Kirkjublaðið - 08.05.1943, Síða 4
4
KIRKJUBLAÐIÐ
KIRKJUBLAÐIÐ
kemur út hálfsmánaðarlega að
sumrinu en vikulega á vetrum,
ca. 40 blöð á ári. Verð til næstu
áramóta kr. 10.00, en síðan kr.
15.00 árg.
Útgefandi og ábyrgðarmaður:
Sigurgeir Sigurösson biskup.
Utanáskrift blaðsins er:
KIRKJUBLAÐIÐ,
Reykjavík. Pósthólf 532.
ísafodarprentsmiðja h.f.
Frú Gerd Grieg,
hin fræga norska leikkona, er
nýlega komin til höfuðstaðarins.
Ætlar frúin að annast um og
undirbúa sýningu á leikriti Ib-
sens: Veizlan á Sólhaugum. —
Frumsýning leiksins mun verða
þann 17. maí, á þjóðhátíðardegi
Norðmanna. — Þetta er í ann-
að skiftið, sem frúin heimsæk-
ir Island. Á síðastliðnu sumri
dvaldi hún hér um hríð, ásamt
manni sínum, skáldinu Nordal
Grieg.
Orðið, eftir Kaj Munk.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
um þessar mundir athyglisvert
leikrit, er vakið hefur mikla eftir-
tekt. Er það „Orðið“, eftir danska
prestinn Kaj Munk, sem nú þyk-
ir einn snjallasti leikritahöfund-
ur meðal Dana. Leikurinn fjallar
um trúmál, og eru fulltrúar ým-
issa trúarskoðana látnir leiða þar
saman hesta sína. Séra Sigurjón
Guðjónsson, prestur í Saurbæ,
þýddi leikritið. Virðist hvorum
tveggja hafa vel tekizt, þýðanda
og leikendum, enda aðsókn að
leiknum verið mikil.
Listsýningin.
Félag íslenzkra listmálara hef-
ur undanfarið haft listsýningu í
hinum nýja sýningarskála félags-
ins. Aðsókn var geysilega mikil.
Nokkrar myndir seldust. Sýning-
in gaf allgott yfirlit yfir þróun
íslenzkrar myndlistar á síðustu
ártugum. Þó mundu ýmsir hafa
kosið, að sýningin hefði verið
fjölskrúðugri. Nokkrir málarar
áttu engar myndir á sýningunni,
aðrir helst til fáar, t. d. Kjarval.
En — fáir eru smiðir í fyrsta
sinn — og vonandi tekst næsta
sýning ennþá betur.
Jóhannesarpassían.
Til merkustu viðburða á sviði
'tónlistarinnar hér í Reykjavík
má án efa telja flutning Jóhann-
esarpassíunnar eftir Johan Seb-
astian Bach. Þetta fræga tónverk
var flutt nokkur kvöld í fríkirkj-
unni í Reykjavík við afar mikla
aðsókn. — Dr. Urbantschitsch
stjórnaði hljómsveit og kór, og
mun öllum, sem á hlýddu, hafa
þótt mikið til koma. Á föstudag-
inn langa var tónverki þessu út-
varpað, svo að landsmönnum gæf-
ist kostur á að hlýða á þetta stór-
fenglega verk. Ritað er nánar um
Jóhannesarpassíuna á öðrum stað
í blaðinu.
Verðlækkun.
Verðlækkun nokkur á landbún-
aðarafurðum kom til fram-
kvæmda 1. þ. m.
I Reykjavík lækkaði mjólk úr
kr. 1,75 í kr. 1,40 lítrinn, og aðr-
ar mjólkurafurðir í svipuðu hlut-
falli.'
Ennfremur hefur kjötverðið
verið lækkað nokkuð.
Er þetta einn þáttur í þeim
ráðstöfunum þings og stjórnar
að lækka dýrtíðina í landinu.
TilkYsmmg
ðil sék&aasrpresta
Á biskupsskrifstofunni eru nú fyrirliggjandi:
PRESTSÞJÓNUSTUBÆKUR
SÖKNARMANNA TÖL
BRÉFABÆKUR
Ennfremur eyðublöð undir eftirfarandi vottorð:
FÆÐINGAR og SKÍRNARVOTTORÐ
HJÓNA VÍGSLUVOTTORÐ
DÁNARVOTTORÐ
LÍFSVOTTORÐ
Prestarnir snúi sér til skrifstofunnar ef þá vantar bækur þess-
ar eða eyðublöð.
Biskup.
Bœkur Prestaíélags íslands
„Hálogaland“,
eftir Eivind Berggrav biskup, kostar í shirtingsbandi
8 kr. í skinnbandi 10 kr. Þeim, sem vilja eignast bók
þessa fræga höfuðbiskup Noregs, er vissast að fresta
ekki lengi kaupum á henni.
„Heimilisguðrækni“.
Nokkrar bendingar til heimilanna. Kr. 2,50. Ób. 1,50.
„Samanburður Samstofna guðspjallanna“,
gerður af Sigurði P. Sívertsen. I bandi 6 kr. Ób. 4 kr.
EHndi um Guðs ríki
eftir dr. Björn B. Jónsson. Ób. kr. 2,50 B. 3,50 og 4,00.
„Kirkjusaga“,
eftir Vald. V. Snævarr skólastj. Verð í bandi kr. 3,75.
„Kristur á vegum Indlands“,
eftir Stanley Jones. Þýð. séra Halldór Kolbeins. 2 kr.
„Messusöngvar“
Sigfúsar Einarssonar kosta í bandi 4 og 5 krónur.
„Prestafelagsritið“
fæst hér eftir með þessu verði: 1. árg. 5 kr., 3.—16.
2 kr. hver árgangur. En nýir kaupendur að „Kirkju
ritinu“ fá það fyrir helming þess verðs. — 2. árg. er
ófáanlegur í bóksölu, en vilji einhver selja óskemmt
eintak, borgar Prestafélagið fyrir það 10 krónur.
„Kirkjuritið“.
Nýir kaupendur fá sérstök kostakjör. Einn af vinum
ritsins skrifar nýlega: „Áhrif þess á mig og starf mitt
meðal Islendinga hér vestra hafa verið andlega hress-
andi og blessandi. Fyrir margar ritgerðir vildi ég
sérstaklega þakka, bæði efni þeirra og anda. Og þá
ekki sí'zt, hve vel tekst að halda ritinu þjóðlega að-
laðandi og fréttnæmu um hag kirkjunnar, framtak og
starfsháttu. Dreymt hafði mig um að geta aukið út-
breiðslu þess. Eintak það, er ég kaupi, er nærri „lesið
upp til agna“.
Ofantaldai' bækur má panta hjá bókaverði Prestafélags íslands,
frú Elísabetu Jónsdóttur. Hringbraut 144, sími 4776, Reykja-
vík, hjá bóksölum í Reykjavík og víðar, og hjá flestum prest-
um landsins.
Ennfremur fást hjá sama Skýringar við Galatabréfið eftir
Magnús Jónsson, verð 5 kr., og Skýringar yfir Markúsarguð-
spjall og Inngangsfræði Gamla testamentisins eftir Ásmund
Guðmundsson, verð 15 og 10 krónur.
Laus prestaköll
I. Sauðlauksdalsprestakall íBarðastrandaprófastsdæmi (Sauðlauks-
dals-, Saurbæjar- og Breiðuvíkursóknir).
Heimatekjur:
1. Eftirgjald eftir prestssetrið ................... kr. 387.00
2. Afb. og vextír af láni ........................... — 160.00
3. Fyrningarsjóðsgjald ............................... — 50.00
Samtals kr. 597.00
Umsóknarfrestur til 15. maí n. k.
Veitist frá fardögum.
II. Bíldudalsprestakall í Barðastrandaprófastsdæmi (Bíldudals- og
Sélárdalssóknir).
Heimatekjur:
1. Árgjald af prestsseturshúsi .................... kr. 462.00
2. Fyrningarsjóðsgjald ............................ — 60.00
Samtals kr 522.00
Umsóknarfrestur til 15. maí n. k.
Veitist frá fardögum.
Biskupinn yfir Islandi
Reykjavík 20. marz 1943.
Sigurgelr Sigurðsson.
BúnaSarfélag Islands
hefur opnað ráðningarskrifstofu landbúnaðarins í húsi sínu, Lækj-
argötu 14 B. Sími 2151.
Skrifstofutími kl. 9—12 og 1—6 e. h.
Aðalstarfsmaður verður Metúsalem Stefánsson.
Vinnuveitendur, sem óska aðstoðar ráðningarskrifstofunnar um
úevegun verkafólks til landbúnaðarins, um lengri eða skemmri
tíma, svo og verkafólk, sem ráðast vill í sveitavinnu, snúi sér til
skrifstofunnar hið allra fyrsta, og gefi báðir aðilar sem .greini-
legastar upplýsingar um óskir sínar og kröfur í sambandi við ráðn-
ingu ef til kemur.
Þeir, sem ekki geta sjálfir gengið frá ráðningarsamningum,
verða að fela einhverjum öðrum umboð til þess fyrir sína hönd.
BúnaSarfélag íslands.
*