Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 18

Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 18
njall@frettabladid.is Þýska ríkisstjórnin hefur sam- þykkt áætlun um að fjölga hleðslu- stöðvum fyrir rafbíla í eina milljón fyrir árið 2030. Samkvæmt áætlun- inni verður mest framkvæmt á næstu þremur árum og verða 6,3 milljarðar evra settir í verkefnið á þeim tíma. Í dag eru um 70.000 hleðslustöðvar í Þýskalandi en talan mun fjórtánfaldast fyrir árið 2030. Ekki verður bara horft á fjöl- mennustu svæðin í landinu heldur einnig strjálbýlli svæði. „Okkar markmið eru að hraða uppbyggingu hleðslustöðva, ein- falda aðgerðina að hlaða bílinn og auðvelda þannig fólki að skipta yfir í rafbíla,“ sagði Volker Wissing, samgöngumálaráðherra Þýska- lands, þegar tilkynnt var um ákvörðunina. n Þýskaland fjórtánfaldar fjölda hleðslustöðva fyrir árið 2030 Í dag eru um 70.000 hleðslustöðvar í öllu Þýskalandi. MYND/PORSCHE njall@frettabladid.is Honda hefur kynnt hleðslustöðvar þar sem notendur rafmótorhjóla og jafnvel fjórhjóla geti nýtt þær til að skipta út rafhlöðum sínum á mjög fljótlegan hátt. Fyrsta stöðin verð- ur opnuð hjá hjá ráðhúsi Tókýó- borgar en tæknin er nú tilbúin fyrir markað í Japan og Indlandi. Ekki aðeins Honda-mótorhjól munu geta nýtt sér þessar stöðvar því að Gach aco-fyrirtækið fær einnig svona stöðvar, en það fyrirtæki er samstarfsverkefni Honda, Kawa- saki, Yamaha og Suzuki. Á Indlandi er hugmyndin að rafhlöðurnar verði notaðar fyrir þriggja hjóla Rickshaw-leiguhjól til að byrja með. Notendur munu einfaldlega fá sérstakt viðskipta- kort til að skipta út notuðum raf- hlöðum sínum fyrir fullhlaðnar. Rafhlöðunum er einfaldlega stungið í sérstök hólf og byrja þær þá strax að hlaða sig án þess að gera þurfi nokkuð annað til þess. Hvort eða hvenær slík tækni komi til með að verða prófuð í öðrum heimsálfum á þó eftir að koma í ljós, en eflaust fer það eftir vel- gengni stöðvanna. n Honda kynnir útskiptanlegar rafhlöður fyrir mótorhjól Einfalt er að skipta út notaðri raf- hlöðu fyrir fullhlaðna eins og sjá má. MYND/HONDA njall@frettabladid.is Margir þekkja eflaust hina öflugu R-bíla Volkswagen, en nú er merkið á leiðinni með R-línu raf- bíla. Volkswagen ætlar að byggja rafbílana á keppnisbílum líkt og með fyrri R-bílum og verður meðal annar byggt á tækni frá ID.R. Gert er ráð fyrir að allir R-bílar Volkswagen verði orðnir rafdrifnir fyrir árið 2030. Þeir verða þó ekki byggðir á MEB-undirvagninum því að R-bílarnir munu þurfa sína eigin rafhlöðu. Hún er þó það dýr að ekki er áætlað að byggja svoleiðis bíl alveg á næstunni. R-bílar næstu ára munu þurfa að nota næstu kynslóð rafhlaða og rafmótora til að ná fram meiri orku en þeim 295 hestöflum sem núverandi bílar bjóða upp á. Ekki er búist við að ID.3 fái R-merkingu þar sem hann er aðeins aftur- hjóladrifinn, en líklegra er að ID.4, ID.5 eða ID.6 fái það þar sem þeir eru fjórhjóladrifnir. Búast má við fyrsta R-merkta tilraunarafbílnum árið 2024. n Volkswagen með R-línu rafbíla ID.R var valinn rafdrifinn keppnisbíll ársins 2019 af Auto Bild en hann er þróunarbíll sem skilar 680 hestöflum. MYND/VOLKSWAGEN Í kjölfarið á Chevrolet Silver­ ado EV kemur GMC Sierra EV pallbíllinn í Deanli Edition 1 útgáfu. Eins og venjulega eiga pallbílar frá Chevrolet og GCM margt sameiginlegt, eins og Ultium­undirvagn­ inn í þessu tilfelli. njall@frettabladid.is Það eru sömu mótorar og raf- hlaða og í Silverado sem þýðir að hann er með fjórhjóladrifi og 754 hestöflum að spila úr. Í Max Power Mode er hann aðeins 4,5 sekúndur í hundraðið. Sierra EV mun geta farið um það bil 640 km á hleðsl- unni samkvæmt EPA-staðlinum, og hann mun geta hlaðið í allt að 350 kW hleðslustöð. Auk þess kemur hann með 19,2 kW hleðslu- stöð og fjöltengi fyrir 10 inn- stungur. Með því er hægt að hlaða önnur raftæki eða rafbíla eða jafnvel sjá heimilinu fyrir orku. Að sögn GM getur fullhlaðin rafhlaða séð heimili fyrir nauðynlegustu raforku í allt að 21 dag. Dráttargeta GMC Sierra er 4,3 tonn. Loks er Sierra vel útbúinn, meðal annars CrabWalk-aksturs- stillingunni og fjórhjólastýring- unni úr Hummer-rafjeppanum og loftpúðafjöðrun. Herlegheitin eru þó ekki ókeypis því að bíllinn kostar frá 15,7 milljónum í Banda- ríkjunum. n GMC Sierra-rafpallbíllinn kynntur með 640 km drægi GMC Sierra er í grunninn sami bíll og Chevrolet Silverado EV en með nokkrum áherslubreytingum. MYND/GMC Gert er ráð fyrir að öll R-línan verði orðin rafdrifin árið 2030. Áætlunin gengur út á að fjölga hleðslu- stöðvum fyrir rafbíla í eina milljón fyrir árið 2030. Alls verða 6,3 milljarðar evra settar í verkefnið. GMC Sierra verður vel útbúinn með 19,2 kW hleðslustöð og fjöltengi fyrir 10 inn- stungur. Einnig er hann með Crabwalk-aksturs- stillingunni og fjórhjóla- stýringunni úr Hummer- rafjeppanum ásamt loftpúðafjöðruninni. njall@frettabladid.is Sala nýrra fólksbíla í október jókst um 2,8% miðað við október í fyrra, en alls voru skráðir 810 nýir fólksbílar nú en voru 788 í fyrra, samkvæmt fréttatilkynningu frá Bílgreinasambandinu. Í heildina eftir fyrstu tíu mánuði ársins hefur salan aukist um 31,3% miðað við sama tímabil í fyrra. Í ár hafa selst 13.873 nýir fólksbílar samanborið við 10.568 nýja fólks- bíla í fyrra. Til einstaklinga seldust 504 nýir fólksbílar í október samanborið við 525 á sama tíma í fyrra og er því samdráttur í sölu um 4,0% milli ára. Það sem af er ári hafa selst 5.277 nýir fólksbílar til ein- staklinga en í fyrra á sama tíma var búið að selja 4.851 nýjan fólksbíl sem er aukning um 8,78%. Almenn fyrirtæki (önnur en ökutækjaleigur) keyptu 129 nýja fólksbíla í október í ár miðað við að hafa keypt 130 bíla í október í fyrra. Það sem af er ári hafa selst 1.632 nýir fólksbílar til almennra fyrirtækja en í fyrra á sama tíma var seldur 1.571 nýr fólksbíll og er því aukning milli ára um 3,8%. Sala til ökutækjaleiga hefur verið góð á árinu og seldust 169 nýir fólksbílar í október í öku- tækjaleigu samanborið við 128 á sama tíma í fyrra. Það sem af er ári hefur verið skráður 6.891 nýr fólksbíll í ökutækjaleigu saman- borið við 4.096 bíla í fyrra. Er það aukning um 68,2% milli ára. Hlutfall rafmagnsbíla er hæst þegar skoðuð er heildarsala eftir orkugjöfum það sem af er ári eða 28,4%. Tengiltvinnbílar koma þar á eftir með 24,1% af sölunni, hybrid er 19,0%, dísil er 15,5% og bensín er 13,1%. Ef skoðuð er sala til einstakl- inga þá velja 54,5% sér rafmagnsbíl en þar á eftir kemur sala tengilt- vinnbíla með 19,2%. n Salan mest í rafbílum á árinu Í október var mest selda tegundin KIA með 120 selda fólksbíla, þar á eftir kemur Toyota með 109 selda og í þriðja sæti var Hyundai með 62 bíla skráða. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 4 BÍ L A BL A ÐI Ð 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.