Barnadagsblaðið - 20.04.1939, Side 14

Barnadagsblaðið - 20.04.1939, Side 14
14 BARNADAGURINN 1939 Framkvæmdir og fjárhagur „Sumargjafar“ árið 1938. Félagið byrjaði starfsemi sína að vanda með hátíðahöld- um á sumardaginn fyrsta — barnadaginn —. Undanfar- ið hafði hvert ár fært nýtt met í fjáröflun, þrátt fyrir veik- indi og erfiðar ástæður. Svo varð einnig í þetta sinn. Reykvíkingar eru raungóðir. Hreinn ágóði af barnadeginum varð (af skemmtunuij- um kr. 2.552.00, merkjasölu kr. 3.857.00, ,,Sólskin“ kr. 1.620.00, „Barnadeginum“ kr. 1.387.00) alls kr. 9.416.00. Aðrir tekjuliðir félagsins voru gjafir og áheit, minningar-( spjöld, bazar, húsaleiga í Grænuborg, vextir af peningum, meðlög barna á dagheimilunum, opinberir styrkir (frá bæj- arsjóði kr. 4.500.00 — ríkisstyrkur kr. 3.000.00) og árgjöld félagsmanna. Um s.l. áramót voru félagsmenn rúml 600. — Brúttó-tekjur af allri starfsemi félagsins árið 1938 (þar í taldir styrkir) varð um 30 þúsund krónur. Brúttógjöld urðu um 28 þúsund krónur. Fé þessu er fyrst og fremst varið til dagheimilanna, viðhalds og viðbótar á áhöldum, viðhalds húsanna og viðbóta, auk ýmsra gjalda, sem svona viðamikil starfsemi þarf ætíð að standa skil á. Fyllstu varúðar er gætt um meðferð fjárins, og má fullyrða að hver eyrir fer fyrir nauðsynleg verðmæti og þangað sem þörfin er mest. Endurskoðaðir ársreikningar, ásamt skýrslu um störf fél., eru prentuð árlega og send félagsmönnum, alþingismönnum og bæjarfulltrúum. Dagheimilin í Grænu- og Vesturborg störfuðu um þriggja mánaða tíma s.l. sumar. Alls komu á bæði dag- heimilin þennan tíma 250 börn, og dvalardagar þeirra urðu 11466. En heildarkostnaður vegna sumar-dagheim- ilanna varð kr. 13.400.00 Um 70% barnanna dvöldu kostn- aðarfrítt vegna fátæktar, ómegðar, veikinda og atvinnu- leysis. Nýung var það, að nú var í fyrsta sinni ráðist í að reka vetrarheimili í Vesturborg. Er það í þetta sinn bæði dag-< og sólarhrings-heimili. Heimili þetta starfaði 3 mán. fyr- ir nýár (og starfar enn). 30 börn komu á heimilið, voru dval- ardagar þeirra alls 1467, en kostnaður til nýárs kr. 3.409.00. 280 böm hafa því notið vistar á dagheimilum fél. 1938. Dvalardagar þessara barna eru alls um 13 þúsund, er kostuðu félagið 17 þús. kr. — Um 20 starfsstúlkur hefir félagið haft í þjónustu sinni á árinu, auk læknis, smiða, garðyrkjumanna o. fl. Kaupgreiðslur til þessa fólks, á- samt hlunnindum (fæði, húsnæði) hafa alls numið um 10 þúsund kr. Félagið veitir því nokkra atvinnu. Framfarir barnanna voru góðar, svo sem vog og mál- band sanna, ásamt umsögn heimilislæknis. Hefði að vísu mátt segja frá því t. d., hvað mörgum meðal-mannslengd- um og þyngdum þessi 280 börn bættu við sig samanlagt s. 1. starfsár. En því verður að sleppa. Hins má geta, að fél. hefir frá sumarmálum í fyrra til jafnlengdar nú framreitt rúmlega 30 þúsund máltíðir fyrir börn sín. Auk þessa höfðu börnin svo auðvitað frjálsan aðgang að sólaryl og birtu, hreinu lofti og gróandi jörð. En um áhrif þessa geta þeir einir dæmt, sem sjá börnin, þegar þau koma á vorin, og svo aftur, er þau fara, heim á haustin, ísak Jónsson. Bunaðarbankí Islands Reykjavík. — Útibú á Akureyri Kennnið börnum yðar að spara. Pað gerið þér með því að gefa þeim nýjan sparibauk frá Búnaðarbankanum.

x

Barnadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnadagsblaðið
https://timarit.is/publication/1748

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.