Barnadagsblaðið - 24.04.1952, Page 8

Barnadagsblaðið - 24.04.1952, Page 8
6 BARNADAGSBLAÐIÐ Merki Sumargjafar 1952 hefur oft lítið þurft að hafa fyrir öflun þeirra. Afleiðingar þessa ofeldis eru nú að koma í ljós og eru ekki sem glæsileg- astar. Unglingarnir, sem höfðu nresta fjármunina, hugsuðu lítið um að afla sér vinnumenntunar, þeim lærðist að „skrópa úr lífsins skóla“ og foreldrarnir gripu ekki í taumana eins og þurft hefði, enda voru þeir margir hverjir smitaðir af sömu velgegnisvímunni og unglingarnir. Nú hefur harðnað í ári og æskan sem ólst upp við auðinn, á nú að sýna hvort hún sé færari um að erfa landið en þeir sem gengu á undan og höfðu úr minnu að spila. Reynslan er sorgleg. Mikill hópur unglinga þoljr ekki kreppuna, skilur ékki að auðfengnu gæðin eru horfin og alvara ísalandsins tekin við á ný. Fanga- ráð sumra er að sitja auðum höndum heima hjá foreldrum eða öðrum ná- komnum ættingjum, aðrir ganga enn lengra og taka þau gæði af öðrum, sem þá lystir en brestur getu eða dug til að afla. Reykjavík, litla stórborgin, er allt í einu orðin borg afbrota, sem lítið gefa eftir glæpunr miljónaborganna. Blöðin birta frásagnir um þjófnaði, innbrot, rán og árásir af hrottalegustu gerð. En þau birta ekki frásagnir um höfug tár vonsvikinna mæðra, sem syrgja yfir litlu drengjunum sínum, sem þær liafa borið á brjósti, veitt alla þá aðhlynningu, sem þær gátu en samt misst út á refilstigu. „Ekki skal gráta Björn bónda, heldur safna liði.“ Þýðingarlaust er að sitja auð- um höndum og syrgja yfir því hvernig komið er. Mannlegra er að leggja þeirri kynslóð, sem nú er að komast á unglings- árin lið svo hún hverfi ekki einnig út á auðnuleysisstíga eða jafnvel afbrota- brautir. Ég hef áður minnst á, að nauðsynlegt sé að reyna að koma sem flestum ung- lingum til sveitastarfa. Nú er ekki svo að skilja að sveitastörfin ein séu lausnin. Hvert það starf sem er við hæfi unglings- ins er honum gott starf og skiptir þá engu máli hvort stéttin, sem starfið vinn- ur, klæðist skinnstakki eða skrautlegri búningi. Við erum hér komin að mergi málsins, en hann er sá, að hver unglingur fái tæki- færi til að vinna það starf, sem honum leikur mestur hugur á. En til þess að svo megi verða, er nauðsynlegt, að útvega honum aðgang að vinnustöðum, fyrst til þess að horfa á og fr^eðast og síðan til þess að læra sjálfur. Aðstaða reykvíska ung- lingsins er svo gerólík aðstöðu sveita- barnsins eða unglingsins í litla sjávar- þorpinu, að fæstir munu enn hafa gert sér það ljóst. Reykjavíkurunglingurinn Sú nýbreytni hefur nú verið gerð í sambandi við merkjasölu Barnavinafé- lagsins að nú verða seld tvenns konar merki, borðamerki, sem kosta 5 kr. eins og undanfarin ár og happdrættismerki. Happdrættismerkin eru borðalaus og kosta 10 kr. Þau eru tvöföld og hver sem kaupir happdrætismerki þarf ekki annað en að rífa það upp (opna það) þá sér hann strax hvort hann hefur hlotið vinn- ing eða ekki. Fjöldi happdrættismerkj- anna, sem sett verða í umferð er svipað- ur þeim fjölda, sem selzt hefur hjá félag- inu á Sumardaginn fyrsta undanfarin ár, svo það er vissara fyrir fólk, sem girnist eitthvað af munum þeim, sem eru á með- fylgjandi skrá, að kaupa merkið sitt tím- anlega, þ. e. áður en allt verður uppselt. Listi yfir muni í happdrætti (happ- drættismerki) Sumargjafar, Sumardaginn fyrsta 1952: 1. Karlmannsföt (gaberdine). 2. Barnarúm, með öllu tilheyrandi: sæng, dýnu, kodda, laki, kodda- og sængurveri. 3. Barnarúm með öllu tilheyrandi eins og nr. 2. 4. Módelkjóll (dömu). 5. Kvenkápa. 6. 5 kg. kaffi. 7. Rjómaterta. 8. 4 pottar af rjóma. 9. 1 kg. smjör. 10. Sólskin frá byrjun í skrautb., 20 árg. 11. Sólskin —- — - — — 12. Sólskin — — - — — 13. Þriggja mánaða dvöl á leikskóla. 14. - - - - - ferðast einkum milli skóla og heimilis og á hvorugum staðnunr getur hann lært framleiðslustörf landsins. Foreldrar og kennarar ættu því að taka höndum sam- an um að reyna að auka kynni barna og unglinga af framleiðslunni og jrá helzt að útvega þeim starf, sem getur þroskað þá alhliða og kennt þeim að vinnan er einn aðalhamingjugjafi lífsins. Hér í Reykjavík er nú að vaxa upp mjög fjölmenn ný kynslóð. Við sem eldri erum megum ekki bregðast þessari kyn- 15. Þriggja mánaða dvöl á dagheimili. 16. - - - _ 17. Karlmannshattur. 18. 5. kg. kaffi. 19. Sólskin frá byrjun. 20. Telpukjóll á 5—6 ára. 21. Drengjaföt (matrósa). 22. Telpukjóll (matrósa). 23. Þriggja mánaða dvöl á leikskóla. 24. Þriggja mánaða dvöl á dagheimili. 25. Rafmagnslampi (gólflampi). 26. Fataskápur. Leikföng: 27. Rugguhestur (inni). 28. Jeppi. 29. Rugguhestur (inni). 30. Snigill. 31. Dúkku bollapör. 32. Rugguhestur fyrir tvo, notaður úti. 33. Kappsiglingaskúta. 34. Þvottabretti. 35. Rugguhestur (inni). 36. Fótknöttur. 37. Járnbraut. 38. Skjaldbaka. 39. Sendiferðahjól og barnavagn. 40. Brúðuhús. 41. Asni og vigt. 42. Kerra. 43. Hundur. 44. Traktor og karl. 45. Byssa. 46. Jeppi. 47. Jeppi. 48. Keiluspil. 49. Skip. 50. Skip. slóð. Hún á heimtingu á að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til þess að skapa henni þroskaskilyrði. Bezta sumar- gjöfin, sem foreldrar geta gefið börnum sínum er loforð um starf til sjávar eða sveita meðan sól er hæst á lofti. Iðju- leysi er unglingunum hættulegra en allt annað. Vinnugleði er vegurinn til vel- gengni. Velgengni er leiðin til lífsham- ingju. Gleðilegt snmar!

x

Barnadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnadagsblaðið
https://timarit.is/publication/1748

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.