Kosningablað Alþýðulistans - 30.01.1938, Blaðsíða 1
KOSNINGABLAÐ
Alþýðulistans
Sig’uíirdi, 30. janúar 1938.
Baráttusætin.
Við hverjar kosningar eru alltaf
talin áhöld um hversu mörg sæti
hver listi fær og veltur á því hver
meirihluta-aðstöðu fær að afstöðn-
um kosningum. Þessi sæti eru
kölluð baráttusæti og er í þau
sæti valið með sérstöku tilliti til
persónulegra hæfileika, vinsælda
og almennrar félagsstarfsemi.
í þetta skifti er um að ræða 3
baráttusæti, en þau skipa:
Af A-lista Jón Jóhannsson
Af B-lista Sig. Tómasson
Af C-Iista Jðn Gíslason
Vitanlega verður siglfirsk alþýða
ekki i neinum vafa um það hvern
þessara manna hún á að styðja og
henni ber að styðja, en það er
Jón Jóhannsson, formaður Verka-
mannaféiagsins »Þróttur«. Þó að
Jón Jóhannsson sé ungur maður
liggja þegar eftir hann fjöldi starfa
í þágu siglfirskra verkmanna og
alþýðu allrar. Jón Jóhannsson er,
eins og Otto Jörgensen komst að
orði, farsæll foringi og gæfusamur.
Gæfa hans og farsæld liggur í því
að hafa verið fremsti forgöngu-
maður í því að sameina siglfirska
alþýðu á ný í baráttunni fyrir
bættum lífskjörum, enda nýtur
hann óskoraðs trausts verkamann-
anna í »Þrótti«, sem í einu hljóði
kusu hann hann formann sinn fyrir
næsta ár, vegna þess að þeir töldu
sig þurfa trausta og örugga for-
ystu í þeirri baráttu, sem fyrir
höndum er. — En vegna réynslu
kusu þeir til þess Jón Jóhanns-
son.
Sig. Tómasson er að mestu óráð-
in gáta, að vísu nokkuð vinsæll,
og virðist persónulega hafa vilja
til vinstri samvinnu. En þeir sem
þekkja Sigurð vita það, að hann
muni bresta kjark til þess ef á
reynir, að standa í andófi gegn
íhaldsöflum Framsóknar hér á Siglu-
firði, undir forystu Þormóðs Eyj-
ólfssonar, enda fullyrt að hann eigi
að vera nokkurs konar skrautfjöð-
ur til þess að fleyta inn Hannesi
Jónassyni, sem á sinum tima varð
að hverfa úr bæjarstjórn Siglu-
fjarðar áður en kjörtímabili hans
var lokið.
Þriðji maður i baráttusæti er Jón
Gíslason, sem er 3. maður áC-list-
anum. Jón Gíslason hefir vaxið
upp úr stétt sinni. Frá því að vera
alþýðumaður og halda áfram að
styðja sína stétt, hefir hann geng-
ið á mála hjá íhaldi og afturhaldi
bæjarins. Þeim manni, sem svikið
hefir sína stétt, getur alþýðan al-
drei treyst. Alþýðan verður að
krefjast þess að hver maður af
hennar stétt, þó hann fái aðstöðu
til aukinnar menntunar og þar með
nýtt vopn til sóknar fyrir betri kjörum,
haldi áfram að berjast fyrir bætt-
um kjörum sinnar eigin stéttar, en
gangi ekki á mála hjá andstæð-
ingum hennar og fjendum, íslensku
íhaldi.
Þetta vérður siglfirsk alþýða að
muna við kjörborðið í dag og
þessvegna getur enginn alþýðu-
maður léð Jóni Gíslasyni atkv. sitt.
Um þessa 3 menn er að velja:
Jón Gíslason, Sig. Tómasson eða
Jón Jóhannsson.
Siglfirskiv verkamenn og konur
verða ekki í neinum vafa um það
hvern þessara þriggja manna þau
eiga að velja.
Félagar Jóns úr »Þrótti« hafa
strengt þess heit, að senda hann
hann inn sem 5. mann af A-list-
anum og þar með skapa verka-
mannameirihluta í bæjarstjórn
næstu 4 ár. Verkamenn og félagar
í »Þrötti« segja ekki meira en þeir
standa við.
Kjörorð þeirra er: Jón Jóhanns-
son í bœjarstjórn. Verkalýdsmeiri-
hluta i bæjarstjórn.
Alþýðuflokksmenn og konur!
Munið að með kosningu Jóns
Jóhannssonar fær Alþi'jöuflokkurinn
3 menn í bæjarstjórn Siglufjarðar.
ÖS! eift íyrir sigri A-iistans.
Erlendur Þorsteinsson.
Ó h a m i n g j u
B-listans
verður aSIt að vopni*
Á Framsóknarfundinum 27. þ. m.
lýsti Þormóður Eyjólfsson því yfir
að Erlendur Þorsteinsson hefði með
ofríki hindrað það, að kvikmynd
er KEA og KRON eiga af jöfnu
Verkamannameirihluta í bæjar-
LAlhlStíuKÁSAFN
227277
stjórn. Kjósum öll