Fréttablaðið - 02.11.2022, Blaðsíða 1
2 4 1 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 2 . N Ó V E M B E R 2 0 2 2
Elskar að fara
í sundlaugarnar
Ljúfsárt en
lingert leikrit
Lífið ➤ 18Menning ➤ 15
VERTU
GLEÐIGJAFI
Lisiecki
spilar Chopin
3. NÓVEMBER KL. 19:30
MIÐASALA Á SINFONIA.IS
Skýrslan um sölu Íslands-
banka, sem ekki verður birt
fyrr en í fyrsta lagi eftir helgi,
er ekki eina skýrslan sem erf-
itt virðist vera að draga fram í
dagsljósið um verkefni tengd
fjármálaráðuneytinu. Forseti
Alþingis neitar að afhenda
fjölmiðlum greinargerð um
starfsemi Lindarhvols ehf.
olafur@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Birgir Ármannsson,
forseti Alþingis, neitar að afhenda
Viðskiptablaðinu og f leiri aðilum
greinargerð setts ríkisendurskoð-
anda um starfsemi Lindarhvols
ehf., sérstaks félags á vegum fjár-
málaráðuneytisins, sem fór með
eignir úr þrotabúum föllnu bank-
anna.
Þetta gerir Birgir þrátt fyrir að
forsætisnefnd þingsins hafi í apríl
á þessu ári samþykkt að af henda
greinargerðina og sent bréf því til
staðfestingar til fjármála- og efna-
hagsráðuneytisins.
Ríkisendurskoðun og stjórn
Lindarhvols ehf. lögðust gegn
afhendingunni. Í lögfræðiáliti sem
forsætisnefnd af laði sér segir að
ekkert í greinargerðinni sé þess
eðlis að ekki megi afhenda hana.
Birgir Ármannsson sagði í sam-
tali við Fréttablaðið í gær að ástæða
þess að hann afhendir ekki grein-
argerðina sé sú að athugasemdir
hafi borist frá Ríkisendurskoðun
og stjórn Lindarhvols. Málið sé
því enn til meðferðar hjá forsætis-
nefnd. Aðspurður sagðist Birgir
ekki vilja tjá sig um hvort eitthvað
nýtt hefði komið fram sem veldur
þessari töf.
Grei na rgerði n sem for set i
Alþingis neitar að afhenda og Rík-
isendurskoðun og stjórn Lindar-
hvols vilja ekki að komi fyrir sjónir
almennings er mjög gagnrýnin á
starfsemi Lindarhvols að sögn við-
mælenda Fréttablaðsins sem hafa
fengið að skoða hana.
Gagnrýnt er að fyrir utan daglega
framkvæmdastjórn og lögfræðilega
ráðgjöf hafi tiltekinn lögmaður
gegnt umfangsmiklum verkefnum
fyrir félagið auk þess sem lög-
mannsstofa hans hafi í umboði
stjórnar Lindarhvols haft umsjón
með sölu á stöðugleikaeignum.
Í bréfi sem Sigurður Þórðarson,
settur ríkisendurskoðandi, sendi
forseta Alþingis 17. febrúar 2021
segir: „… að þessi skipan hafi ekki
tekið nægjanlegt tillit til krafna
um aðskilnað starfa, ábyrgðar og
innra eftirlits sem hefði átt að vera
til staðar við framkvæmd verk-
efnisins.“
Fram kemur í bréfinu að Lindar-
hvoll hafi stórlega ýkt virðisauka
eigna sem hann sá um að fullnusta.
Minnst eitt mál er fyrir dómstólum
vegna ágreinings um framkvæmd
útboðs á vegum Lindarhvols.
Ekkert liggur fyrir um það hve-
nær og hvort greinargerðin verður
afhent fjölmiðlum. n
Forseti situr á skýrslu um Lindarhvol
Hörð gagnrýni kemur
fram á starfsemi Lind-
arhvols í greinargerð
sem forseti Alþingis
neitar að afhenda.
MARKAÐURINN Stór hluti leigjenda
á húsnæðismarkaði er fastur þar
til frambúðar. Þetta er niðurstaða
nýrrar rannsóknar Háskóla Íslands.
Már Wolfgang Mixa, lektor í fjár-
málum, segir um vaxandi vanda-
mál að ræða sem ýti undir reiði og
óánægju í samfélaginu.
Bráðabirgðaniðurstöður rann-
sóknarinnar benda til að allt að 40
prósent fólks á leigumarkaði hafi
nær enga möguleika á að safna sér
fyrir íbúð á sama tíma og innan við
10 prósent segjast vilja vera þar til
frambúðar. SJÁ SÍÐU 8
Ná ekki að safna
sér fyrir íbúð
Már Wolfgang Mixa,
lektor í fjármálum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2023 fyrir þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í gær. Ísland tekur við formennsku af Noregi þann
1. janúar næstkomandi og gegnir henni út næsta ár. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA