Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1927, Side 51
LEIÐARVÍSIR
fyrir skipbrotsmenn, sem ienda á suðurströnd íslands.
Þegar skip strandar á söndunum í Skaftafellssýslu, er trygg-
ast fyrir skipshöfnina að vera um borð eða halda sig við skipið
í lengstu lög, reyna að fara ekki í land áður en menn eru komn-
ir frá bygðinni. Hættan á að skipið brotni, er mjög litil, held-
ur mun sandur fljótt berast að, svo að þurt verði kringum skip-
ið um fjöru.
Komi skipshöfnin að landi á Breiðamerkursandi, skal hún
fara heim að bænum Kviskerjum, sem er undir fjallinu, beint
fyrir sunnan vesturendann á Breiðamerkurjökli. En verði
strandið hjá Jökulsá, en þó fyrir sunnan hana, mun vanalega
vera rjettast að ná i sæluhúsið, sem er rjett hjá jökulröndinni,
um IV2 sjóm. fvrir vestan upptök Jökulsár. í sæluhúsinu skulu
þeir sem veikir eru bíða, á meðan þeir sem frískari eru, leita
hjálpar að Kvískerjum. Ef skipshöfnin lendir á sandinum fyrir
austan Jökulsá, á hún að halda í norðaustur til Reynivalla milli
jökulsins og sjávar. ,
Á svæðinu milli Ölduóss og Knappavallaóss er altaf hægt að
komast að Knappavöllum, undir fjallinu. Bæirnir sjást langt að.
Milli Knappavallaóss og Ingólfshöfða og frá Ingólfshöfða vest-
ur Skeiðarársand að Ilvalsýki eru leiðarstaurar, sem gefa mönn-
um leiðbeiningu um, hvaða stefnu skuli taka. Milli stauranna
er að jafnaði 1 km. Víða, sjerstaklega við alla stærri ósa, eru
festir á staurana kassar og eru í þeim geymd kort og leiðbein-
ingar á íslensku, dönsku, þýsku, ensku og frakknesku um það,
hvernig best sje að ná til bygða. Venjulega er ein veruleg ófæra
á þessu svæði, en þetta breytist og verður staurum og leiðar-
vísum breytt eftir því, en kortin eru ekki nákvæm og þau er
ekki hægt að leiðrétta. Lendi skipshöfnin á sandinum austan
við þessa ófæru, verður hún að fara í austur — biða eftir
fjöru við ósana -— og revna að ná til Ingólfshöfða, en sje komið
að landi fvrir vestan skal lialda i vestur að skipbrotsmannahæl-
inu á Kálfafellsmelum.
Á Ingólfshöfða er skipbrotsmannahæli, sem stendur austan
til á höfðanum, allnærri vitanum. Það er 9,5 m. X 4,5 innanmál.
Vegghæðin er 2,2 m., hæð til mænis 3,75 m. Tóftin er hlaðin úr
grjóti, en að utan úr grasgrónum sniddum. Þakið er járnklætt.
49
Bending til næstu bæja (t. d. Fagurhólsmýrar) má gera með þvi
að draga flagg, sem er i húsinu, á stöng á framstafni hússins.
í húsinu eru ýmsar matvörur og áhöld. Frá höfðanum liggur
stikuröð, sem fylgja má til bæja.
Hælið á Kálfafellsmelum er úr trje og stendur á 10 m. háum
foksandshól um 1 sjóm. frá ströndinni. Húsið sjest langt að í
logni og björtu veðri, en í dimmviðri sjest það trauðla. í því
eru rúm handa 14 mönnum, vistir meðul og umbúðir, verk-
færi og smíðaáhöld, tjöld, sleðar, sokkar og vetlingar, ullar-
Peysur, eldavjel og steinolia, eldflugur, 1 rautt og 1 hvítt ljós-
ker, segldúksbátur, kompás og uppdráttur af nágrenninu. Enn-
fremur er fest upp í húsinu leiðbeiningar handa skipbrots-
rnönnum, hvernig þeir geti náð í hjálp, eða hvernig þeir geti
komist til bygða. Veggirnir á hælinu eru rauðir með hvítum
krossi. Þakið er flatt, og á því grindur til að setja ljóskerin í,
°g hlíf er skyggir á Ijóskerið sjávarmegin.
Skamt frá hælinu stendur sjómerki, 12 m. há stöng með
kringlóttri plötu efst, og er hún rauð með lóðrjettri hvitri rönd.
Merkið stendur á h. u. b. 63 46' 47" n. br„ 17 25 35' v. I.
Eindregið skal ráðið frá því að leita á Skeiðarársand beint
upp til jökulsins, ineð því að þá hljóta menn óumflýjanlega að
komast á ófærar slóðir, nema maður sje nákunnugur staðhátt-
um. Skal farið með ströndinni, annaðhvort til Ingólfshöfða eða
Máfabótar.
Milli Hvalsýkis og Eldvatnsóss er öruggast að fara eftir sjó-
nierkjum, sem eru i sambandi við skipbrotsmannahælið í Máfa-
bót, sem bygt var 1913.
Sjómerkið er hjer um bil 17 m. há, rauð- og hvítmáluð járn-
grind með toppmerki: ferhyrnd, rombisk plata með mjóu horni
UPP og niður. Merkið stendur á 63° 42' 26" n. br„ 17° 45' 26" v. 1„
fyrir ofan Skaftárós og Veiðiós, sem renna saman í sjó út, um
* 2000 m. frá sjó, 6 m. fyrir ofan sjávarmál.
Skipbrotsmannahælið stendur 390 m. N frá sjómerkinu 7 m.
yfir sjávarmál. Það er 6x6 m„ hvítt með stórum, rauðum krossi
á hvorri hlið. í húsinu er rúm handa 12 mönnum, fatnaður,
vistir, kol, steinolía, rúmföt, verkfæri og áhöld af ýmsu tagi,
meðalakassi, bátur, sleðar og kaðlar handa skipbrotsmönnum
er vilja leita bygða eða biða í húsinu. Ennfremur uppdrættir
og leiðbeiningar á íslensku, dönsku, ensku, þýsku og frakk-
nesku um, hvernig megi komast til bygða. ,
Ennfremur eru settir upp þessir leiðarstaurar: Fyrir aust-
an Veiðiós 4 meðfram fjörunni (á 2 þeirra eru festir kassar
með kortum og leiðarvísum); frá austasta staurnum eru 10
staurar í beinni línu heim að Sljettabóli. Fyrir vestan Skaftár-
ós eru 7 staurar meðfram fjörunni (2 þeirra með kortum og
i