Heilbrigðisskýrslur - 09.12.1990, Blaðsíða 10

Heilbrigðisskýrslur - 09.12.1990, Blaðsíða 10
Vímuvarnaráð verði stofnað og komi það í stað Áfengisvamaráðs. f drögum að frumvarpi til áfengislaga sem nú er verið að semja af heilbrigðisráðherra er gen ráð fyrir að starfsemi Afengisvamaráðs nái einnig til fíkniefna. Nafnbreytingin er í takt við þróun þessara mála hér á landi. Svipuð nafnbreyting hefur verið gerð í nágrannalöndum. Gert er ráð fyrir að ráðið fái fasta fjárveitingu og ráði sér starfsmenn og erindreka. Forvarnasjóður. Lagt er til að komið verði á fót sérstökum forvarnasjóði á vegum ríkisins. í hann verði veitt 20 milljónum árlega. Opinberar stofnanir, félagasamtök og einstaklingar geta sótt um styrki í sjóðinn að uppfylltum ákveðnum skilyrðum: Vímuvamaráð sjái um veitingu fjárstyrkja. Um sé að ræða forvamaverkefni sem beinist að vímuefnaneyslu bama og unglinga. Umsækjandi þarf að leggja fram ítarlega áætlun um verkefnið þar sem fram komi mat á vandanum, eðli hans og umfangi, verk- og kostnaðaráætlun, viðmiðanir um árangur og áætlun um hvemig meta eigi árangur að verkefninu loknu. Hugsanlegt er að setja nánari skilyrði, t.d. að umsækjandinn sýni fram á að hann hafi faglegar forsendur tíl að sinna verkefninu, að um sé að ræða samstarfsverkefni tveggja eða fleiri aðila/stofnana o.s.frv. Stjóm sjóðsins tekur síðan umsóknir til umfjöllunar og ákveður úthlutun (Einar Gylfi Jónsson). Lagt er til að ísland gerist aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn ólöglegri verslun með fíkniefni og skynvilluefni. Með hliðsjón af þeim mikla kostnaði sem hlýst af vistun á sjúkrastofnunum, en kostnaður einstaklings fyrir fulla meðferð er nú um 300.000-400.000 krónur, fyrir utan þann kostnað er þjóðfélagið ber vegna framfærslu og afbrota hvers fíkniefnaneytenda, mætti veija mun meira fjármagni tíl aukinnar aðstoðar við heimili og fjölskyldur sem minna mega sín og til fyrirbyggjandi starfs í skólum en nú er gert. Bent hefur verið á úrræði í þessu efni af Unglingaheimili ríkisins. Bætt lífsgæði og mannsæmandi líf sem af slíkri starfsemi hlýst verður ekki metið til fjár. Heilbrigðis-, félagsmála-, dóms- og menntamálayfirvöldum ber því að taka upp mun öflugara fyrirbyggjandi starf á þessu sviði en nú er gert. Við ákvarðanatöku um aukin fjárútlát í þessu skyni ber að hafa í huga að þeir einstaklingar er síðar gista fangelsi og sjúkrastofnanir vegna afbrota og fíkniefnaneyslu koma að verulegu leyti úr hópi ungmenna er hér hefur við lýst. Nú hafa stjómvöld komið á fót meðferðarheimili fyrir þau ungmenni sem verst eru farin af vímuefnaneyslu og er það vel. Þetta má þó ekki verða til þess að stjórvöldum finnist nóg að gert, stofnanameðferð getur aldrei komið í stað forvarna. - 8 -

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.