Fréttablaðið - 02.11.2022, Blaðsíða 18
njall@frettabladid.is
Þýska ríkisstjórnin hefur sam-
þykkt áætlun um að fjölga hleðslu-
stöðvum fyrir rafbíla í eina milljón
fyrir árið 2030. Samkvæmt áætlun-
inni verður mest framkvæmt á
næstu þremur árum og verða 6,3
milljarðar evra settir í verkefnið
á þeim tíma. Í dag eru um 70.000
hleðslustöðvar í Þýskalandi en
talan mun fjórtánfaldast fyrir árið
2030. Ekki verður bara horft á fjöl-
mennustu svæðin í landinu heldur
einnig strjálbýlli svæði.
„Okkar markmið eru að hraða
uppbyggingu hleðslustöðva, ein-
falda aðgerðina að hlaða bílinn og
auðvelda þannig fólki að skipta
yfir í rafbíla,“ sagði Volker Wissing,
samgöngumálaráðherra Þýska-
lands, þegar tilkynnt var um
ákvörðunina. n
Þýskaland fjórtánfaldar fjölda
hleðslustöðva fyrir árið 2030
Í dag eru um 70.000 hleðslustöðvar í öllu Þýskalandi. MYND/PORSCHE
njall@frettabladid.is
Honda hefur kynnt hleðslustöðvar
þar sem notendur rafmótorhjóla og
jafnvel fjórhjóla geti nýtt þær til að
skipta út rafhlöðum sínum á mjög
fljótlegan hátt. Fyrsta stöðin verð-
ur opnuð hjá hjá ráðhúsi Tókýó-
borgar en tæknin er nú tilbúin fyrir
markað í Japan og Indlandi. Ekki
aðeins Honda-mótorhjól munu
geta nýtt sér þessar stöðvar því
að Gach aco-fyrirtækið fær einnig
svona stöðvar, en það fyrirtæki er
samstarfsverkefni Honda, Kawa-
saki, Yamaha og Suzuki.
Á Indlandi er hugmyndin að
rafhlöðurnar verði notaðar fyrir
þriggja hjóla Rickshaw-leiguhjól
til að byrja með. Notendur munu
einfaldlega fá sérstakt viðskipta-
kort til að skipta út notuðum raf-
hlöðum sínum fyrir fullhlaðnar.
Rafhlöðunum er einfaldlega
stungið í sérstök hólf og byrja þær
þá strax að hlaða sig án þess að
gera þurfi nokkuð annað til þess.
Hvort eða hvenær slík tækni komi
til með að verða prófuð í öðrum
heimsálfum á þó eftir að koma
í ljós, en eflaust fer það eftir vel-
gengni stöðvanna. n
Honda kynnir útskiptanlegar
rafhlöður fyrir mótorhjól
Einfalt er að skipta út notaðri raf-
hlöðu fyrir fullhlaðna eins og sjá má.
MYND/HONDA
njall@frettabladid.is
Margir þekkja eflaust hina öflugu
R-bíla Volkswagen, en nú er
merkið á leiðinni með R-línu raf-
bíla. Volkswagen ætlar að byggja
rafbílana á keppnisbílum líkt og
með fyrri R-bílum og verður meðal
annar byggt á tækni frá ID.R.
Gert er ráð fyrir að allir R-bílar
Volkswagen verði orðnir rafdrifnir
fyrir árið 2030. Þeir verða þó ekki
byggðir á MEB-undirvagninum
því að R-bílarnir munu þurfa sína
eigin rafhlöðu. Hún er þó það
dýr að ekki er áætlað að byggja
svoleiðis bíl alveg á næstunni.
R-bílar næstu ára munu þurfa að
nota næstu kynslóð rafhlaða og
rafmótora til að ná fram meiri
orku en þeim 295 hestöflum sem
núverandi bílar bjóða upp á. Ekki
er búist við að ID.3 fái R-merkingu
þar sem hann er aðeins aftur-
hjóladrifinn, en líklegra er að ID.4,
ID.5 eða ID.6 fái það þar sem þeir
eru fjórhjóladrifnir. Búast má við
fyrsta R-merkta tilraunarafbílnum
árið 2024. n
Volkswagen með R-línu rafbíla
ID.R var valinn rafdrifinn keppnisbíll ársins 2019 af Auto Bild en hann er
þróunarbíll sem skilar 680 hestöflum. MYND/VOLKSWAGEN
Í kjölfarið á Chevrolet Silver
ado EV kemur GMC Sierra EV
pallbíllinn í Deanli Edition
1 útgáfu. Eins og venjulega
eiga pallbílar frá Chevrolet
og GCM margt sameiginlegt,
eins og Ultiumundirvagn
inn í þessu tilfelli.
njall@frettabladid.is
Það eru sömu mótorar og raf-
hlaða og í Silverado sem þýðir að
hann er með fjórhjóladrifi og 754
hestöflum að spila úr. Í Max Power
Mode er hann aðeins 4,5 sekúndur
í hundraðið. Sierra EV mun geta
farið um það bil 640 km á hleðsl-
unni samkvæmt EPA-staðlinum,
og hann mun geta hlaðið í allt
að 350 kW hleðslustöð. Auk þess
kemur hann með 19,2 kW hleðslu-
stöð og fjöltengi fyrir 10 inn-
stungur. Með því er hægt að hlaða
önnur raftæki eða rafbíla eða
jafnvel sjá heimilinu fyrir orku. Að
sögn GM getur fullhlaðin rafhlaða
séð heimili fyrir nauðynlegustu
raforku í allt að 21 dag.
Dráttargeta GMC Sierra er 4,3
tonn. Loks er Sierra vel útbúinn,
meðal annars CrabWalk-aksturs-
stillingunni og fjórhjólastýring-
unni úr Hummer-rafjeppanum
og loftpúðafjöðrun. Herlegheitin
eru þó ekki ókeypis því að bíllinn
kostar frá 15,7 milljónum í Banda-
ríkjunum. n
GMC Sierra-rafpallbíllinn
kynntur með 640 km drægi
GMC Sierra er í grunninn sami bíll og Chevrolet Silverado EV en með nokkrum áherslubreytingum. MYND/GMC
Gert er ráð fyrir að
öll R-línan verði
orðin rafdrifin árið 2030.
Áætlunin gengur út
á að fjölga hleðslu-
stöðvum fyrir rafbíla í
eina milljón fyrir árið
2030. Alls verða 6,3
milljarðar evra settar í
verkefnið.
GMC Sierra verður
vel útbúinn með
19,2 kW hleðslustöð og
fjöltengi fyrir 10 inn-
stungur. Einnig er hann
með Crabwalk-aksturs-
stillingunni og fjórhjóla-
stýringunni úr Hummer-
rafjeppanum ásamt
loftpúðafjöðruninni.
njall@frettabladid.is
Sala nýrra fólksbíla í október
jókst um 2,8% miðað við október í
fyrra, en alls voru skráðir 810 nýir
fólksbílar nú en voru 788 í fyrra,
samkvæmt fréttatilkynningu frá
Bílgreinasambandinu.
Í heildina eftir fyrstu tíu mánuði
ársins hefur salan aukist um 31,3%
miðað við sama tímabil í fyrra. Í
ár hafa selst 13.873 nýir fólksbílar
samanborið við 10.568 nýja fólks-
bíla í fyrra.
Til einstaklinga seldust 504 nýir
fólksbílar í október samanborið
við 525 á sama tíma í fyrra og er
því samdráttur í sölu um 4,0%
milli ára. Það sem af er ári hafa
selst 5.277 nýir fólksbílar til ein-
staklinga en í fyrra á sama tíma var
búið að selja 4.851 nýjan fólksbíl
sem er aukning um 8,78%.
Almenn fyrirtæki (önnur en
ökutækjaleigur) keyptu 129 nýja
fólksbíla í október í ár miðað við
að hafa keypt 130 bíla í október í
fyrra. Það sem af er ári hafa selst
1.632 nýir fólksbílar til almennra
fyrirtækja en í fyrra á sama tíma
var seldur 1.571 nýr fólksbíll og er
því aukning milli ára um 3,8%.
Sala til ökutækjaleiga hefur
verið góð á árinu og seldust 169
nýir fólksbílar í október í öku-
tækjaleigu samanborið við 128 á
sama tíma í fyrra. Það sem af er
ári hefur verið skráður 6.891 nýr
fólksbíll í ökutækjaleigu saman-
borið við 4.096 bíla í fyrra. Er það
aukning um 68,2% milli ára.
Hlutfall rafmagnsbíla er hæst
þegar skoðuð er heildarsala eftir
orkugjöfum það sem af er ári eða
28,4%. Tengiltvinnbílar koma þar á
eftir með 24,1% af sölunni, hybrid
er 19,0%, dísil er 15,5% og bensín er
13,1%. Ef skoðuð er sala til einstakl-
inga þá velja 54,5% sér rafmagnsbíl
en þar á eftir kemur sala tengilt-
vinnbíla með 19,2%. n
Salan mest í rafbílum á árinu
Í október var mest selda tegundin KIA með 120 selda fólksbíla, þar á eftir
kemur Toyota með 109 selda og í þriðja sæti var Hyundai með 62 bíla skráða.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
4 BÍ L A BL A ÐI Ð 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR