Sambandstíðindi - 24.11.1980, Síða 2
mmmmnvmmmmnmwmmummmmm^mmmm
Frarah. af fors.
SKIPULAGSBREYTINGAR
Grein 12.1.1. hljóöar svo í
sáttatillögunni: "Leita skal
samkomulags milli banka ann-
ars vegar og viökoir.andi
starfsmannafélags og/eöa SÍB
hins vegar um meiri háttar
breytingar á skipulagi,
tæknivæöingu, opnunartíma,
umhverfi og starfsaöstööu.
Skulu fulltrúar starfsmanna fá
aÖ fylgjast meö undirbúningi
breytinga, ákvaröanatöku og
framkvæmd breytinganna.
I þeim bönkum þar sem vinna
15 manns eöa fleiri , veröi
komiö á starfsmannaráöum, sem
fjalli um starfstilhögun og
fleiri mál, er varÖa starfs-
mennina, Sett verði reglugerð
um skipan og verkefni starfs-
mannaráða, sem unnin er af
nefnd skipaðri fulltrúum
beggja samningsaðila."
LlFEYRISSJÖÐIR O.FL.
Sáttanefndin tók bókanir samn-
ingsins frá 3. október og
setti þær inn í sáttatillögu
í sér kafla, sem heitir
14. ÖNNUR ÁKVÆÐI. Breyting er
gerö á grein um hóptryggingu
félagsmanna í samráöi viö
stjórnir lífeyrissj6öa þannig,
aö viö bætist ný setning:
"Skal slíkum tilmælum beint
til sjóöanna fyrir 1. janúar
1981.
Grein 14.1.5. fjallar um líf-
eyrissjóöi, þar sem aðilar
eru sammála um aö beina því
til stjórna lífeyrissjóða rík-
isbankanna og viökomandi sjóö-
félaga aö viö endurskoöun
á reglugerð um lífeyrissjóöina
verði tekin upp 95 ára lífeyr-
isregla. Ný setning kemur þar
inn , svohljóðandi: "Aðrir
bankai' meö 8 starfsmenn eöa
fleiri tryggi áfram sambæri-
leg réttindi og bætur til
handa sínum starfsmönnum og
starfsmenn ríkisbankanna
njóta.
GILDISTlMI
Sáttatillagan gerir ráö fyrir
að kjarasamningur gildi frá
1. ágúst 1980 til 31. ágúst
1981.
Laun eiga að greiðast 1. des.
Þrálátur orðrómur hefur gengið
innan bankanna að undanförnu
þess efnis, aö vegna möguleika
á verkfalli bankamanna I des-
ember, muni bankarnir ekki
greiða út laun hinn 1.12.
Rétt er aö benda félagsmönnum
sambandsins á, að bönkunum er
ekki stætt á aö greiða ekki
laun hinn 1.12. og er ótti
við slíkt ástæöulaus meö öllu.
Rétt mun vera, aö bankarnir
hafi látiö kanna, hvort þaö
aö greiða ekki umsamin laun
hinn 1.12. gæti staðist laga-
lega séö. Ekki er vitað til
þess aö niðurstöður þeirrar
könnunar liggi fyrir hjá bönk-
unum.
Hitt er annaö mál, aö SÍB hef-
ur líka kannað þessa hliö
málsins og þaö er skoðun þess
og þeirra sem SlB hefur leitað
til, að bönkunum sé á engan
hátt stætt á að greiða ekki
laun hinn 1.12. 1980. Annað
sé lögbrot.
Rétt er að benda starfsmönnum
á, aö samkvæmt kjarasamningnum
frá 1977, sem enn er farið
eftir, og gildir þangaö til
annar samningur liggur fyrir,
eða verkfall er hafiö , stendur
skýrum stöfum aö laun skuli
greiða fyrirfram til fastráð-
inna starfsmanna, fyrsta hvers
mánaöar, nema um annað sé sam-
ið viö viökomandi starfsmanna-
félag. Komi til þess , sem
ólíklegt verður að teljast, að
bankarnir greiði ekki laun hinn
1.12., eins og þeim er skylt,
mun sambandið grípa til rót-
tækra ráðstafana og verja rétt
félagsmanna sinna með öllum
tiltækum ráðum. Þess má að
lokum geta, að samninganefnd
SÍB lét bóka þá skoÖun sína
á fundi með sáttanefnd á dögun-
um, cj.ð bönkunum væri ekki á
nokkurn hátt leyfilegt að
greiöa ekki laun hinn 1.12.
og voru harðlega fordæmd þau
vinnubrögð að hræÖa fólk með
hótunum um slíkt.
mmmmmmmmmmmm^^^^mmmm^^^