Kirkjublaðið - 12.09.1949, Blaðsíða 1

Kirkjublaðið - 12.09.1949, Blaðsíða 1
VII. árg. Reykjavík, mánudaginn 12. september 1949. 15. tbl Þverárkirkja í Laxárdal Að Þverá í Laxárdal í S. Þing- eyjarsýslu er kirkju getið í Auðunnarmáldaga um 1318 og eru þá í sókninni talin vera 5 bænahús. Kirkjan var Péturs- kirkja og Þverá mun verið hafa prestssetur um alllangt skeið í kaþólskum sið. Síðan varð kirkjan útkirkja frá Grenjaðar- stað og hefur svo verið fram til þessa dags. Um nokkurt skeið eftir 1890 var Þvérá þjónað frá Helgastöðum. Eigi er mér kunnugt um hvar bænahús þessi fimm hafa stað- ið, en áreiðanlega munu bæna- hús hafa verið á Halldórsstöð- um, Hólum og Kasthvammi, enda getur Árni Magnússon þess í jarðabók sinni. Þverárkirkja er og hefur jafnan verið bændakirkja. Er það steinkirkja byggð árið 1878, traustlegt hús, en ekki stórt og lágur turn á þaki. Henni hefur og jafnan verið sómasamlega við haldið. Við biskupsvisitaziu árið 1892 eru helztu gripir kirkj- unnar taldir þessir:. Altaris- tafla, máluð af Arngrími Gísla- syni eftir erlendri fyrirmynd, kaleikur með patínu og dúk, trébaukur gamall undir altaris- brauð, tveir stórir altarisstjak- ar úr silfurpletti, ljósahjálmur úr gleri með 8 ljósapípum, kirkjuorgel dágott og tvær væn- ar klukkur í kirkjuturninum. Séra Árni Sigurðsson Séra Árni Sigurðsson frí- kirkjuprestur hefur um skeið verið sjúkur og legið í Landa- kotsspítala. Er hann nú á bata- vegi, en mun þó verða að halda sér frá störfum í nokkra mán- uði. Vígsla Möðrudalskirkju á Fjöllum Sunnudaginn 4. sept. síðastl. vígði biskupinn nýja kirkju í Möðrudal á Fjöllum í N.-Múla- prófastsdæmi. Möðrudalssókn er minnsta kirkjusókn á land- inu. I henni eru aðeins tveir bæir, Möðrudalur og Víðidalur. í Möðrudal var örlítil timbur- kirkja, gömul og hrörleg. Fauk hún af grunni og ónýttist með skýjaþykkninu og svipti burt þokunni er sveipað hafði hin tignu fjöll í suðri óg vestri, og blasti nú við öræfafegurðin í öllum sínum hreinleika og heill- andi dýrð. Biskupinn framkvæmdi vígsl- una og flutti vigsluræðu frá alt- ari, en prófasturinn séra Jakob Einarsson á Hofi og sóknar- Kirkjan í Mfiðrudal. öllu árið 1926 og hefur verið kirkjulaust þar síðan. En nú hefur Jón bóndi Stefánsson í Möðrudal reist þarna á sinn kostnað myndarlega og snotra kirkju, er rúmar' í sæti um 50 manns eða nokkru fleira en sóknarfólkið allt. Þetta er stein- kirkja með forkirkju og turni og setur að verulegu leyti nýj- an svip á staðinn. Kirkjuvígslan hófst laust fyr- ir klukkan 2 e. hád. Hafði verið regn um nóttina og þoka grúfði yfir fjöllunum fram til hádegis, en þá brauzt sólin fram úr presturinn séra Sigurjón Jóns- son í kirkjubæ töluðu úr pré- dikunarstóli Vígsluvottar, er aðstoðuðu við athöfnina, voru séra Magnús Már Lárusson, séra Pétur Sigurgeirsson, séra Sigmar Torfason og séra Sveinn Víkingur. Kór úr Mývatnssveit annaðist sönginn undir stjórn Sigfúsar Hallgrímssonar í Vog- um. Mikill mannfjöldi víðsveg- ar að af Norður- og Austurlandi, um eða yfir 200 manns, hafði safnast heim á staðinn, þrátt fyrir óálitlegt veður um morg- uninn, sem og hitt að um óra- vegu er þangað að sækja frá öðrum byggðai'lögum. Rúmaði ekki kirkjan nema lítinn hluta þessa mikla mannfjölda. En í lok athafnarinnar kallaði bisk- up mannfjöldann úti fyrir inn í kirkjuna og hélt stutta en áhrifaríka ræðu en síðan sungu allir sálminn: Son Guðs ertu með sanni. Þótti ganga undri næst hve margir gátu staðið inni í kirkju þeirri er Jón bóndi hafði látið gera. Var mér tjáð að út úr kirkjunni, að lokinni athöfninni, hefðu verið taldir rösklega hálft annað hundrað manna. Jón í Möðrudal hefur með kirkjusmíð þessari sýnt frá- bæra fórnfýsi, áhuga og dugn- að. Hefur hann að mestu leyti einn starfað að byggingu og skreytingu kirkjunnar og oft unnið að því bæði nætur og daga. Viðtökurnar í Möðrudal voru hinar höfðinglegustu og gestum óspart og rausnarlega veittur beini, kaffi og matur á borðum óslitið frá morgni til kvölds, því ekki leyfðu húsa- kynni að nema lítill hluti hins mikla gestafjölda gæti setið að borði í senn. En hér var ósvikin íslenzk rausn og risna, sem gam- an var að finna og kynnast. Vígsluathöfn þessi var öll hin ánægj ulegasta og virðulegasta. Hinn mikli mannfjöldi sýndi ljóslega hversu sterk og traust ítök kirkjan á í hjörtum fólks- ins, og sólskinið og öræfafeg- urðin hjálpaði til að- gera dag- inn gestunum dýrmætan og ó- gleymanlegan. Og nú gnæfir turn hins ný- vígða guðshúss hátt yfir húsin í Möðrudal og setur svip á stað- inn. Á efsta bæ á íslandi innst í faðmi öræfanna bendir hann, þessi hvíti turn kirkjunnar í Möðrudal, hugum heimafólks og vegfarenda til himins. En um- hverfis er hinn víði og fagri sjónhringur — öræfanna hljóða fegurð, tign og kyrrð. S. V. Hermann Gunnarsson vígður tíl Skútustaðar- prestakalls Sunnudaginn 28. f. m. vígði biskupinn cand. theol. Harmann Gunnarsson í Dómkirkjunni til Skútustaða í Suður-Þingeyjar- prófastsdæmi. Vígslu lýsti séra Friðrik A. Friðriksson prófastur á Húsa- vík. Séra Jón Auðuns þjónaði fyrir altari. Auk þeirra beggja voru vígsluvottar þeir séra Jón Thorarensen og séra Magnús Már Lárusson. Hinn nývígði prestur prédikaði. Séra Her- mann er kvæntur Sigurlaugu Þóreyju Þorsteinsdóttur frá Vestmannaeyj um. — ----—-— Niemöller og játningarnar Þýzka blaðið Christ und Welt skýrir frá því, að á þingi játn- ingakirkjunnar í Frankfurt am Main nýlega hafi Niemöller haldið ræðu, þar sem hann hafi varað við þeirri hættu, að hin einstrengingslega áhersla (játn ingarkirkjunnar) á játningar- ritin eyðilegði það star'f, sem þegar er hafið til að sameina allar mótmælendakirkjurnar I þýzku. j Þetta gæti verið lærdómsríkt j fyrir þá, sem ákafastir eru í að vilja fella játningafjötrana á kirkjurnar, og vitna um leið mjög í hinn fræga þýzka kirkju- leiðtoga. Honum sýnist vera. farið að vera nóg boðið í þeim efnum í Þýzkalandi.

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.