Barnadagsblaðið - 20.04.1939, Síða 3
BARNADAGURINN 1939
3
Fullveldi og uppeldi.
Eftir Jakob Kristinsson, fræðslumálastjóra.
Á tuttugu ára afmæli fullveldis okkar íslendinga, 1. des.
síðastl., var í ræðu og riti tíundað og fram talið flest af því,
sem mikilvægast þótti og áunnizt hafði um ræktun lands-
ins, samgöngur, byggingar o. fl., þessa tvo áratugi, sem við
höfðum þá ráðið okkur sjálfir. Og þetta framtal sýndi okk-
ur enn þá ljósar en áður, hve stórfeldar framfarir höfðu
að ýmsu leyti orðið, hve tognað hafði úr gróðurlendum,
vegir höfðu lengzt og veglegum byggingum fjölgað. Töðu-
afli og kartöfluuppskera hafði t .d. meira en tvöfaldast,
áveituhey aukizt um hundruð þúsunda hestburða, afgirt
skóglendi stækkað meira en um helming og sandgræðslu-
svæðin tvítugfaldazt; akvegir nærri fimmfaldazt, á þriðja
hundrað brýr verið byggðar, tveim milljónum króna verið
varið til vitabyggingar og hátt á níundu milljón til síma-
lagningar og annarra skyidra framkvæmda; burðarmagn
farþega- og flutningaskipa þjóðarinnar nálega þrefaldast,
bílaeignir sexfaldazt, komið upp veglegri sundhöll, fjölda
sundlauga, átta spítölum, mörgum barnask'ólum, hús-
mæðraskólum, héraðsskólum, þjóðleikhúsi, háskólabygg-
ingu o. fl. o. fl.
Ekki er að undra, þótt þessar og því líkar upptalning-
ar gerðu okkur dálítið hreykna og áfengi hinna stórstígu
framfara stigi okkur ofurlítið til höfuðs; því að miklu hef-
ir óneitanlega verið áorkað á skömmum tíma. En ekkert
af því, sem hér hefir verið nefnt eða neitt annað, sem
fram kom í orðum manna og skrifum tuttugasta fullveld-
isdaginn, veitti þó nokkra verulega vitneskju um það, sem
mikilvægast var af öllu: hvort íslenzka þjóðin hefir vaxið
að vizku og maunkostum þetta tuttugu ára skeið. Hinar
áþreifanlegu umbætur og miklu framfarir bera að vísu
glöggt vitni um áhuga, framtak og vaxandi verktækni,
og víst eru þetta góðir kostir meðan þeim er beint til far-
sældar lands og lýðs. Athuganir og skýrslur herma og,
að mannsæfin á Islandi sé að lengjast, ungbarnadauði sé
í rénun og unglingarnir sé nð verða hávaxnari en foreldr-
ar þeirra. En án viðhalds og vaxtar hinna æðri, sígildu
mannkosta, er allt þetta lítilvægt. Áhugi, framtak og tækni
getur snúist til bölvunar þjóð og landi, framlenging ham-
ingjulausrar ævi er lítið ánægjuefni og langur ættleri er
öllu leiðari en hinn, sem lægri er í lofti. Nú skal að vísu
ekkert um það dæmt, hvort hér á landi hafi heldur hall-
að til andlegs ófarnaðar, hamingjuleysis og úrkynjunar
sumra beztu mannkosta síðustu áratugi. En hitt er víst, að
slíkir mannkostir hafa dregizt aftur úr annari þróun á
landi hér.. Eða mun nokkrum koma í hug, að halda því
fram, að orðheldni, hófsemi, drengskapur í deilum og
baráttu, sjálfstjórn, sannleiksást og göfuglyndi hafi auk-
izt á hinu tvítuga fullveldisskeiði, sem þó hefir verið svo
auðugt að ytri umbótum? En ef vexti þessara kosta hefir
hnignað, þá er fullveldið og flest önnur verðmæti í hættu.
Um engan hlut í veröldinni ætti okkur að vera annara
en það, að ala upp sterka og göfuga menn. Ef það gleym-
ist, er til einskis barizt. Uppeldi barna og unglinga er okk-
ar mikilvægasta mál. Hver maður býr alla ævi að þeirri
meðferð og mótun, sem vöxtur hans, hinn ytri og innri,
mmtmm
mmmmv
Gefið börnunum
All-Bran og Corn Flakes
aiibrah
daglega.
Fæst allsstaðar.
Verzlunin BRYNJA
Reykj avík.
Selur ávallt:
Fyrsta flokks verkfæri
fyrir trésmiði, húsgagnasmiði, málara og múrara.
Garðyrkjuverkfæri.
Útsögunartæki og smærri verkfæri fyrir börn.
Útvegum smiðatól við trésmiði nemenda í barnaskólum.
Laugaveg 3.
Föt, fataefnl í mikiu úrvali.
Fötin sauniuð á stuttum tíma.
Dömukápur og dragtir, saumað eftir nýjustu tízku.
Mikið úrval af Sumarefnum og tilbunum kópum.
Klæðaverzlun
Andrésar Andréssonar h.f.