Sambandstíðindi - 24.11.1980, Page 1
sambands
TÍÐINDI
ÚTG: SAMBAND ÍSL. BANKAMANNA
LAUGAVEGI 103, 105 REYKJAVÍK
PÓSTHÓLF 5506
19.tbl. 11. árg.
Fjórblöðungur 7/1980.
2 4.nóv.19 80.
SATTATILLAGA
Sáttanefnd ríkisins í deilu
SlB og bankanna, skipuð þeim
Vilhjálmi Hjálmarssynd, Hrafni
Magnússyni og Jóni Erlingi
Þorlákssyni, lagði fram sátta-
tillögu í deilunni hinn 21.
nóvember. Samkvæmt lögum fer
fram allsherjaratkvæðagreiðsla
um tillöguna og hefur hún ver-
ið ákveðin dagana 27. og 28.
nóvember 1980. Jafnframt
frestaði sáttanefnd boðuðu
verkfalli Sambands íslenskra
bankamanna til 8. desember.
Sáttatillagan er að grunni til
samningur sá, sem felldur var
í atkvæðagreiðslu fálagsmanna
SÍB í október. Samningur sá
var rækilega kynntur fyrir
atkvæðagreiðsluna 14. og 15.
október. Hér verður því ekki
tíunduð þau nýmæli sem sá
samningur fól í sér, heldur
einvörðungu gr-eint frá þeim
atriðum, sem sáttatillagan
felur í sér, umfram samnings-
drögin, sem felld voru.
LAUNALIÐURINN
Launaliður tillögunnar gerir
ráð fyrir, að vísitölugólfið
svonefnda, sem samið var um
3. október, falli inn í launa-
skalann. Það hefur í för með
sér eftirtaldar hækkanir:
Lfl. 3.1.
" 3.2.
" 3.3.
" 4.1.
8 þúsund kr.
6 þúsund kr.
4 þúsund kr.
2 þúsund kr.
Þá verða eftirtaldar breytin-g-
ar á lfl. 7.2. til 9.1. á
grundvelli viðmiðunar við BHM,
sem tilgreint var í samkomu-
laginu frá 3. október:
Lfl.
Tf
7.2.
7.3.
8.1.
600 kr.
1800 kr.
2500 kr.
8.2.
8.3.
9.1.
2600 kr.
2100 kr.
1100 kr.
Þá gerir sáttatillagan ráð
fyrir 2000 kr. hækkun á lfl.
9.3. og 10.3. og 3000 króna
hækkun á lfl. 11.3. og 12.3.
Ennfremur gerir sáttatillagan
ráð fyrir, að laun hækki um
1.7 prósent frá 1.11. að
telj a.
STARFSALDUKSHÆKKANIR
Sáttatillagan gerir ráð fyrir
breytingum á starfsaldurshækk-
unum þannig, að eftir 10 ára
starf í banka er álag á laun
6% (var 5% í samkcmulaginu
fr-á 3.10), eftir 15 ára
starf er álagið 7% og eftir
20 ára starf 8%. I samkomu-
laginu frá 3.10. var álag
6% eftir 12 ár og 7% eftir
15 ár.
TRYGGINGAR
1 kafla 7, grein 7.1.2. lið
3 kemur ný málsgrein, þess
efnis , að láti látinn starfs-
maður ekki eftir sig maka?
en einstæð móðir hans, ógift
systir hans eða annar ógiftur
aðili hafi sannanlega annast
heimili hans um árabil fyrir
andlát hans , þó eigi skemur en
5 ár, skuli greiða bætur að
fjárhæð kr. 6.100.000.--
BARNSBURÐARFRl
Ný málsgrein kemur í grein
7.6.1., sem fjallar um barns-
burðarleyfi. Málsgreinin er
svona: "Ef fastraðin kona
óskar vegna barnsburðar að
taka hálf laun í 6 mánuði í
stað fullra launa í 3 mánuði,
sbr. 1. málsgr., skal viðkorn-
andi banki leitast við að Framh.
verða við þeirri ósk". bls.2
UMSJÓN: Vilhelm G. Kristinsson, Björg Árnadóttir.