Austurglugginn - 08.03.2007, Síða 13
Fimmtudagur 8. mars
AUSTUR • GLUGGINN 13
Úthlutun í
Spánaríbúð lokið
I síðustu viku var Spánaríbúð
þeirri sem AFL hefur til afnota
fyrir félagsmenn sína í samvinnu
við Vökul Stéttarfélag, úthlutað.
Talsverð eftirspurn var eftir íbúð-
inni og var öllum orlofstímabilum
sem til ráðstöfunar voru, úthlutað.
Sumarúthlutun í orlofshús félags-
ins verður auglýst fljótlega og
hefur húsum verið íjölgað. Þá
verður það nýmæli í starfssemi
orlofssjóðs í sumar að samið
hefur verið við Eddu hótelin og
verða gistiávísanir seldar á skrif-
stofum félagsins á verulega nið-
ursettu verði. Þá verða einnig sér-
stök kjör fyrir félagsmenn AFLs
í Danmerkurflug Ferðaskrifstofu
Austurlands og með ferjunni frá
Seyðisfírði.
SigAð
Söngtónleikar á
Reyðarfirði
Sópransöngkonan Elísabet Arsso-
Cwalinska og söngnemendur
hennar frá Neskaupstað, Eskifirði
og Reyðarfírði halda söngtónleika
í Grunnskóla Reyðafjarðar á laug-
ardag. Yfirskrifttónleikanna, sem
hefjast klukkan 16:00, er„Tónlist
gleður hjörtu okkar“. Undirleik-
ari er Daníel Arason. Gestum er
boðið að koma og fá sér kaffisopa
og hlýða á skemmtilega tónlist.
Aðgangur er ókeypis.
GG
Ellefti Barkinn
Söngkeppni Menntaskólans á
Egilsstöðum, Barkinn, fer fram í
ellefta sinn annað kvöld. Keppn-
in fer frarn í Fjölnotahúsinu í
Feliabæ og eru um tuttugu þátt-
takendur skráðir til leiks. Húsið
opnarklukkan 19:00.
GG
Söngkeppni NIVA
Söngkeppni Nemendafélags
Verkmenntaskóla Austurlands
fer fram í kvöld klukkan 20.00 í
Blúskjallaranum í Neskaupstað.
Keppendur eru fimm talsins,
en auk þeirra treður Tónlist-
arhópur Verkmenntaskólans upp.
Aðgangseyrir er 500 krónur.
GG
Austfirskar konur
með 20% lægri laun
en reykvískar
Sigurjón Þórðarson, skrifar
í umræðunni hefur launamunur
kynjanna verið talsvert hávær og
í u.þ.b. ársgamalli könnun fyr-
irtækisins Gallup var óútskýrður
launamunur kynjanna liðlega 14%
konum í óhag.
Minna hefur farið fyrir umræðu
um þann mikla mun sem er á
kjörum fólks eftir landshlutum. Sú
umræða hefur verið hálfgert hvísl
sem markast örugglega af því að
stærstu og öflugustu fjölmiðlarnir
eru staðsettir á höfuðborgarsvæð-
inu.
A Austurlandi voru heildarlaun
kvenna á árinu 2005 liðlega tvær
milljónir en laun kvenna á höf-
uðborgarsvæðinu voru tæplega 2,5
milljónir króna fyrir sama ár.
Þessi launamunur endurspeglar þá
stjórnarstefnusemFramsóknar- og
Sjálfstæðisflokkur hafa rekið gegn
íbúum landsbyggðarinnar og gerir
þá að annars flokks þegnum með
lægri tekjur og lakari þjónustu.
Skattbreytingar ríkisstjórnarinn-
ar hafa líka komið hart niður á
austfirskum konum sem fá í launa-
umslagið meðallaun sem greidd
eru á svæðinu.
Ef við gerum ráð fyrir því að með-
allaun austfirskra kvenna séu nú
um 194 þúsund krónur á mánuði er
forvitnilegt að reikna út hvað með-
altalskonan á Austurlandi hefur
farið illa út úr þeim breytingum
sem Framsóknar- og Sjálfstæð-
isflokkur hafa gert á skattkerfmu
á kjörtímabilinu. Þeir lækkuðu
skattprósentuna í stað þess að
hækka skattleysismörk eins og
Frjálslyndi flokkurinn lagði til og
það hefur ekki kunnað góðri lukku
að stýra.
Ef sú upphæð sem varið hefur
verið til sérstakrar lækkunar
skatta - sem hefur gagnast best
hátekjufólki - hefði verið notuð
í að hækka skattleysismörk væri
meðalkonan á Austfjörðum með
150 þúsund krónum hærri upphæð
árlega í beinhörðum peningum
beint í vasann.
Það er engin spurning að skatta-
stefna núverandi stjórnarflokka
er alls ekki sniðin að venjulegu
launafólki og ef fólki er annt um
budduna sína er affarasælast að
greiða Frjálslynda flokknum at-
kvæði sitt.
Sigurjón Þórðarson
þingmaður Frjálslynda flokksins
Þorrablótsnefnd
kemur færandi hendi
Þorrablótsnefnd Norðfjarð-
arhrepps hins forna kom á
dögunum færandi hendi til,
Fjórðungssjúkrahússins og Björg-
unarsveitarinnar Gerpis, á Norð-
firði. Gjafirnar eru til komnar
vegna samsafns hagnaðar nokk-
urra ára af þorrablótum í sveitinni,
mest þó þriggja til ljögurra síðustu
ára en þorrablót Norðfjarðarsveitar
hefur verið haldið óslitið frá árinu
1928. Steinunn Steinþórsdóttir og
Guðröður Hákonarson fulltrúar
þorrablótsnefndarinnar afhentu
Fjórðungssj úkrahúsinu fj órarvegg-
festingar, fjögur sjónvarpstæki og
fjóra DVD spilara til afnota fyrir
sjúklingana, sem Valdimar Her-
mannsson framkvæmdastjóri,
Björn Magnússon yfirlæknir og
Guðröður Hékonarson og Steinunn
Steinþórsdóttir afhenda Sveini Odds-
syni gjaldkera Björgúnarsveitarinnar
Gerpis 100 þúsund króna peningagjöf.
Mynd: SigAð
Sigrún Guðjónsdóttir deildarstjóri
tóku við. Þau afhentu einnig
Björgunarsveitinni Gerpi 100
þúsund krónur að gjöf.
SigAð
Varamönnum
skipt inn á
Tveir Austfirðingar, þau Svan-
hvít Aradóttir úr Neskaupstað
og Olafur Níels Eiríksson frá
Fáskrúðsfirði, tóku sæti sem vara-
menn á Alþingi í seinustu viku.
Svanhvít kom inn í stað Valgerðar
Sverrisdóttur og Ólafur Níels í
stað Birkis Jóns Jónssonar. Bæði
tóku til máls á þingi, Svanhvít
ræddi um byggðaáætlun og efl-
ingu byggðakjama. Ólafur lagði
fram þrjár þingsályktunartillögur;
um heildarútboð á jarðgöngum
í Norðausturkjördæmi, flutning
starfsemi Fiskistofu út á land og
um samsetningu afla vinnsluskipa
úr uppsjávarskipum.
GG
HAUST hefur
ekki vottað
starfsmannabúðir
Heilbrigðiseftirlit Austurlands
gerir athugasemdir við frétta-
umfjöllun um hugsanlega sölu
starfsmannabúða og fleiri húsa í
eigu Impregilo á framkvæmda-
svæði Kárahnjúkavirkjunar.
Gerðar eru athugasemdir við
að húsnæðið hefur ekki fengið
úttekt byggingarfulltrúa og upp-
fyllir ekki skilyrði hollustuhátta-
reglugerðar um gististaði.
GG
Afmælishátíð
Seyðisfjarðarskóla
I næstu viku verður haldið upp á
aldarafmæli skólahússins að Suð-
urgötu 4, Seyðisfirði með ýmsum
hætti. I skólanum verða sýningar
á margvíslegum verkum nemenda
og uppákomur klukkan 10:00 og
11:30 alla daga vikunnar. í stofu
3 verða sýningar á gömlu náms-
efni, verkefnum og munum sem
tengjast sögu skólans. Gestum
verður boðið í þrautaleik um
skólann. Dregið verður úr réttum
lausnum og verðlaun veitt í
afmæliskaffinu.
Hápunktur hátíðahaldanna verður
á miðvikudag, en þá verður
afmæliskaffi fyrir alla bæjarbúa
milli klukkan 15:30 og 17:30.
Um kvöldið verður skólahátíð
skólans.
GG