Magni - 01.05.1936, Síða 2

Magni - 01.05.1936, Síða 2
2 M A G N I ið úr þessu, og eftir því sem hún verður sterkari og sterkari, ber það meir og meir betri ár- angur. Alþýðuflokkurinn er sá flokk- ur, sem stýrir og stjórnar heild- arsamtökum verklýðsins þ. e. Alþýðusambandi í slands, og hann ber því ábyrgð á stjórn og starfi þess, enda er hann vel fær um það, ef hann bara fær að starfa í friði. Hann er raunverulega eini flokkurinn í landinu, sem hefir tekið upp baráttuna fyrir æskuna. Sigurður Einarsson, ai- þingismaður, einn af beztu mönn- um flokksins á þingi, bar fram á síðasta Alþingi frumvarp til laga um námskeið fyrir atvinnu- lausa unglinga í bæjum og sveit- um, en framsókn og íhald voru sameinuð um að fella frum- varpið. Haraldur Guðmundsson atvinnumálaráðberra píndi í- haldið í Reykjavík til að leggja fram fé á móti ríkissjóði til at- vinnu og atvinnunámskeiða fyrir atvinnulausa unglinga í Reykja- vík. Retta gafst vel og bar góð- an árangur, og eitt er víst, að þessu mun haldið áfram, ef Al- þýðuflokkurinn verður þess megnugur að koma því í fram- kvæmd. Þetta eitt sjmir, hvað Alþýðuflokkurinn vill gera fyrir æskuna og ætlar sér að gera, þegar liann verður svo sterkur á þingi, að bann getur fram- kvæmt það, sem hann vill. Al- þýðuflokknum er ljóst, livað er að gerast meðal æskulýðsins og hvað atvinnuleysið hefir í för með sér meðal lians í landinu. Honum er vel ljóst, að það verð- ur að tryggja það, að æskan verði fær .um að taka við af þeim eldri — en það verður hún vit- anlega ekki, ef ekkert er séð fyrir því fvrirfram — og til þess að lnin geti það, verður hún að hafa skilyrði lil þess, og þjóð- félaginu ber skylda til að lijálpa foreldrum til þess. Þaðverðurað sjá um, að æskumönnum, sem hafa við sVo þröng skilyrði að búa, verði tryggt að fá að læra að vinna, hvort sem það er til sjávar eða sveita. Hjá okkur ís- lendingum er sjávarútvegurinn aðalatvinna landsmanna — og þúsundir manna, þegar vel gefst, fá atvinnu við hann. Nú er það komið svo,að það er orðið miklum vandkvæðum bundið, að korna ungum og óreyndum mönnum til sjós og því kent um, að það sé ekki hægt að taka þá, því þeirkunni ekkert til þeirra verka. Þetta getur vitanlega verið satt, en þeir, sem þessu halda fram, hljóta að viðurkenna það, að einu sinni voru þeir með sama marki brenndir, en þó má nátt- úrlega viðurkenna það, að þá var frekar hörgull á mönnum, sem nú er alveg yfirfullt allstað- ar. En til þess að koma í veg fyrir að svo haldi áfram, verður ríkið að gera einhverjar ráð- stafanir í þá átt, að gera ung- lingana færa um að taka við þessu staríi sem öðru. Ríkið verður að eiga 2—3 góða mótor- háta, 60—80 tonna, og hafa þá fyrir skólaskip á þorsk- og síld- veiðum, með því er hægt að skapa góða sjómenn, sem svo aftur fara í flotann sem lærðir, og tá þá strax fullt kaup. Ef aðeins þetta yrði tekið til greina og framkvæmt, þá myndi það leiða mjög golt af sér — og margir ungir menn verða fyr færir og góðir sjómenn, en ella yrði. Það verður að koma því í það horf, að æskumaðurinn verði fyrst og fremst fær í það verk, sem hann ætlar sér — hvort sem það er daglauna- vinna, sjómennska, iðnaður, verzlun eða sveitavinna. Okkur ungum jafnaðarmönn- um er þáð ljóst, að starf okkar félagsskapar er fyrst og fremst byggt á þeim grundvelli, að berjast fyrir því, að verklýðs- æskan verði fær til að taka við störfum í þjóðfélaginu, svo og innan okkar flokks. Þetta er vort aðalstarf, svo og að berjast gegn atvinnuleysi æskunnar og þeim ófarnaði, sem því fylgir, — i)erjasl fyrir því, að vei'ldýðs- æskan fái jafna aðstöðu og aði-- ar stéttir í þjóðfélaginu. Við ung- ir jafnaðarmenn höfum í dag sent bæjarstjórn ísafjai'ðar á- skorun um að veita minnst ki'. .1000.— til atvinnu í sumar fyrir atvinnulausa unglinga héríbæn- um á aldrinum 14—18 ára. Okk- ur er það vel ljóst, að vei'klýðs- æskan hefir við mikið atvinnu- levsi að búa í þessum bæ engu síður en annarstaðai', og það er sorglegt til þess að vita, að á- standið skuli ekkei't batna, þó sumarið sé komið, og vænta mætti meiii vinnu en á veturna. Okkur er það líka ljóst, að þó að bæjarstjórn verði við kröfum okkai’, mun það ekki útrýma atvinnuleysi unglinga hér, en þó það sé ekki hærri upphæð en þetta, mun það bæta tölu- vert úr, frá því sem nú er. Ég er sannfærður um, að margir foreldrar muni gleðjast mjög yfii' tillögum okkar og margur bera hlýrri hug til okk- ar en verið hefii’. Og það ætti að vei-a áhugamál foxeldranna að hvetja börn sín til að ganga í F. U. J. og starfa með okkur að bættum kjörum sínum og að ýmsum menningarlegum um- bótum. Atvinnuleysið er það böl, sem ungir jafnaðarmenn berjast gegn með öllum þeim krafti, sem þeir hafa á að skipa. Vei'klýðsæska, sem ennþá stend- ur fyrir utan okkar félagsskap, kom þú og hjálpaðu okkur að úrtýma því böli, sem stétt þín á við að búa. F. U. J. er félags- skapur þinn. Æskan er framtíðin, þessvegna verður þjóðfélagið að taka til greina kröfur liennar og hjálpa henni til að ná því takmarki, sem hennar bíður í þjóðfélaginu. Sverrir Guðmundsson. Her h vöt. ísafjai'ðar æskulýður, sem átt í framtíð við að taka af þeim, sem bráðum falla á foldu fyrir elli, og sjúkdóms meinum. Fetaðu lengra feði'a hrautir, fram til sigurs merkið berðu, þeii'ra er böi'ðust æfi alla við okur, þrældóm, sult og kiigun, Þeinx hafa skammtað auðvalds öflin aldagömlum bundin vana: sultarlaun og svik í tryggðum, sálarmorð og hungurdauða. Öreigar í öllum löndum alltaf munu stríðið þreyta, uns þeir liafa alla slitið okurvaldsins þungu tjötra. Yðar hlutverk, æskulýður, er að halda við og beita frelsi því, sem faðir og móðir fyrir stríð og samtök náðu. Eitt er víst, að ef þér standið ávalt saman, — hopið eigi, verður auðvelt upp að ganga, örðugasta og síðsta hjallann. H. J.

x

Magni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Magni
https://timarit.is/publication/1723

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.