Bergmál - 01.02.1939, Blaðsíða 1
9
1, tbl. Vestmannaeyjum - í febrúar 1939 1. árg.
A V A R P.
Þetta blað, sem hér birtist al-
menningi fyrsta sinni, hafa tveir
æskumenn hér í bæ ákveðið að gefa út
og veita forystu. ^Mun -slíkt mega
teljast sérstæð nýung í sögu íslenzk-
rar blaðamennsku.
"Bergmál1' verður fyrst og fremst
boðberi æskunnar í Vestmannaeyjum, -
þeirrar æskut sem eftir nokkur ár
verður hin raðandi kynslóð. Bfni
blaðsins mun fjalla um ýmis menning-
armál, ásamt hinu og öðru til skemmt-
unar og fróðleiks. Mun einkum verða
lögð áherzla á að viðhorf sem flest-
ra æskumanna og kvenna komi^í^ljós.
Æskan hér x Vestmannaeyjum á óefað
mörg og merk áhugamál, sem eiga er-
indi til almennings. Hlutverk "Berg-
máls" er að verða tengiþráður milli
æskunnar og almennings a sem víðtæk-
astan hátt.
Þess skal sérstakle^a getið, að
viðhorf bau, sem Bergmal" mun flytja,
verða hafin yfir flokkadeilur og
pólitískan skoðanamismun. Afstaða
okkar, sem að blaðinu stöndum, er sú,
að nóg sé til fyrir af blöðum, sem
starfa á slíkum vettvangi.
Megi 'Bergmáli" ^takast að vekja
nýjan ahuga, og nýjan, andlegan
starfsþrótt til hags fyrir land og
lýð, er tilgangi þess náð.
Útgefendur.
'Ef æskan vill rétta þér Örfandi
hönd,
þá ertu á framtíðar vegi".
(Þ. Erl.)
ÓMA STILLTIR STRENGIR.
óma stilltir strengir.
Stjörnur vorsins ljóma.
Geymir hjarta og hugur
helga leyndardóma.
.Sveipazt sunarlöndin
sólar skærum bjarma.
Sigra ég með söngvum
sálar minnar harma.
Sit\or vor að völdum;
vaka þrár í hjarta.
Sön^var mínir svífa
í solarskinið bjarta.
Helgi Sæmundsson.
—o—
BÓKALESTUR
Æ S K U N H A R.
óefað má telga söguöldina eitt
allra viðburðarikasta tímabil ís-
lenzku þjóðarinnar. Einkum þó hvað
menntun og andlegum þroska viðvíkur.
Þá tóku landsmenn að notfæra sér
hina dásamlegu uppfyndingu mannsand-
ans; ritlistina. Klaustur voru sett
á stofn víðsvegar^um landið, en ^au
komu síðan upp skólum hvert í sínu
lagi, svo til þeirra má rekja menn-
ingarsö^u landsmanna, Einstakir menn
tókust a hendur að skrifa frásagnir
frá fyrri tímum o^ æfiágrip merkra
manna, sem hafa siðan skipað þjóð-
inni frægðarsess í bókmenntum heims-
ins. - Það eru bækurnar, sem íslenzk
æska hefir átt greiðastan aðgang að
og jafnvel eingöngu framan af. - Þær
voru til á hverju heimili hinna dreif-
ðu^byggða. Það voru rit, sem gáfu
ljósa hugmynd um byggingu landsins