Fréttamolinn : óháð fréttablað - 29.01.1985, Page 6

Fréttamolinn : óháð fréttablað - 29.01.1985, Page 6
[ FM Frétta. olin Stefán Gardarsson: SVEITARSTJ ÓRNARMÁL Stefán Garðarsson, sveitarstjóri Ölfushrepps. Ritstjóri við þetta ágæta blað hefur farið þess á leit við mig að ég skrifi nokkrar línur í blaðið um sveitarstjórnarmál. Niðurstöður fjárhagsáætl- unar 1984 urðu kr: 33. milljón- ir. Til eignabreytinga var áætl- að að verja 12. milljónum króna. Fjárhagsáætlun þessi virðist hafa staðist all vel i öllum megin atriðum. Flelstu framkvæmdir á árinu voru, bygging grunnskóla, gang- stéttargerð, holræsagerð við Hafnarskeið, skólplagnir í Básahrauni og Norður- byggð, lagning vegar í Árbæ- jarhverfi svo og aðrar fram- kvæmdir. Hreppsnefnd ákvað að bjóða út framkvæmdir við Grunnskólann. Þrjú tilboð bárust og var lægsta tilboði tekið sem var frá Stólpa h.f. frá Selfossi sem hljóðaði upp á rúmlega 4,2 milljónir. Tilboð þetta var 600.000 krónum lægra en næsta tilboð sem var frá byggingarfélaginu Stoð s.f. Þorlákshöfn. Bygging hússins hófst í júní og lauk að mestu um áramót. Það sem var gert í þessum áfanga var að 180 ferm. voru fullgerðir en fjöl- nýtisalur að stærð 400 ferm. gerður fokheldur. Nú um ára- mót hófst kennsla í fullgerða hlutanum og hefur aðstaða kennara og nemenda stórlega batnað þó að mikið vanti á að hún sé fullnægjandi. Heildar byggingarkostnaður við þennan verkhluta er um 7,5 milljónir þó skal tekið fram að fullnaðar uppgjör hef- ur ekki farið fram. Umsjónar- maður verksins f.h. Ölfus- hrepps var Sverrir Sigurjóns- son byggingarfulltrúi og leysti hann sitt verk vel af hendi eins og honum var von og vísa. Aðrar framkvæmdir gengu vel og stóðust all vel áætlanir. Innheimta gjalda gekk væg- ast sagt mjög illa á árinu 1984, þrátt fyrir að útsvarsálagning hafi verið lækkuð úr 12,1% í 10,5% og verulegur afsláttur var gefin á fasteignagjöldum. Heildar innheimtuhlutfall var um 67% sem er vægast sagt hörmulegt. Þessi lélega inn- heimta gerir það að verkum að vaxtagjöld aukast verulega og erfiðara verður að standa í skilum með þær skuldbinding- ar sem hreppurinn hefur tekið á sig. Bókhaldsleg staða Ölfus- hrepps er hins vegar all góð. Má ætla að veltufjárhlutfall sé 1 á móti 3. Ég vil nota þetta tækifæri og hvetja þá aðila sem skulda Ölfushreppi gjöld að gera full skil fyrir 10. febrú- ar en þá verða þær skuldir sem eru í vanskilum afhentar lög- fræðingi til innheimtu. Hreppsnefnd hefur nú gert sína árlegu fjárhagsáætlun. í fjárhagsáætlun fyrir árið 1985 er gert ráð fyrir sömu álagning- arprósentu og á árinu á undan. Fasteignagjöld hinsvegar og aðrir tekjustofnar hækka um 25% á milli ára. Þá er gert ráð fyrir að rekstrarútgjöld hækki um 25 - 28%. Heildartekjur eru áætlaðar kr. 43,8 milljónir þar af eru U/A og F/A gjöld um 81% af tekjum. Rekstrar- útgjöld eru áætluð um 30 mill- jónir 68,46%. Til eignabreyt- inga frá rekstri eru því um 13,8 milljónir eða 31,54% af tekj- um sem telja verður gott hlut- fall miðað við önnur sveitarfé- lög en dæmi eru til um sveitarfélög sem hafa ekki tekjur fyrir rekstrarútgjöld- um. Ekki hefur verið gengið frá framkvæmdaáætlun fyrir árið 1985, en það er víst nægt pláss fyrir þessa aura og má nefna t.d. byggingu á íbúðum fyrir aldraða, sem teljaverður mjög aðkallandi verkefni. Ekki getum við Þorláks- hafnarbúar horft upp á þetta fólk sem byggði þetta fallega þorp upp, hrökklast í burtu. Bygging Grunnskólans en þar er enn langt í land, byggingu á íþróttahúsi, heilsugæslu, fél- agsheimili, gatnaframkvæmdir og frárennslismál, en eins og allir vita rennur næstum allt skólp frá bænum í höfnina. Hreppsnefnd mun á næstu dögum taka ákvörðun um framkvæmdir 1985. Rekstur hitaveitu Þorláks- hafnar hefur gengið vel á árinu 1984. Gjaldskrá veitunnarhef- ur hækkað um 5% takið eftir 5% frá því í ágúst 1983. Búast má við því að á næstu dögum verði þó nokkur hækkun vegna aukinnar verðbólgu. Boruð var ný hola á árinu. Framkvæmdir við það verk Holræsagerð við Hafnarskeið Nýbygging grunnskóla Þorlákshafnar gengu ágætlega. Gefur holan af sér um 40 sek/lítra af 106 C heitu vatni. Trúlega verður hola þessi tengd á árinu 1985. Heildarkostnaður við þessa framkvæmd var um 5,5-6 milljónir króna en endanlegt uppgjör hefur ekki farið fram. Ég læt hér staðar numið, vonandi fæ ég aftur tækifæri til að skrifa í þett ágæta blað og tilefni til að svara spurningum frá lesendum. Lifið heil. Stefán Garðarsson Sveitarstjóri Aflahæsti báturinn í Þorlákshöfn, Höfrungur III Vetrarvertíð hér í Þorláks- höfn fór fremur rólega af stað upp úr áramótunum. Stærri bátar byrjuðu á netum rétt fyrir þrettándann. Smærri bát- ar réru með línu og einstaka bátar fóru á troll. Aflabrögð hafa verið með alversta móti allt fram undir miðjan mánuðinn, þó hafa línubátar fengið þokkalegan afla. Heldur fór nú að glæðast í netin upp úr miðjum mánuð- inum, en 19. janúar lönduðu ísleifur IV. 30.5 lestum og Jóhann Gíslason 22,2 lestum af ufsa. Eru menn vongóðir um að seinni partur mánaðar- ins verði skárri en sá fyrri. Engar togaralandanir hafa verið á árinu, þar sem bæði Þorlákur og Jón Vídalín hafa verið í klössun á Akureyri. Afli trollbáta hefur verið mjög lélegur. Ekki hefur verið tíðarfari um að kenna þó lítill afli berist á land, því veður hafa verið með albesta móti þó smá bræl- uskot hafi komið dag og dag. Aflahæstu bátar þann 20. janúar voru: 1. Höfrungur III. 58,2 lestir. 2. ísleifur IV 51,9 lestir. 3. Jóhann Gíslason 37,6 lestir. Framantaldir bátar eru allir á netum. Þ.G.S. ÞVOTTAHÚSIÐ HVERAUN | D YNSKÓGUM 5 HVERAGERÐI -I 'VANDAÐAR VÉLAR FLJÓT OG GÓÐ ÞJÓNUSTA REYNIÐ VIÐSKIPTIN Hef opið alla daga frá kl. 2-6. SIMA 99-4332. TEKIÐ Á MÓTI ÞVOTTI í VERSLUNINNI HILDI í ÞORLÁKSHÖFN

x

Fréttamolinn : óháð fréttablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttamolinn : óháð fréttablað
https://timarit.is/publication/1719

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.