Skyggnir - 01.01.1980, Síða 6

Skyggnir - 01.01.1980, Síða 6
sú aÖ Kommúnistaávarpið er sá rétttrúnaður sem valdhafarnir beita til að viðhalda völdum. Kenningarnar eru boðaðar sem trúarbrögð til þess að viðhalda valdinu og auka það, en einmitt hættulegasta vopn Sovétríkjanna er vopnavaldið. Það er gamalt lögmál að valdsmenn reyna ávallt að viðhalda valdaaðstöðunni, jafnvel með þeim aðferðum sem^þeir upphaflega beittu til þess að ná völdum. Vald felur einnig í sér meðfædda tilhneigingu til^þess að útvíkka umráðasvæði sitt (sbr. P. Worsley).^Hugsjón kommúnismans var grundvöllur að heims- valdastefnu Sovétríkjanna, en með tímanum hefur þetta stórveldi fellt ^grímuna ^og gerræðistilhneigingin stendur berskjölduð. Þetta er þróun kommúnismans. Og þannig varð Marx "guðfaðir þjóðskipulags sem gefur þegnum sínum steina í stað brauðs og sprengir í stað betra lífs". Þið íslensku kommúnistar, fyrir hverju er þá barist? SVAR : (Úr mætti hins veika eftir Jón úr Vör) "Og þá mun ég ganga hinn sama veg og ég valdi mér í æsku, því á leiðinni að takmarkinu býr hamingja baráttunnar, en vonbrigðin á vegarenda". Gunnar Þorsteinsson. taoismi Taóismi er upprunninn í Kína á 6. öld f. Krist. Höfundur hans er talinn vera maður að nafni Lao Tse. I gömlum arfsögnum er þess getið að hann hafi fæðst árið 6o3 f. Kr. í héraðinu Honan. Er hann ver ungur að árum ferðaðist hann um versturhéruð Kína og er talið að hann hafi orðið þar fyrir áhrifum af indverskri heimspeki. Hann gerðist skjalavörður konungsins í Tsju og gat hann af sér gott orð, fyrir þekkingu og vitsmuni. Þar starfaði hann í fjölda mörg ár. Er hann sá að spilling og hnignun færðust í vöxt í ríkinu ákvað hann að yfirgefa siðmenninguna. Sagan segir að hann hafi komið í vagni dregnum af tveim uxum til varðstöðvar einnar á norðvesturmærum Kína. Hleypti landamæj'avörðurinn honum ekki yfir fyrr en hann hefði ritað eitthvað af speki sinni. Lét Lao Tse honum þetta eftir og reit á tveim dögum Bókina um veginn. í bók’þessari má finna stefnu taóista. Hvarf hann síðan yfir landamærin og fóru engar frekari spurnir af haonum. UPPHAFIÐ: í upphafi tímanna þegar fruma veraldar, Tai Ki, frum- ljósvakinn, tók að skipta sér í frumefnin tvö, Jang og Jin, var Taó að verki. Taó er hinn hljóði, huldi grunnur og vit tilverunnar. Taó er hið eilífa alvald. Taó er lögmál iífsins. Hugmyndin um hin tvö frumefni Jang og Jin er frábrugðin öðrum sígildum heimspekistefnum er hafa tvxhyggju að uppistöðu, að því leyti að öflin er í raun samstæður en ekki andstæður. Jang og Jin bæta hvort annað upp og vinna saman og eru nauðsynleg, ef náttúran á að gánga sinn eðlilega gang. Samstilling þeirra, reglan í alheimi stafar frá Taó. Þess vegna er það æðsta takmark hvers taóista að lifa samkvæmt kröfum Taó. í Bókinni um veginn er mönnum bent á hvernig hægt er að lifa sam- kvæmt kröfum Taó. Laó Tse leggur mikla áherslu á þrjár megindyggðir, en þær eru hógværð, sparsemi og lítillæti. Heimshöfnun, afneitun þess lífs, sem vér lifum með umsvifum þess og eftirsckn eftir gengi o^ veraldar^æðum, það er hjálpræðisvegur Laó Tse. Maðurinn á að snua burt fra veraldlegum gæðpm til baka til náttúrunnar og einfelninnar. í bókinni er hægt að finn-a mörg gullkorn kínverskrar heimspeki en fyrir þá sem vilja kynna sér taóisma í alvöru vil ég benda á að lesa BÓkina um veginn, því að "það Taó, sem lýst er með orðum er ekki hið eilífa Taó". "Að þekkja fáfræði sína er hið æðsta. Að þekkja hana ekki, en hyggja sig fróðan, er sjúkdómur." Ra-gnar Óraarsson.

x

Skyggnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skyggnir
https://timarit.is/publication/1736

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.