Fréttablaðið - 04.11.2022, Page 16

Fréttablaðið - 04.11.2022, Page 16
„Ég, verandi rokkari af gamla skólanum, mæli með gömlu köll- unum. Sá Dr. Gunna á 12 tónum á miðvikudagskvöld og þeir voru það góðir að ég ætla að sjá þá aftur á Gauknum í kvöld og svo lýk ég kvöldinu á HAM í Gamla bíó.“ Tómas mælir svo einnig með nýjum hljómsveitum sem hann segir að séu á barmi heimsfrægð- ar. „Fyrir ykkur sem elskið að hafa puttann á púlsinum eru þrjár „must see“ íslenskar hljómsveitir, svona: „Ég náði að sjá þau rétt fyrir heimsfrægð.“ Hljómsveitin Ólafur Kram hefur verið að gera allt vitlaust á X977 með laginu Aumingja Þuríður, hljómsveitin Kvikindi gaf nýverið út plötu og svo Superserious. Ætli maður sinni ekki tónlistaruppeldinu líka og fari einmitt að sjá Ólaf Kram á Stúdentakjallaranum á morgun klukkan fjögur, off venue með guttunni … ókeypis og æðislegt.“ Rokkari af gamla skólanum n Airwaves Royalistinn n Uppskriftin 4. nóv 5. nóv 6. nóv Föstudagur Laugardagur Sunnudagur Hvað er að gerast um helgina? n Iceland Airwaves, Off Venue tónleikar kl. 16.00 Stúdentakjallarinn 16.00 Ólafur Kram 16.50 Supersport! 17.40 BSÍ 18.20 Skoffín Utandagskrá er úti um allan bæ og nánar má skoða hana á heimasíðu hátíðarinnar, icelandairwaves.is. n Daft Punk á orgel Hallgrímskirkja kl. 18.00 Kristján Hrannar Pálsson organisti spilar lög Daft Punk á mögnuðum tónleikum. n Pétur Jóhann óhæfur Fosshótel Stykkishólmi kl. 20.30 Tveir tímar af nýju uppistandsefni frá Pétri Jóhanni. Veisla. n Lögin hans Ladda Græni hatturinn kl. 21.00 Laddi flytur öll sín þekktustu lög á Græna hattinum ásamt stór- hljómsveit. n Kjallarakabarett: Miðnæturmunaður Þjóðleikhúskjallarinn kl. 23.00 Sverðgleypingar, fullorðinssirkus, drag og bommsadeisí. Fram koma Jellyboy, Jójójóakim, Duo Deca- dence, Júllala, María Callista, Mar- grét Maack og Tomtastic. n Fjölskyldu-Afró Kramhúsið kl. 13.00 Dans, trommuleikur, leikir og söngur fyrir börn á aldrinum tveggja til tólf ára ásamt fullorðna fólkinu sem þeim fylgir. n Einar Áskell 50 ára Bíó Paradís kl. 11 og 14 Afmælisfögnuður á Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð í Reykjavík. Hentar börnum á öllum aldri. Frítt inn og allir velkomnir. n Íslenska húðflúrsráðstefnan Laugardalshöll – alla helgina Níutíu flúrarar alls staðar að úr heiminum koma saman til þess að taka þátt í ráðstefnunni í ár. Keppnir alla dagana. Nánar má lesa um dagskrá á viðburðinum Icelandic Tattoo Expo 2022 á Facebook. n Síminn, ópera fyrir áhrifa- valda Harpa kl. 12 og 19 Lokahátíð Óperudaga, Harpa syngur, í Eldborg Hörpu. Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Áslákur Ingvarsson barítón flytja verkið við undirleik hljómsveitar Óperu- daga, undir stjórn Steinars Loga Helgasonar. n Lögin hans Ladda Græni hatturinn kl. 21.00 Laddi flytur öll sín þekktustu lög á Græna Hattinum ásamt stór- hljómsveit. n Grafísk hönnunarsmiðja fyrir alla fjölskylduna Hönnunarsafn Íslands kl. 13.00 Nýútskrifuðu hönnuðirnir Katla Einarsdóttir og Jóhanna Guðrún Jóhannsdóttir leiða smiðjuna sem byggð er á útskriftarverk- efnunum þeirra frá Listaháskól- anum. Brugðið er á leik með leir, makkarónum og perlum. Sjón er sögu ríkari í þessum skemmtilegu nálgunum að grafískri hönnun, þátttaka er ókeypis og smiðjan ætluð allri fjölskyldunni. n Plötusnúðar allan daginn Prikið kl. 13 Prikið hjálpar djammdýrunum að trappa sig niður eftir helgina með ljúfum tónum og sveittum mat. n Heimsins hnoss Þjóðminjasafnið alla helgina Ókeypis inn á safnið laugardag og sunnudag í tilefni opnunar sýningarinnar Heimsins hnoss. Sjá umfjöllun annars staðar á síðunni. n Húðflúrsráðstefna í Laugar- dalshöll Laugardalshöll – alla helgina Níutíu flúrarar alls staðar að úr heiminum koma saman til þess að taka þátt í ráðstefnunni í ár. Keppnir alla dagana. Nánar má lesa um dagskrá á viðburðinum Icelandic Tattoo Expo 2022 á Facebook. n Konur dansa frá hjartanu Jógasetrið kl. 19.30 Fríða Freyja og Elsa Rós leiða hug- leiðslu, dans og hljóðbað. Heimsins hnoss Þjóðminjasafnið Biblía, rotin. Stór kistugarmur, ónýtur. Saumaskrúfa. Sjö tunnuskrifli, öll fúin og mjög bandafá, sumar heilar, sumar hálfar og flestar botnlausar. Nærbuxur, með gati. Þetta eru meðal annars þeir hlutir sem uppboðsbækur dánarbúa höfðu að geyma. „Við höfum gríðar- legan áhuga á hversdagslegum hlutum sem gefa okkur mynd af hversdeginum fyrir löngu síðan,“ segir Steindór Gunnar Steindórsson hjá Þjóðminja- safninu. Sýningin teflir saman upp- lýsingum um dánarbú sem varðveittar eru á Þjóðskjala- safni Íslands og gripum úr munasafni Þjóðminjasafnsins með það að markmiði að varpa ljósi á efnisheim fólks á 18. og 19. öld. Hvað átti fólk? Hvers virði voru eigur þess? Hvernig endurspeglast eigur fólks fyrr á öldum í varðveittum menn- ingararfi þjóðarinnar? Sýningin verður opnuð með viðhöfn á morgun, laugardag, klukkan 14 og ókeypis verður í safnið yfir opnunarhelgina. Hljóðgervlar eiga sér rætur í orgelinu Hallgrímskirkja Organistinn Kristján Hrannar Pálsson leikur lög Daft Punk í dag klukkan 18 í Hallgríms- kirkju en spilar þau á orgel kirkjunnar. „Það var nú bara hin dásamlega eiginkona mín sem átti þessa hugmynd. Allir þessir synthar sem einkenna tónlist Daft Punk eiga sér auð- vitað rætur í orgelinu.“ Þetta snýst þá ekki um poppdrauma organistans? „Nei, þetta er meira svona tenging milli tveggja skyldra heima. Þetta er tilraun organista til að sýna að þetta hljóðfæri á fullt erindi í alls konar tónlist í dag, bæði gamla og nýja.“ Uppáhaldslag Kristjáns Hrannars með Daft Punk er Voyager. „Sjúklega góð keyrsla og f lottir hljómar. Alltaf þegar ég set það á koma samt krakk- arnir mínir með hávær mót- mæli og vilja bara One More Time.“ n Hinn einni sanni Royal toppaður með lakkrís og súkkulaði Setjið Eitt Sett súkkulaðibita og rjóma saman í pott við meðal- háan hita og bræðið saman. Þegar súkkulaðið er bráðið og hefur blandast við rjómann má hella sósunni úr pottinum yfir í könnu og leyfa að ná stofuhita áður en hún er sett yfir búðinginn. Einnig er hægt að skreyta með þeyttum rjóma, jarðarberjum og eitt sett- kúlum. Setjið síðan 1–2 matskeiðar af sósu yfir búðinginn eða eftir friminutur@frettabladid.is Þreif burt varalitagórillu smekk, gott að setja í kæli í stutta stund áður en þeytti rjóminn er settur á til þess að koma veg fyrir að þeytti rjóminn leki til ef sósan er enn þá volg. Súkkulaði- og lakkrísbúðingur fyrir 4 hanastélsglös 1 pakki Eitt Sett Royal-búðingur 250 ml rjómi 250 ml nýmjólk Pískið eða þeytið allt saman í um eina mínútu eða þar til blandan fer aðeins að þykkna. Skiptið niður í falleg hanastéls- glös eða skálar og kælið í um 30 mínútur, gott að gera rjómasúkku- laðisósuna á meðan. Rjómasúkkulaðisósa með lakkrísbitum 150–200 g Eitt Sett súkkulaði- stykki 100 ml rjómi „Ég var einu sinni að vinna á Airwa- ves við að selja bjór þegar GusGus spilaði,“ rifjar Júlía Margrét Einars- dóttir upp. Þegar tónleikarnir voru búnir og búið var að tæma pleisið kom í ljós eitt fallegasta verkið á veggnum, sem var risastór górilla máluð á vegginn með varalit kvenna sem voru inspíreraðar af tónlist GusGus. Ég var smá miður mín yfir að þurfa að þrífa hana burt.“ Júlíana er komin í gírinn. „Í ár er ég ótrúlega spennt að fara á Unu Torfa, skærustu stjörnu íslenskrar tónlistar í dag að mínu mati, og svo að sjá Altin Gün (sem gera mig alltaf svanga í falafel) og Go_A. Þetta verður æðisleg hátíð og ég vona að það verði til margir vara- litaapar!“ n 4 kynningarblað A L LT 4. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.