Barnadagsblaðið - 20.04.1939, Side 11
BARNADAGURINN 1939
11
Kínverkskur garður.
Eftir frú Oddnýju E. Sen.
Kínverskur garSur getur verið lítill undraheimur út af
fyrir sig, þó hann sé í stórborg, því að í kringum hann eru
háir veggir, sem ekki sést út yfir. Garðurinn er jafnan gerð-
ur í eftirlíkingu náttúrunnar, eins eðlilega og unnt er, og
reynt er að koma öllu þannig fyrir, „að andann gruni eitt-
hvað fleira en augað sér“. Það eru hæðir og lautir, ár og
lækir, tjarnir, bugðóttar götur, grjóthólar, bambusreyr, alls-
konar tré, akrar og blóm. Á hæðinni er svo turn, í lautinni
við tjörnina laufskáli, yfir ána brú og einhvers staðar innan
um trén krókótt göng.
Húsið gæti verið í miðjum garðinum, en hvar sem það er,
verður manni stársýnt á stórar málaðar myndir af víga-
mannlegum herforingjum. Þeir eiga að hræða burt illa anda.
Þetta á rót sína að rekja til atburðar er kom fyrir á 7. öld-
inni. „Sonur Himinsins" (þ. e. keisarinn) var veikur. Á
nóttunni var stöðugt barið á svefnherbergisdyr hans, svo að
hann naut lítils svefns. Drottningin kallaði æðstu menn rík-
isins á fund til að ræða um varnir gegn þessum ofsóknum
illu andanna. CH’IN SHU-PAO og YÚ-CH’IH CHING-TE,
hershöfðingjar, buðust til að vera á verði við dyrnar, alvopn-
aðir. Þetta dugði, illu andarnir þorðu ekki að eiga við hinar
frægu hetjur. Eftir nokkrar nætur óttaðist „Sonur Himins-
ins“, að þetta væri ofraun fyrir þá, og stakk upp á því, að
láta mála myndir af þeim á töflur og hengja á dyrnar. Þetta
dugði, þeir illu voru ekki aðgætnari en þetta.
Nokkrar nætur liðu, þá er farið að berja á hurðina bak-
dyramegin. Að ráðum drottningar var málverk af ráðherr-
anum Wei Cheng hengt á hurðina, og heyrðist aldrei upp
frá því til illu andanna. Þessir þrír merkismenn eru kall-
aðir Hliða-guðirnir, og- hafa áreiðanlega notið meiri frægð-
ar og hylli en sögur fara af. Þeir gæta enn skyldu sinnar.
Stundum er garðurinn bein eftirlíking af vissu landslagi,
og þau borða vel. — Þegar búið er að borða, hvíla yngiú
börnin sig í hálftíma úti í
skýlinu. Eldri börnin fá
að fara út í Skerjafjörð.
Þau fara í sólbað og busla
í sjónum. Þau eru treg til
heimfarar og vilja tefjast
við að tína skeljar. Samt
komast þau heim á réttum
tíma til að drekka mjólk-
ina og borða brauðið. Nú
eru börnin kát og æsla-
full og hafá frá mörgu að
segja. Það er líkur kliður
og í fuglabjargi, meðan
þau eru að koma sér fyrir við borðin.
Þegar allir eru búnir að þvo sér og greiða, skipa þeir sér
í raðir út við hliðið. Klukkan sex er þeim hleypt út og um
leið er aðgætt, hvort öll fötin séu með og að enginn hafi
komist hjá þvottinum. „Verið þið bless!“ — Og þar með er
einn sólskinsdagur í Grænuborg liðinn.
Guðrún G. Stephensen.
1\ Skerjafirði.
SHELL
Motor Oi/s
Beztar drýgstar
Skiftið um strax í dag
til hinna^ nýju olíu.
SHELL
smurt
er
MANOL
Hörundsnæring.
GRÆÐIR,
MÝKIR,
NÆRIR OG
STYRKIR
HÖRUNDIÐ.
INGÓLFS APÓTEK,
REYKJAVlK SlMI: 1330.
nooooooooooooooooooooooooooooooo^QS
Hælbanda-
Lakkskórnir
eru komnir!
Einnig ýmsar fleiri tegundir.
-/jatUA AAOH
Skóverzlun.
n?ooooooooo<>ooooooooooooo<>oooooooH