Fréttamolinn : óháð fréttablað - 29.01.1985, Page 2
Fréttamolinn
Óháð fréttablað
Útgefandi: Fréttamolinn, Þorlákshöfn
Ritstjórn:
Dagbjartur R. Sveinsson:
Bridge
símar 99-3987 & 99-3617
Tölvusetning, filmugerð og prentun: Eyjaprent hf.
Ýtt úr vör
Með þessu fyrsta eintaki Fréttamolans hefst til-
raun til að hleypa af stað reglulegri útgáfu frétt-
ablaðs hér í bæ, en það hefur verið reynt áður af
öðrum aðilum með misjöfnum árangri.
Ekki hafa aðstandendur F.M. mikla reynslu í
blaðaútgáfu og vonandi tekur þú lesandi góður tillit
til þess í byrjun, en blað þetta munum við reyna að
vinna eftir bestu getu. Stefnt er að því að flestir finni
eitthvað við sitt hæfi.
Óumdeilanlega hlýtur að teljast nauðsynfyrir stað
á stærð við Þorlákshöfn að eiga sitt eigið fréttablað
þar sem lesendur geta fylgst með því helsta í
bæjarlífinu, málefnum staðarins og næsta nágrennis.
Lesendum skal bent á að F.M. er blað okkar allra
og öllnm opið. Viljum við því hvetja alla þá er telja sig
hafa eitthvað til að koma á framfæri, svo sem
athugasemdum, fyrirspurnum eða einhverju frétt-
næmu, að hafa samband.
Útgáfa F.M. er eingöngu fjármögnuð með auglýs-
ingum og treystum við á áframhaldandi áhuga
auglýsenda, en þeir hafa tekið okkur með afbrigðum
vel.
F.M. er gefinn út í 2000 eintökum og dreift
ókeypis í Þorlákshöfn/Ölfus, Vestmannaeyjum,
Hveragerði, Selfossi, Eyrarbakka, Stokkseyri,
Hellu, Hvolsvelli, Vík og víðar.
Stefnt er að því að F.M. komi út annan hvern
fimmtudag.
Að lokum viljum við þakka þeim sem stutt hafa
okkur í efnisöflun, svo og öllum þeim sem gert hafa
það í öðru formi.
Kveðjur
Hjörleifur og Einar.
------i
RAFVÖR SF
ÞORLÁKSHOFN
Raflagna- og raftœkjaverkstœði
Sími 99-3993 — Box 33
Veitum alhliða raflagna og
viðgerðarþjónustu.
Höfum til sölu Candy-þvottavélar,
perur, lampa, kastara og fleira.
Rafvör s.f.
Selvogsbraut 4
Bridgefélag Þorlákshafnar
var formlega stofnað 13 - 2 ’83.
og voru stofnfélagar um 30
talsins. Formaður var kosinn
Stefán Garðarsson og með-
stjórnendur Ragnar Óskars-
son, Hannes Gunnarsson, Þor-
valdur Eiríksson og Dagbjart-
ur R. Sveinsson.
Félagið hefur verið mjög
virkt frá upphafi. Spilað hefur
verið á sunnudagskvöldum
frá byrjun september og út
maí en hlé yfir sumarmánuð-
ina.
Síðastliðið haust var byrjað
16-9 ’84 með einskvölda
tvímenningi og urðu þessi
þrjú pör efst af sjö pörum.
1. Hannes - Ragnar . 99 stig
2. Grímur - Örn .... 97 stig
3. Einar - Þráinn . . . 94 stig
Síðan var aftur einskvölda
tvímenningur 23-9 ’84 og
mættu þá 11 pör til leiks.
Meðalstala var 165 stig.
Efstir urðu:
1. Sigfús - Vilhj. .. 195 stig
2. Kristján - Georg . 192 stig
3. Ragnar - Hannes . 174stig
Firmakeppnin er haldin ár-
lega til fjáröflunar og var að
þessu sinni 30 - 9 ’84. Var
spilaður tvímenningur. í fyrsta
sæti varð Mát h.f. spilarar
Ragnar og Hannes og fengu
þeir 187 stig. í öðru sæti varð
Meitillinn h.f. spilarar Brynj-
ólfur og Steini með 185 stig.
Og í þriðja sæti Landsbanki
íslands spilarar Sigfús og Vil-
hjálmur með 182 stig.
Hausttvímenningur var spil-
aður næstu 3 sunnudaga. Þrjú
efstu pör voru.
1. Leif - Brynjólfur
2. Ragnar - Hannes
3. Hólmar - Bjarnþór
Hraðsveitakeppni félagsins
byrjaði 28 -10 ’84.1 fyrsta sæti
varð sveit Stefáns Garðarsson-
ar (Stefán, Valdi,Leif og
Brynjólfur). í öðru sæti sveit
Gríms Magnússonar (Grímur,
Örn, Nói og Sigmar). Og í
þriðja sæti sveit Ragnars Ósk-
arssonar (Ragnar, Hannes,
Einar og Þráinn).
Jólatvímenningur félagsins
var dagana 9 og 16 des. ’84.
Þar voru efstu pör:
Hrafn - Rúnar .... 238 stig
2. Ragnar - Hannes . 233 stig
3. Gísli - Sigmar .. 228 stig
Helgin 15 - 16 des. var ansi
viðburðarrík hjá félaginu því
laugardaginn 15 var haldin
aðalfundur í Kiwanishúsinu,
með borðhaldi,á eftir var kos-
in ný stjórn sem er þannig
skipuð: Sævar Guðjónsson
formaður, Þorvaldur Eiríks-
son, Ragnar Óskarsson, Örn
Friðgeirsson og Guðmundur
Óskarsson meðstjórnendur.
Eftir aðalfund var borðhald
og komu þá makar og snæddu
öndvegis mat sem nýbakaður
formaður bar fram. Til gamans
má geta þess að á hverju borði
var glas til þess að taka við 10
kr. frá hverjum þeim sem
minntist á bridge. Voru eigin-
konurnar mjög duglegar að
rétta mönnum glasið ef þeir
gleymdu sér. Sennilega var
þetta drýgsta fjáröflun félags-
ins á síðasta ári.
Starfið hófst á nýja árinu af
krafti með einmenningskeppni
13-1 ’85 sem var vel sótt.
Komu mörg ný andlit og var
fjöldinn það mikill að spila
varð í tveimur riðlum.
Úrslit urðu:
A-riðill.
1. Páll Þórðarson . . 105 stig.
2. Jón Eiríksson . . 103 stig.
3. Jón Árnason .... 98 stig
B-riðill
1. Sigmar Björnss. . 120 stig
2. Bjarnþór Eiríkss . 107 stig ,
3. HólmarGunnarss. . 99 stig
Sunnudaginn 20-1 ’85 var
haldinn einskvölda tví-
menningur og var fjölmennt
þá eins og í einmennings-
keppninni.
Efstu pör voru:
1. Ragnar - Hannes . 266 stig
2. Sigfús - Vilhj. .. 260stig
3. Hólmar - Bjarnþ . 250 stig
Eins og að framan segir
hefur aðsókn verið mjög góð
eftir áramót. Vonandi fjölgar
enn því mikið er af áhugafólki
sem ekki hefur komið enn.
Viljum við hvetja fólk til að
koma og sjá hvað er um að
vera því fylgir engin kvöð og
sáralítil áreynsla.
Sunnudaginn 3. febrúar
hefst 5 kvölda tvímenningur
og eftir það aðalsveitakeppni.
DALLI
Frá Egilsbúð
Starfsemin 1984
Eins og undanfarin ár ’ ar
safnið opið 18 tíma á viku allt
árið, nema í sumarfríi starf-
sfólksins.
Á árinu voru keyptar rúm-
lega 200 bækur, en safnaukinn
varð mikið meiri vegna góðra
gjafa, sem því bárust.
Hjónin Sigurlaug Guðm-
undsdóttir og Þorsteinn Sig-
valdason færðu því 60 árganga
tímarit og þau Jórunn Valdi-
marsdóttir og Páll Þórðarson
gáfu því tímaritasafn sitt. Hve
stór sú gjöf er vitum við í
rauninni ekki ennþá, en búið
er ganga frá um 1200 árgöng-
um sem er aðeins hluti gjafar-
innar.
Bókareign var í árslok um
4400 bindi, en útlánin á árinu
urðu 8755 eða sem svara því
að allt safnið hafi verið tvílán-
að.
í mars sl. veiddist Sædjöfull
á Sæunni Sæmundsdóttur og
var hann gefinn safninu, en
Glettingur h.f. greiddi kostn-
aðinn við að setja hann upp.
Fiskur þessi er mjög sérk-
ennilegur og afar fágætur.
Eiríkur Einarsson frá Þór-
oddsstöðum í Ölfusi gaf okkur
skeljasafn sitt, sem er um 230
tegundir greindra og merktra
skelja og kuðunga.
Þá gáfu þau hjónin Jórunn
og Páll safninu náttúrugripa-
safn sitt, en sökum húsnæðis-
leysis er enn ekki hægt að taka
á móti nema örlitlum hluta
þess.
Þau gáfu og nokkrar trérist-
ur eftir Pál.
Á árinu 1983 voru 850 ár frá
fæðingu heilags Þorláks, sem
staðurinn hér er kenndur við.
Af því tilefni setti safnið upp
sýningu honum helgaða.
Sýning þessi var hér á safn-
inu í desember ’83 og janúar
’84 en var síðan Iánuð um tíma
bæði að Skálhotlti og Landa-
koti.
Frá 17. til 25. nóvember hélt
Katrín H. Ágústsdóttir sýn-
ingu á vatnslitamyndum. Ekki
var tekin leiga fyrir að sýna
myndirnar, en listakonan gaf
safninu eina þeirra.
Hinn 7. og 8. desember
gekkst Samband íslenskra
sveitarfélaga og Bókavarða-
félag íslands fyrir námskeiði
fyrir bókaverði lítilla safna.
Námskeiðið var haldið á
Selfossi, en hluti þess hér í
safninu.
G.M.
B^^ngdvöruverslun
Hverogerdis
Mikið úrval af hverskonar byggingavörum.
Einnig ódýr vinnufatnaður.
Regnfatnaður frá MAX.
Gúmmístígvél.
Prjónagarn.
Hespulopi.
Komið að sjá
Alltaf eitthvað nýtt að fá.
BVH
Austurmörk 4 Hveragerði S: 4600