Skyggnir - 01.01.1980, Blaðsíða 14
Um polUlska frædslu MHinga
Innan M.H. er starfandi félag nokkurt hvurs starfsemi
er mjög í saumakíubbaformi þar koma saman af og til ábúðarfullir
og alvarlegir ungir menn, sem ræða um allt milli himins og jarðar
sjálfum sér til hinnar mestu velþóknunar. En því miður eru
niðurstöður þessarra djúpvitru og menningarlegu samræðna, ef
nokkrar eru, yfirleitt algerlega marklausar og vart takandi
alvarlega.
Hvers vegna?
Að minu mati er hér um að ræða helberan skort á
pólitískri uppfræðslu. Nú kann einhver að hugsa sem svo að
hér hafi nú verið háldnir ýmsir kynningafundir þar sem hin
ýmsusamtök hafa verið kynnt.
Það er að vísu rétt að haldnir hafa verið fundir
þar sem fulltrúum hinna ýmsu samtaka hefur verið ætlað það
þrekvirk að kynnasi starf og stefnu viðkomandi samtaka,
hafandi til umráða brot af þeim tíma sem nauðsynlegur væri til
slíkrar kynningar.
Þaí er óumdeilanlegt að "að við sem eigum að erfa
landið" verðum að efla og rækta með okkur stjórnmálaskoðun,
sem getur gert okkur kleift að standa saman gegn öllum
hægri sveiflum, leiftursóknum og frjálshyggjum sem Hólmsteinar
og Moggar framtíðarinnar kynnu að halda að okkur.
p.s. Þeir sem áhuga hefðu á að taka þátt í
leshring um Trotskíisma riti nöfn sín
á þartilgerðan lista sem upp verður
hengdur á veggi þessarar stofnunar
ellegar hafi samband við undirritaðan.
Hjálmar Theodorsson
FÍKNIEFNI
Nú á næsta tölublað Skyggnis að vera svolítið spes. Það á nefnilega að
sýna öðrum en bara MH-nemendum blaðið og þessvegna verður það ekki sama ruslið
og þið fáið venjulega. Enn sem fyr er okkur-illa við að þurfa að skrifa grein-
ar, þegar svo lítið berst af greinum frá ykkur, að við skömmumst okkar fyrir
getuleysi ykkar. En nú á að byrja á hinu vonlausa, þ.e.a.s. að fá ykkur til
að skrifa í blaðið. Við reynum auðvitað að koma. aðeins á móts við ykkur. Blað-
er þemablað, ogjnargar uppastungur komu um efni komu fram, t.d. þriðji heimurinn,
sólamál í MH, félagsstarf í framhaldsskólum og umræðuefnið sem var samþykkt,
fí3<niefni. Við vonum að^það skapis^ nokkrar umræ5ur um efnið og fólk hafi yfir-
leitt ákveðnar skoðanir á málinu.
PFMH