Kirkjublaðið - 26.03.1945, Síða 4
\
¥
\
Hríse^jarkirkja
Stutt athugasemd
1 Kirkjublaðinu, III. árg., 4.
tbl., er grein um kirkjuna í
Hrísey á Eyjafirði, er reist var
1934. Þar standa meðal ann-
arra upplýsinga um kirkjuna
þessi orð: „Er hún fyrsta kirkj-
an, sem byggð hefir verið í
Hrísey, svo að vitað sé“. —
Þetta er sögulega rangt og þarf
því leiðréttingar, af því að það
er birt af merku og hlutaðeig-
andi málgagni.
Mig minnti, þegar er ég las
þetta, að kirkja hefði verið í
Hrísey í kaþólskum sið. Hef ég
nú athugað þetta í íslenzku
fornbréfasafni, og er þá ekki
um að villast eftir heimildum
þess, að kirkjan hefur verið í
Hrísey í kaþólskum sið a.m.k.
kringum hálfa aðra öld (1318
—1461).
Aðrar heimildir um þetta eru
ísl. fornbréfasafn hef ég nú eigi
fyrir hendi. En hér skal nú
bent á þau ár og þá staði, þar
sem getið er þessarar fornu
kirkju:
1318.
lAuðunarmáldaga, sem ár-
settur er 1318, er brot af mál-
daga Hríseyjarkirkju, og hefir
hún þá verið vísiteruð. (D. I.,
n. bls. 458). Og í registri yfir
kirkjur í máldagabók Auðunar
biskups er Hríseyjarkirkja talin.
(D. I. II. bls. 488).
1394.
I visitazíubréfi, er Pétur bisk-
up Nikulásson hefur gefið út og
látið ganga um biskupsdæmi sitt
1394, nefnir biskup Hrísey með-
al þeirra staða, er hann ætli að
vísitera, þótt ekki verði séð af
máldagsbókinni, að hann hafi
þá komið þar. (D. I. III, bls.
507).
%
1425.
I skýrslu Hannesar Pálssonar,
„umboðsmanns og kapelláns
Danakonungs“, um yfirgang, rán,
vígaferli, löglausa verzlun og
alls konar óskunda Englend-
inga á íslandi á árunum 1420—
1425“ — stendur meðal annars:
„Item ecclesiam risay (þ. e.
Hrísey) cremauerunt“. (Bréfið
er allt á latínu. — D. I. IV,
bls. 328).
1429.
GUÐSÞJÓNUSTA Á AMERÍSKU
HERSKIPI
DAVÍÐ
SIQVRBSSON
Herpresturinn framkvœmir guðsþjónustuna undir
beru lofti á þilfari skipsins.
uee-
MAl,
BAHN4NN4
BARNABÆN
Ó, faðir, gjör mig lítið Ijós
um lífs mins stutta skeið,
til hjálpar hverjum hal og drós,
sem hefir villst af leið.
Ó, faðir, gjör mig blómstur blitt
sem brosir öllum mót,
og kviðalaust við kalt og hlýtt
er kyrrt á sinni rót.
Ó, faðir, gjör mig Ijúflings-lag,
sem lífgar hug og sál
og vekur sól og sumardag,
en svæfir storm og bál.
trésmiðameistari og fyrrverandi
sóknarnefndaroddviti á Akur-
eyri andaðist á heimili sínu hinn
22. febr. s. 1., 82 ára gamall.
Hann var fæddur að Kristnesi
í Garðsárdal í Eyjafirði, afréttar-
býli, sem nú er löngu komið í
eyði, hinn 7. júlí 1862. Lærði
hann ungur trésmíði hjá móður-
bróður sínum, Árna trésmiða-
meistari Hallgrímssyni á Garðsá,
en hann var lærður hjá Ólafi
timburmeistara Briem á Grimd,
föður Valdimars vígslubiskups
Briem og þeirra systkina. Árið
1885 settist Davíð að á Akur-
eyri og átti jafnan heimili þar
síðan. Stundaði hann trésmíði
og húsbyggingar og var lengi
mikilvirkur atvinnurekandi.
Hann var um skeið í bæjar-
stjórn Akureyrar, og lengi i
skattanefnd, niðurjöfnunarnefnd
og matsmaður fasteigna. Var
hann og einn af stofnendum
Sparisjóðs Norður- og Austur-
amtsins og Iðnaðarmannafélags
Akureyrar og heiðursfélagi þess
frá 1935. En lengst af öllu
starfaði hann sem sóknarnefnd-
armaður, alís 42 ár samfleytt,
þar af 27 ár oddviti sóknar-
nefndar og 33 ár kirkjuhdld
arí. Árið 1923 bar hann fyrstur
fram tillögu um byggingu nýrr-
ar kirkju á Akureyri og um af-
hending kirkjunnar í hendur
safnaðarins, og gáfu þau hjón
þá 100 krónur, sem vera skyldi
fyrsti vísir að byggingarsjóði
hinnar nýju kirkju. Veldur sa
jafnan miklu sem upphafinu
veldur, og má því segja að Da-
víð hafi með þessari forgöngu
sinni átt drýgstan þátt í því að
kirkjubyggingarmál Akureyrar
komust áleiðis. Gafst honum að
lifa það að sjá nýja kirkju rísa,
afhenta söfnuðinum til umsjár
og f járhalds.
Davíð var kvæntur Þórdísi
Stefánsdóttur, Péturssonar,
prests að Hjaltastað. Eiga þau
eina dóttur barna, Sigríði, gifta
Zofóníasi Árnasyni, yfirtollverði
á Akureyri.
Davíð var jarðsungin'n á Ak-
ureyri 3. marz að viðstöddu
miklu fjölmenni. Báru iðnaðar-
menn hann í kirkju, sóknarnefnd
og safnaðarfulltrúi úr kirkju en
söngflokkur kirkjunnar söng i
kirkjunni. Davíð Sigurðsson
mun jafnan talinn einn af
merkustu borgurum Akureyrar
meðan hans naut við. Skuld
Akureyrarsafnaðar við hann
fyrir langt og óeigingjarnt starf
fyrir kirkju- og kristnilíf þar
verður aldrei of metin og þvi
síður goldin. «
F. J. R.
Gjafir og áheift
til Kálfatjarnarkirkju
1944
Hjónin Soffía Benjamínsdótt-
ir og Guðmundur Gíslason, tii
minningar um Gísla Sigurðsson
frá^ Knararnesi kr. 500.00.
Bræðurnir Jón og Guðmundur
Brynjólfssynir til minningar um
móðurbróður þeirra Guðmund
Guðmundsson kr. 100.00 hvor.
Frá Knararnesing kr. 50.00.
Frá hjónum, sem ekki vilja
láta nafn síns getið; olíuofn.
stóran og vandaðan, til upphit-
unar í kirkjuna, til minningar
um dóttur sína er jörðuð er í
Kálfatjarnarkirkjugarði.
Áheit:
Frá Helga Magnússyni,
Brunnastöðum, kr. 50.00. Frá
Guðmundi Þórarinssyni, Skjald-
arkoti, kr. 100.00. Frá S. S,
10.00.
Með innilegu þakklæti.
Fyrir hönd safnaðar Kálfa-
tjarnarsóknar:
Sóknarnefndin.
Ó, faðir, gjör mig styrkan staf
að styrkja hvern, sem þarf,
unz allt það pund, sem Guð mér gaf,
eg gef, sem bróður-arf.
Ó, faðir, gjör mig sigur-sálm,
eitt signað trúar-lag,
sem afli blæs í brotinn hálm
og breytir nótt i dag.
• Mattlúas Jocliumsson.
PRESTASTEFNA ÍSLANDS
Hin árlega prestastefna íslenzku kirkjunnar verður að forfalla-
lausu háð í Reykjavík dagana 20.—22. júní næstkomandi, að
báðum dögum meðtöldum. »
Prestastefnan hefst með guðsþjónustu í dómkirkjunni miðviku-
daginn 20. júní kl. 1 e. li.
Dagskrá prestastefnunnar verður nánar auglýst síðar.
BISKUPINN YFIR ÍSLANDI
Kirknatal í Hólabiskupsdæmi
1429 í bréfabók Jóns biskups
Vilhjálmssonar endar með þess-
um orðum: In summa sóknar-
kirkjur í Hólabiskupsdæmi tíu-
tigir og viij — með Grímsey,
Flatey og Hrísey. (D. I. IV.,
bls. 382).
1461.
I máldagabók Ólafs biskups
Rögnvaldssonar (1461) eru
þessi orð: „Item á Syðstabæ í
Hrísey alkirkja til söngs, og er
niðri“. — Og síðar í sömu mál-
dagabók, þar sem alkirkjur
biskupsdæmisins eru allar taldar
í einni skrá: „I Hrísey prestur“
(D. I. V. bls. 356 og 360).
Hríeyjarkirkja virðist þannig
hafa verið fallin árið 1461, hvort
sem hún hefur „verið niðri“ eða
ekki, allt frá hervirki Englend-
inga. Um það brestur mig allar
heimildir og eins um hitt, hvort
hún hefur verið reist við eftir
1461. Væri vel, ef einhver kirkj-
unnar manna, er betri aðgang
hefur að heimildum en ég, vildi
athuga um það.
8. marz 1945.
Konráð Vilhjálmsson
frá Hafralæk.
Reykjavík, 20. fnarz.1945.
Aths.: Kirkjublaðið er grein-
arhöfundi þakklátt fyrir þessar
upplýsingar. Ummæli þau, hér í
blaðinu, er hann gerir að um-
talsefni,. voru tekin upp úr að-
sendri grein um kirkjur í Valla-
prestakalli. Vér erum höfundi
samdóma um það, að æskilegt
væri að rannsaka nánar sögu
hinnar gömlu kirkju í Hrísey.
Eitt af þeim verkum, sem enn er
að mestu leyti óunnið er að
safna í heild gögnum um kirkju-
staði á Islandi bæði að fornu
og nýju. Gæti þab orðið merki-
leg bók, er geymdi mikilsverð-
an sögulegan fróðleik.
Sigurgeir Sigurðsson.
Gerizft áskrifendur
• að l
Kirk j ublaðinu
HRINGIÐ 1 SÍMA 5015
t