Austurglugginn


Austurglugginn - 08.03.2007, Qupperneq 15

Austurglugginn - 08.03.2007, Qupperneq 15
Fimmtudagur 8. mars AUSTUR • GLUGGINN 15 Þróttarstúlkur nær öruggar í úrslit Seinasta umferð Austurlandsriðils 2. deildar kvenna í blaki var leikinn á Fáskrúðsfirði um helgina. Upp- haflega átti að spila á Homafírði en þangað var ófært og spilamennskan því færð á Fáskrúösíjörð. en eins og gefur að skilja komust Sindra- stúlkur ekki þangað. Þegar blaðið fór í prent var ekki ljóst hvað yrði um þeirra leiki. Lið Þróttar sem vann alla sína leiki og og tryggði sér þar með nánast sæti í úrslitakeppni 2. deildar þar sem liðið vann tvær umferðir riðilsins af þremur. Sigurlið Þróttar: Aftari röð frá vinstri: Unnur Ása (þjálfari, Sæunn, Jóhanna, Elsa. Fremri röð frá vinstri: Laufey, Júliana, Hjálmdis, Sóiveig (fyrirliði). Úrslitin urðu sem hér segir: Þróttur - Leiknir 3-0 Höttur - Huginn 3-0 Leiknir - Höttur 0-3 Huginn - Þróttur 0-3 Leiknir - Huginn 0-3 Þróttur - Höttur 3-0 Lokastaðan: 1. Þróttur 3 0 0 9-0 9 2. Höttur 2 0 1 6-3 6 3. Huginn 1 0 2 3-6 3 4. Leiknir 0 0 3 0-9 0 GG Handbolti Átta marka ósigur í hörðum leik Höttur tapaði um helgina iyrir Selfossi, I7-25 í 1. deild karla í handknattleik. Jafnræði var með liðunum í byrjun og jafnt á flestum tölum. Undir lok hálfleiksins sóttu gestirnir þó í sig veðrið og náðu tveggja marka forskoti, 9-11. Hatt- armenn virtust ekki komast út úr búningsklefunum í síðari hálfleik því Selfyssingar náðu að skora fjögur mörk f viðbót og breyta Þróttur gegn Þrótti Blaklið Þróttar leikur tvo leiki gegn nafna sínum úr Reykjavík í Neskaupstað um helgina. Fyrri leikurinn fer fram annað kvöld klukkan 20.00 en sá seinni verður á laugardag klukkan 14.00. Þá verður keppt í íslandsmeist- aramótinu í Snjókrossi á Mývatni um helgina. GG Unnu ÍH Sameiginlegt lið Hugins, Hattar, Sindra og Snartar spil- aði í seinustu viku æfíngaleik gegn ÍH úr Hafnarfirði, en liðið fylgdi Hetti upp úr 3. deildinni í sumar. Leikurinn endaði 3-2 fyrir Austfjarðarliðinu en mörk þess skoruðu Friðjón Gunn- laugsson, ívar Karl Hafliðason og Sveinbjöm Jónasson. GG Heimir ökklabrotinn Heiniir Pétursson, bakvörður Hattar, verður frá næstu vikurn- ar eftir að hafa ökklabrotnað í leik gegn Selfossi. Á vef Hattar kemur fram að brotið verði um ntánuð að gróa en Heimir þurfí ekki að fara í gifs þar sem honum liafí tekist að ganga með meiðslin. GG stöðunni í 9-14 áður en heimamenn fóru að svara fyrir sig. Þann mun náðu þeir aldrei að brúa, þrátt fyrir hetjulega tilburði markvarðarins Stefáns Guðnasonar sem í leikslok hafði varið 23 skot. Bæði lið virtust leggja áherslu á harðan vamarleik, sem í daglegu tali myndi verða lýst sem baráttu en líktist frekar slagsmálum. Menn vom togandi í peysur andstæðinga sinna, hrindandi, ýtandi og klemm- andi. Svo mikla áherslu virtust menn leggja á að verða ekki undir í baráttunni að þeir virtust hreinlega gleyma að spila handbolta. Dómarar leiksins voru að vonum iðnir við að vísa leikmönnum beggja liða út af, en það virtist lítil áhrif hafa. Markahæstir í liði Hattar voru Oðinn Stefánsson, sem skoraði átta mörk, þar af fjögur úr vítum og Stefán Andri Stefánsson sem skoraði fímm mörk. Pétur Gíslason, þjálfari Hattar, segir varnarleikinn hafa gengið upp eins og fyrir var lagt en sóknarleikurinn brugðist algjörlega. „Til marks um það, þá gerðum við aðeins 1 marki fleira Körfubolti „Erfitt að kveikja í mönnum sem hafa tapað níu leikjum í röð“ Vonir Hattar um að komast í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfuknattleik urðu að engu um seinustu helgi þegar liðið tapaði fyrir Ármann/Þrótti 93-91. Höttur hafði átta stiga forystu þegar þrjár mínútur voru til leiksloka en heimamenn tóku þá að raða niður körfunum og unnu að lokum með tveggja stiga mun. Viðar Örn Haf- steinsson, sem spilaði nefbrotinn, var atkvæðamestur leikmanna Hattar, en flest stigin voru skoruð úr þriggja stiga körfum. „Þarna er kominn einhver baklás, menn eru vanir þessari stöðu en ekki tilbúnir að breyta henni,“ sagði Loftur Þór Einarsson, þjálfari Hattar, í samtali við Aust- urgluggann. „Menn eru bara hættir. Það er erfítt að kveikja í mönnum sem hafa tapað níu leikjum í röð og það er ekki lengur til neins að vinna. Liðin skiptust á að skora og það var lítið um varnarleik." Liðið leikur um helgina tvo leiki á höfuðborgarsvæðinu, gegn Val annað kvöld og gegn Breiðabliki á laugardag. „Við komum saman á mánudags- kvöld og ákváðum að reyna að klára mótið með reisn og vinna leikina tvo sem eftir eru,“ sagði Loftur. Liðið leikur væntanlega án pólska miðherjans Milosz Krajweski, sem er á heimleið. Nr. Félag L U T Stig 1. Þór Ak. 12 12 0 24 2. Breiðablik 12 8 4 16 3. Valur 11 7 4 14 4. FSu 12 6 6 12 5. Stjarnan 12 6 6 12 6. KFÍ 12 4 8 8 7. Höttur 11 2 9 4 8. Árm/Þrótt 12 2 10 4 GG Stefán Andri Stefánsson skoraði fimm mörk fyrir Hött. Mynd: GG í leiknum öllum heldur en í fyrri hálfleik í síðasta leik gegn Gróttu. Ég vildi ég gæti svarað því hvað fór úrskeiðis þar, en menn fóru bara alls ekki eftir því sem lagt var upp með fyrir leik. I stað þess að vinna saman sem lið, þá vorum menn að reyna hver í sínu homi og má segja að lykilmenn hafi brugðist algjörlega í sókninni í þessum leik. Þá fengum við enga hjálp frá dómurum leiksins sem ráku okkur 8 sinnum útaf í leiknum, oft fyrir ansi litlar sakir.“ Um helgina tekur4. flokkur Hattar á móti jafnöldum sínum frá Selfossi. Liðin mætast á laugardag og sunnu- dag og verður leikurinn á laugardag líklega spilaðurá Seyðisfírði, en það yrði þá fyrsti leikurinn á íslandsmóti innanhúss í handbolta sem leikin er annars staðar á Austurlandi en á Egilsstöðum. GG

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.