Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 1

Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 1
2 4 1 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 2 . N Ó V E M B E R 2 0 2 2 Elskar að fara í sundlaugarnar Ljúfsárt en lingert leikrit Lífið ➤ 18Menning ➤ 15 VERTU GLEÐIGJAFI Lisiecki spilar Chopin 3. NÓVEMBER KL. 19:30 MIÐASALA Á SINFONIA.IS Skýrslan um sölu Íslands- banka, sem ekki verður birt fyrr en í fyrsta lagi eftir helgi, er ekki eina skýrslan sem erf- itt virðist vera að draga fram í dagsljósið um verkefni tengd fjármálaráðuneytinu. Forseti Alþingis neitar að afhenda fjölmiðlum greinargerð um starfsemi Lindarhvols ehf. olafur@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, neitar að afhenda Viðskiptablaðinu og f leiri aðilum greinargerð setts ríkisendurskoð- anda um starfsemi Lindarhvols ehf., sérstaks félags á vegum fjár- málaráðuneytisins, sem fór með eignir úr þrotabúum föllnu bank- anna. Þetta gerir Birgir þrátt fyrir að forsætisnefnd þingsins hafi í apríl á þessu ári samþykkt að af henda greinargerðina og sent bréf því til staðfestingar til fjármála- og efna- hagsráðuneytisins. Ríkisendurskoðun og stjórn Lindarhvols ehf. lögðust gegn afhendingunni. Í lögfræðiáliti sem forsætisnefnd af laði sér segir að ekkert í greinargerðinni sé þess eðlis að ekki megi afhenda hana. Birgir Ármannsson sagði í sam- tali við Fréttablaðið í gær að ástæða þess að hann afhendir ekki grein- argerðina sé sú að athugasemdir hafi borist frá Ríkisendurskoðun og stjórn Lindarhvols. Málið sé því enn til meðferðar hjá forsætis- nefnd. Aðspurður sagðist Birgir ekki vilja tjá sig um hvort eitthvað nýtt hefði komið fram sem veldur þessari töf. Grei na rgerði n sem for set i Alþingis neitar að afhenda og Rík- isendurskoðun og stjórn Lindar- hvols vilja ekki að komi fyrir sjónir almennings er mjög gagnrýnin á starfsemi Lindarhvols að sögn við- mælenda Fréttablaðsins sem hafa fengið að skoða hana. Gagnrýnt er að fyrir utan daglega framkvæmdastjórn og lögfræðilega ráðgjöf hafi tiltekinn lögmaður gegnt umfangsmiklum verkefnum fyrir félagið auk þess sem lög- mannsstofa hans hafi í umboði stjórnar Lindarhvols haft umsjón með sölu á stöðugleikaeignum. Í bréfi sem Sigurður Þórðarson, settur ríkisendurskoðandi, sendi forseta Alþingis 17. febrúar 2021 segir: „… að þessi skipan hafi ekki tekið nægjanlegt tillit til krafna um aðskilnað starfa, ábyrgðar og innra eftirlits sem hefði átt að vera til staðar við framkvæmd verk- efnisins.“ Fram kemur í bréfinu að Lindar- hvoll hafi stórlega ýkt virðisauka eigna sem hann sá um að fullnusta. Minnst eitt mál er fyrir dómstólum vegna ágreinings um framkvæmd útboðs á vegum Lindarhvols. Ekkert liggur fyrir um það hve- nær og hvort greinargerðin verður afhent fjölmiðlum. n Forseti situr á skýrslu um Lindarhvol Hörð gagnrýni kemur fram á starfsemi Lind- arhvols í greinargerð sem forseti Alþingis neitar að afhenda. MARKAÐURINN Stór hluti leigjenda á húsnæðismarkaði er fastur þar til frambúðar. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar Háskóla Íslands. Már Wolfgang Mixa, lektor í fjár- málum, segir um vaxandi vanda- mál að ræða sem ýti undir reiði og óánægju í samfélaginu. Bráðabirgðaniðurstöður rann- sóknarinnar benda til að allt að 40 prósent fólks á leigumarkaði hafi nær enga möguleika á að safna sér fyrir íbúð á sama tíma og innan við 10 prósent segjast vilja vera þar til frambúðar. SJÁ SÍÐU 8 Ná ekki að safna sér fyrir íbúð Már Wolfgang Mixa, lektor í fjármálum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2023 fyrir þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í gær. Ísland tekur við formennsku af Noregi þann 1. janúar næstkomandi og gegnir henni út næsta ár. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.