Fréttablaðið - 02.11.2022, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 02.11.2022, Blaðsíða 22
Mildari útgáfa tvinnbílsins verður nú aðeins í boði bein- skipt með 1,4 lítra vél en Strong Hybrid-tvinnbíll- inn kemur aftur á móti með 1,5 lítra vél og þá aðeins með sjálfskipt- ingu. Grunnverð: 6.540.000 kr. Hestöfl: 135 Tog: 138 Nm Hröðun 0-100 km: 13,5 sek. Hámarkshraði: 175 km L/B/H: 4.300/1.785/1.585 mm Hjólhaf: 2.600 mm Veghæð: 175 mm Farangursrými: 293 l Eigin þyngd: 1.235 Eyðsla bl. ak: 5,8 l CO2: 131 g/100 km Suzuki S-Cross Strong Hybrid KOSTIR n Vel búinn n Aðgengi n Útsýni GALLAR n Farangursrými n Sjálfskipting Reynsluakstur Njáll Gunnlaugsson njall @frettabladid.is Það ríkir mikil samkeppni í flokki meðalstórra jepplinga og því skiptir miklu máli að bjóða upp á tvinnútfærslur sem núna er komin í Suzuki S-Cross. Suzuki kynnti S-Cross með and- litslyftingu í fyrra og á þessu ári kemur hann í fullri tvinnútgáfu. Hann er þá búinn 1,5 lítra bensín- vél og og 140V lithium-rafhlöðu. Vélin er 115 hestöfl og skilar 138 Nm togi gegnum sex þrepa sjálf- skiptingu, og fær svo aukalega 33 hestöfl frá rafmótor sem er tengdur beint við skiptingu bílsins. Munurinn á mildari tvinnút- gáfunni og þessum bíl liggur í bæði vél og gírkassa. Mildari útgáfan er með minni 1,4 lítra vél og verður núna aðeins boðin með beinskipt- ingu en tvinnbíllinn kemur aftur á móti með 1,5 lítra vél og aðeins með sjálfskiptingu. Sjálfskiptingin er samt ekki eiginleg sjálfskipting því að hún notast við beinskipt- ingu sem skiptir fyrir ökumanninn og þýðir að skiptingarnar taka mun meiri tíma. Í raun og veru er mildari tvinnútgáfan fjórum sekúndum fljótari í hundraðið þrátt fyrir minni vél en tvinnbíll- inn tekur 13,5 sekúndur að komast þangað. Sem betur fer er hægt að venjast skiptingunni og jafnvel láta hana skipta með því einu að slá aðeins af og skiptir þá bíllinn um gír þegar maður vill það og með þægilegri máta en ef gjöfinni er einfaldlega haldið í botni. Í mildari tvinnútgáfunni er allur búnaðurinn frammi í vélarsalnum en í þessum bíl er hluti hans undir gólfi farangursrýmis. Það minnkar 430 lítra farangursrýmið niður í 293 lítra þar sem allt plássið undir gólfi þess fer í tvinnbúnaðinn. Fyrir vikið er plássið meira á pari við smábíl frekar en jeppling en á móti kemur að það er aðgengi- legt. Tvinnkerfið í S-Cross Strong Hybrid er ekki að nota rafmagnið mikið til að taka stað á því ein- göngu. Það sér frekar um að bæta við sínum 33 hestöflum í viðbót þegar á þarf að halda og slekkur stundum á vélinni þegar bíllinn er kominn á ferð en þá aðeins ef hann þarf ekki að reyna mikið á sig. Að ganga um bílinn og nota er blátt áfram og ekkert sem kemur sérstaklega á óvart. Hurðirnar opnast vel og það er þægilegt að setjast inn og sætin eru mátulega stór til að vera ekki óþægileg. Rými er nokkuð gott nema að höfuð- rými gæti verið örlítið meira aftur í og eins fótarými fyrir miðjufar- þega. Efnisval er eins og við er að búast hjá Suzuki, frekar hrátt en um leið hannað til að endast og er vel samansett. Útsýni er með betra móti og þar sem hann er búinn bæði bakkmyndavél og fjarlægðar- skynjurum að framan og aftan er maður vel settur. Óhætt er að segja að það er ekkert að búnaði Vel búin viðbót Grunnverð: 6.540.000 kr Hestöfl: 135 Tog: 138 Nm Hröðun 0-100 km: 13,5 sek Hámarkshraði: 175 km L/B/H: 4.300/1.785/1.585 mm Hjólhaf: 2.600 mm Veghæð: 175 mm Farangursrými: 293 l. Eigin þyngd: 1.235 Eyðsla bl. ak: 5,8 l. CO2: 131 g/100 km Suzuki S-Cross er nú kominn í fullri tvinnútgáfu sem á að þýða minni eyðslu. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON Bensínvélin er 1,5 lítra og 115 hestöfl ein og sér en tvinnbúnaðurinn er við sjálfskiptinguna hægra megin. Þar sem tvinnbúnaðurinn er undir farangursrými er ekkert aukapláss þar. bílsins í grunninn og er vel í látið með hlutum eins og skynvæddum hraðastilli, akreinavara, umferðar- merkjalesara, árekstrarvara og blindblettavörn. Það er einna helst sjö tommu skjárinn sem mætti vera stærri og hraðvirkari og þótt Apple CarPlay og Android Auto sé staðalbúnaður virkar það aðeins með snúrutengingu. Suzuki S-Cross kostar í grunn- útgáfu sinni 6.540.000 kr. sem er svipað og nýr Toyota Corolla Cross sem hann keppir við. Þeir eru báðir í dýrari kantinum fyrir bíla í þessum flokki en S-Cross er nokkuð vel búinn í grunnút- gáfunni. Fyrir aðeins 300.000 kr. í viðbót er svo hægt að fá hann með póleruðum felgum, alvöru leið- sögukerfi, leðuráklæði, sólþaki og stærri níu tommu margmiðlunar- skjá með 360 gráðu myndavél. n 8 BÍ L A BL A ÐI Ð 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.