henni langt yfir gallana," Mynd: G G Síðastliðið föstudagskvöld var frumsýndur nýr íslenskur söngleik- ur í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Þeir félagar Jónas Reynir Gunnars- son og Hjalti Jón Sverrisson semja þetta mjög svo sérkennilega stykki upp úr tölvuleiknum sívinsæla sem virðist ætla að verða eilífur. Guðjón Sigvaldason leikstýrir. Þetta er stórsýning á velflestan hátt. Þarna semja tveir ungir menn í mennta- skóla söngleik og eins og Jónas segir í pistli í leikskránni: „Hvaða api myndi setja það upp?„ „...Þetta er svo fáránleg hugmynd, að ef hún kæmist á laggimar þá myndi ég láta græða þriðju geirvörtuna aftur á mig“ sagði Hjalti.“ Þetta er stórsýning vegna þess að ungir menn semja tæplega þriggja tíma langt verk þar sem ótrúlegur fjöldi fólks kemur að uppfærsl- unni og þrátt fyrir ýmsa galla, þá er aldrei dauður punktur og mér leiddist aldrei, þrátt fyrir að sitja fótbrotinn á grjóthörðum bekk, merjandi á mér rasskinnarnar. Gallamir em fyrst og fremst tveir. Þegar menn byrja að skrifa þá er eitt það helsta sem þarf að lærast, að skera niður. Verkið er of langt. Samt sleppur það einhvem veginn. Reyndar, smánöldur í viðbót, mér fínnst að nöfn höfundanna eigi að vera framan á leikskránni og svo sá ég hvergi hver hannaði þá hina sömu leikskrá. Nú svo er hinn gall- inn, sem er reyndar ekki nauðsyn- lega galli í þessu absúrdverki, en sá er að sumir söngvaramir valda því engan veginn að halda lagi. Samt náði ég ekki að láta það angra mig neitt yfirgengilega. Eiginlega angr- aði ekkert mig vegna þess að allt var einhvern veginn svo klikkað og minn húmor er svolítið mikið á þeim nótunum. Eg er ekkert viss um að allir geti notið þessarar sýningar eins og ég gerði. Þó ekki væri nema bara vegna þess að það er sett upp í Sláturhús- inu sem einhverjum virðist vera í nöp við. Mér finnst það aftur á móti eitt mergjaðasta sýningarhúsnæði á landinu, mér finnst það bjóða upp á ótal möguleika og mér finnst að þessi sýning hafí nýtt það rými sem er þama á neðri hæðinni á ótrúlega flottan og skemmtilegan hátt. Þar er náttúrulega Guðjóni Sigvalda- syni mikið að þakka en hann hefur einhvem sérstaklega mergjaðan talent til þess fá fram hæfileika og sjálfstraust hjá krökkum sem fyrir vikið koma manni skemmtilega á óvart. Nú, svo er sviðsmyndin hennar Kömu alveg snilldarvel hönnuð inn í húsið. Fyrir okkur sem höfum spilað Súper Maríó, þá er þetta bráðsmellið. Rétt eins og búningamir sem ná einhverjum veruleika sem er á köflum eins og tölvuleikjafígúrur hafi stigið út úr skjánum og vita fýrir vikið ekki alveg hvar þær em. Þetta er stór- sýning vegna alls þessa. Tæpir þrír tímar af tónlistar- og leikflippi sem risavaxinn hópur krakka stendur að og sem halda dampi allan tímann í húsi sem er umdeilt og skapa þannig nýja veröld, sem einmitt er eitt af helstu hlutverkum leikhússins. Og reynd- ar er einn af stærstu kostunum við þessa sýningu einmitt sá að mörkin á milli leikrits, leikhúss, áhorfenda, leikenda og persóna em teygð og toguð á virkilega flottan hátt. Það er metnaður í þessari sýningu, það er leikgleði og skemmtun og það sem fleytir henni langt yfir gallana, það er hvað það er urrandi húmor í henni og mér þætti það snautlegt ef fólk sem vill vita hvað ungir og upprennandi listamenn geta gert, fara ekki og skoða. Það væri galli. Jónas, Hjalti, Guðjón, Kama, krakkar, LME, til hamingju. Sigurður Ingólfsson

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.