Fréttablaðið - 04.11.2022, Síða 26

Fréttablaðið - 04.11.2022, Síða 26
Þegar osso buco er eldað er mikilvægt að gefa sér góðan tíma í eldamennskuna og leyfa ástríðunni og natni að ráða för. Matarvenjur breytast eftir árstíðum og þegar veturinn er skollinn á eru matar- miklir réttir sem bragð er af vinsælir. Þeir ylja kroppnum og gleðja bragðlaukana. sjofn@frettabladid.is Einn ítalskur réttur hefur notið óhemjumikilla vinsælda og er einn þekktasti rétturinn sem kemur frá Norður-Ítalíu. Hér á landi hefur hann slegið í gegn á köldum vetrar- dögum. Það er hinn frægi osso buco sem um ræðir. Ítalir notar gjarnan kálfaskanka í þennan rétt en hér á landi verða nautaskankar oftast nær fyrir valinu. Þeir smell- passa í þennan rétt. Þegar osso buco er eldað er mikilvægt að gefa sér góðan tíma í eldamennskuna og leyfa ástríðunni og natni að ráða för. Það sér enginn eftir því að gefa sér tíma í að elda þennan dásamlega rétt sem er hreinn unaður að njóta. Osso buco á ítalska vísu fyrir 6 6-8 sneiðar af osso buco 2-3 skalottlaukar, saxaðir 3 stönglar sellerí, saxaðir í teninga 3 gulrætur, saxaðar í teninga eða skornar í flísar 3 litlir hvítlaukar, þessir í körf- unum, saxaðir 3 greinar timian, 3 greinar rós- marín, 3 lárviðarlauf, allt bundið saman í knippi ½ búnt steinselja, smátt skorin 1 dós heilir tómatar ½ dós saxaðir tómatar 6 dl kjúklingasoð 2 dl hvítvín, meðal þurrt Ólífuolía eftir smekk fyrir steikingu Salt og pipar eftir smekk Allra best er að elda osso buco í stórum potti eða fati sem má setja í ofn, helst úr pottjárni. Hitið 1–2 matskeiðar af ólífuolíu í pott- inum og steikið kjötsneiðarnar í 3 mínútur á hvorri hlið. Saltið og piprið eftir smekk. Takið kjötið frá og geymið meðan grænmetið er steikt og sósan gerð. Steikið skalottlauk, sellerí, gulrætur og hvítlauk í um það bil 5 mínútur í pottinum. Bætið síðan við tómötunum og sjóðið í um það bil 3 mínútur. Hrærið reglulega. Bætið við hvítvíni, 3 dl af kjúklingasoðinu, kryddjurtunum, steinseljunni og loks kjötsneið- unum. Látið malla í tvær klukku- stundir við vægan hita. Þá má líka fara aðra leið og setja pottinn eða fatið inn í bakarofn. Þá setjið þið lokið á pottinn og setjið inn í 200°C heitan ofn. Eldið og hafið inni í ofninum um það bil 2 klukkustundir. Vert er að snúa kjötbitunum við í pottinum einu sinni til tvisvar á þessum tíma og bæta við kjúkl- ingasoði eftir þörfum. Soðið á að þekja kjötið að um þremur fjórðu allan tímann og umlykja græn- metið. Eftir tvo klukkutíma ætti kjötið að vera orðið meyrt og fínt. Áður en rétturinn er borinn fram er kryddknippið tekið frá og það er í góðu lagi að bera réttinn fram í pottinum eða fatinu sem það er eldað í. Með þessum rétti er ekki nauð- synlegt að vera með meðlæti en það er hægt að vera með dýrindis heimalagaða kartöflumús, risotto að hætti Ítala eða nýtt smælki. Svo er bara að njóta við kertaljós í góðum félagsskap. n Dýrindis osso buco fyrir sælkera Osso buco er vinsæll réttur á Ítalíu og víðar um heiminn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY elin@frettabladid.is Heimabakað brauð er alltaf frá- bært og hér er uppskrift sem er mjög einföld þótt hún taki tíma. Þetta er hollt og trefjaríkt brauð sem fer vel í magann. Nýtt brauð með góðu áleggi er frábært að eiga um helgar. Þar að auki er svo skemmtilegt að baka brauð. Þetta brauð þarf ekki að hnoða. Hrært brauð 400 g hveiti 100 g heilhveiti 50 g rúgmjöl 25 g hveitiklíð 25 g hveitikím 100 g sólblómafræ ½ tsk. þurrger 1 tsk. salt 1 msk. maltextrakt 500 ml kalt vatn Hitið ofninn í 250°C. Brauðið er bakað í ílöngu formi með loki, sem tekur 4 lítra. Einnig er hægt að nota álpappír sem lok. Hrærið allt saman nema maltext- rakt og vatn. Hrærið maltextrakt út í vatnið og hrærið saman og setjið saman við þurrefnið, deigið á að vera klístrað. Deigið er sett í formið og látið hefast undir loki í 8-20 tíma eftir því sem þið hafið tíma til. Látið þá deigið á bökunarpappír og stráið smávegis hveiti yfir það. Látið hefast aftur í tvo tíma. Formið er sett tómt inn í 250°C heitan ofn í einn og hálfan tíma. Takið heitt formið út og komið deiginu fyrir í því. Setjið lok yfir og bakið í 30 mínútur, takið lokið þá af og bakið áfram í 15 mínútur á 220°C. Kælið brauðið á rist. Þegar brauð er bakað án þess að hnoða það þarf að gefa sér góðan tíma því deigið þarf að hefast lengi. Baksturinn er einfaldur og til dæmis er hægt að undirbúa brauðbaksturinn á laugardegi og baka brauðið síðan á sunnu- dagsmorgni. Þá er hægt að bjóða upp á nýbakað og gott brauð með hádegishressingunni. Ef þú hefur ekki tíma til að baka brauðið á sunnudeginum er hægt að geyma deigið í ísskáp í fjóra daga. Þegar deigið hefast í svona langan tíma vakna ýmis ensím í korninu sem gerir brauðið bæði næringarríkara og auðmeltan- legra. Þegar maður gerir brauð sjálfur er hægt að hafa stjórn á hversu gróft það á að vera með því að bæta við fræjum eða sleppa þeim. Það er ódýrara að baka brauð sjálfur en að kaupa það úti í búð svo það er hagkvæmt að gera nokkur brauð og eiga í frysti. n Næringarríkt heimabakað brauð Það er ótrúlega skemmtilegt að dunda sér við brauðbakstur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Góð súpa og heima- bakað brauð. Ekki slæmur kostur á vetrar- degi. Það felst mikill sparnaður í því að eiga til frosna ostafganga á pítsuna. thordisg@frettabladid.is Til að koma í veg fyrir að matur lendi í ruslinu er ráð að frysta hann. Þannig má til dæmis frysta avókadó, ferska tómata, ost, rjómaost, smjör, hvítlauk, chili og banana. Áður en avókadó fer í frysti þarf að fjarlægja stein og hýði. Þá er gott að skera það í tvo til fjóra bita og pakka í plastfilmu eða setja í plast- box. Gott ráð er líka að mauka það og frysta í litlum skömmtum. Best er að skipta hvítlauk í geira og taka utan af honum áður en hann er frystur. Þá er auðvelt að skera hann og nota í mat, þótt hann sé frosinn. Áður en chili-pipar þornar upp í ísskápnum er tilvalið að skella honum heilum í frysti og geyma þar til hans er þörf í matargerðina. Áður en tómatar eru settir í frysti skal skera þá í báta og setja í box. Þá er auðvelt að taka þá út og setja í heitan rétt og þá má líka sleppa tómatmaukinu ef slíkt er í uppskriftinni. Banana er tilvalið að frysta. Það má frysta bananana í hýðinu, heila, í bitum eða maukaða. Vill enginn borða endastykkin af ostinum? Safnið þeim þá saman í frystinum og rífið niður afgang- ana næst þegar til stendur að baka pítsu. Það er líka gott ráð að rífa hann niður jafnóðum því þá er alltaf til rifinn ostur í frystinum. Allt kemur þetta í veg fyrir mat- arsóun og er aldeilis hagkvæmt að eiga til í frystinum þegar á þarf að halda. n HEIMILD: LEIDBEININGASTOD.IS Þessa matvöru  má frysta Það getur verið erfitt að áætla magn þegar halda skal matar- boð, en örvæntið eigi þótt afgangar séu miklir því hægt er að frysta svo margt og nýta seinna. 6 kynningarblað A L LT 4. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.