Kirkjublaðið - 22.05.1950, Side 3

Kirkjublaðið - 22.05.1950, Side 3
KIRKJUBLAÐIÐ I SÉRA SVE'INN VÍKINGUR: Kirkjustaðir í Árnesprófastsdæmi Þar sem ýmsa kann að fýsa að vita nokkrur skil á fornum kirkjustöðum hér á landi, en þeir eru nú margir í fyrnsku fallnir, þá skal hér gerð lítil tilraun til þess að segja frá gömlum kirkjustöðum í Árness- prófastsdæmi. Verður þó vegna rúmleysis blaðsins að fara fljótt yfir sögu, og sleppa mörgu, sem þó hefði verið æskilegt að taka með. Hér verður t. d. ekki farið út í þær margháttuðu breyting- ar, sem orðið hafa á prestakalla- skipun í prófastsdæminu. I þess stað verður stuðzt við núver- andi prestaköll og skýrt nokkuð frá þeim kirkjum og bænahús- um, sem vitað er .að verið hafi í hverju prestakalli um sig. I. Arnarbælisprestakall. Þar eru nú aðeins þrjár kirkjur: á Strönd í Selvogi, Hjalla og Kot- strönd. Áður fyrr munu á þessu svæði verið hafa 12—14 kirkj- ur, en ekki munu prestar setið hafa á þeim kirkjustöðum öll- um, því margar þessara kirkna voru aðeins hálfkirkjur og þjón- að frá aðalkirkjunum. 1. Strandarkirkja. Hennar er getið í kirkjuskrá Páls biskups um 1200. Var hún helguð Maríu guðsmóður og hinum blessaða Tómasi erki- biskupi. Mjög snemma virðist sérstök helgi hafa hvílt yfir þessari kirkju, og henni mjög snemma tekið að berast margar dýrar gjafir og áheit. Á það bendir ótvírætt máldagi kirkj- unnar fr,á 1397, því þá á kirkj- an þegar mjög marga og dýra gripi. Má þar meðal annars nefna: refil um alla framkirkju nema yfir dyrum, stóran kross með líkneski, tvo smellta krossa og einn róðukross, kaleik er stóð 12 aura og annan er stóð hálfan fimmta eyri, þrjár klukkur og dymbil, þrjár siná- bjöllur, fimm kertastikar með kopar og hinn sjötta járn, messuklæði og fimm hökla að auk, sex kantarakápur og mjög marga dúka útsaumaða og sumir mjög vandaðir. Enn- fremur átti kirkjan allmikið af bókum. Af lifandi peningi er kirkjan talin eiga tólf 'Jkýr, þrevetran uxa og einn hest. Er þó enn margt ótalið af gripum kirkjunnar á þessum tíma. En með hnignandi efnahag þjóðarinnar á næstu öldum, virðist mjög hafa di’egið úr gjöfum til kirkjunnar, og er svo komið laust eftir 1500, að kirkjan er orðin mjög hrörleg. Lofar Erlendur lögmaður Þor- varðarson Ögmundi biskupi því með bréfi 8. júlí 1523, að gera við Strandarkirkju. Um 4700 er Strandarkirkja orðin eina kirkjan í Selvogi, enda virðist fólki þar hafa farið fækkandi vegna hins mikla sandfoks er lagði jarðirnar smátt og smátt í auðn. Að vísu stóð þá Nes- kirkja, en þar aðeins messað þrisvar á ári. Árið 1801 eru að- eins orðnir 115 manns í sókn- inni. Árið 1900 er innstæða Strandakirkju í hinum almenna kirkjusjóði kr. 1655,62, en hinn 1. janúar 1950 er sú innstæða kr. 731.917,52, og sýnir það, að áheit og gjafir til kirkjunnar hafa ekki hafizt á ný, svo nokkru nemi, fyrr en eftir alda- mótin síðustu. En nú er svo komið, að þessi litla og af- skekkta kirkja er orðin auðug- asta kirkja landsins. 2. Neskirkja í Selvoyi. Hana lét gera Finnur Bjarna- son sennilega nálægt miðri 13. öld. Samkvæmt máldaga Árna biskups Helgasonar um 1313 var þar Maríukirkja og einnig helguð Magnúsi jarli, Þorláki biskupi og heilagri Katrínu. Skyldi þar messa hvern helgan dag. Þangað var goldin tíund heimanna, svo og frá Bjarna- stöðum. Þar var og leyfður gi’öftur heimamanna og fá- tækra. Svipuð ákvæði eru og í Vilchins máldaga um 1397. En í Stefáns máldaga um 1500 er kirkja þessi fallin og hefur ver- ið það lengi. En árið 1523 lofar Erlendur Þorvarðarson Ög- mundi biskupi að reisa við Neskirkju, er þá er talin að niðurfalli komin. Virðist það loforð hafa verið haldið, því kirkju er þar getið 1547. Og enn stendur þessi kirkja laust eftir 1700, og segir Árni Magn- ússön í jarðabók sinni, að þar sé hálfkirkja og flutt embætti þrisvar um ár, þá heimafólk er til altaris. Sennilega hefur þó þessi kirkja aflagst með öllu skömniu síðar. 3. Fjall í Selvogi. Um það segir svo í nótu við máldaga Strandarkirkju árið 1397: „Kirkjan í Fjalli á tvær klukkur að kirkjunni á Strönd“. Benda þessi ummæli á að jörð sú hafi verið í Selvogi er Fjall nefndist og að þar hafi kirkja verið. En eigi hefi ég séð um þetta aðrar heimildir. 4. Herdisarvik. Enn segir í þessari sömu við- bót við Strandarkirkjumáldaga: ítem er þar biskups líkneski, er herra Grímur hafði ætlað til bænhússins í Herdísarvík. Sýnist því að á þessum tíma (1397) hafi bænhús verið í Her- dísarvík, en hve lengi það hefur haldist, er mér ókunnugt. Af framansögðu er að sjá, að í hinum fornu Selvogsþingum hafi verið þrjár kirkjur og að auki a. m. k. eitt bænhús. 5. ÞorlákshÖfn. Þar mun verið hafa hálf- kirkja, og segir Árni Magnús- son svo um það í jarðabók sinni: Her er hálfkirkja að fornu og nýju og tíðir veittar jafnan þá heimamenn eru til altari^. 6. Breiðabólssta&ur. Samkvæmt Vilchins máldaga um 1397 er þar kirkja helguð Maríu og Ólafi kóngi. Árið 1523 lofar Erlendur Þorvarðarson að láta gera upp kirkjuna, sem þá var fallin og er þar nefnd hálf- kirkja. Sennilega hefur þessi kirkja lagst niður skömmu eftir siðabót. 7. Hjalli. Þar er kirkju getið í kirkna- skrá Páls biskups um 1200, og hefur haldizt þar síðan. Það var Ólafskirkja og var þar heimil- isprestsskyld. Um 1700 er kirkja þessi orðin útkirkja frá Arnarbæli og messað þar þriðja hvern dag helgan. 8. Núpur eða Gnúpar. Þar var Þorlákskirkja, svo sem segir í Vilchinsmáldaga um 1397. Þessi kirkja hefur varla staðið fram yfir siðaskipti, því í jarðabók sinni segir Árni Magnússon svo: Munnmæli eru, að hér hafi að fornu kirkja ver- ið, en engin sjást þess viss merki og eru því gátur einar. Kirkjan hefur þá (um 1700) verið af fallin fyrir ævalöngu. 9. Reykir. Þar hefur kirkja staðið þegar fyrir 1200. Var það Larents- iuskii’kja. Hún á land á Völl- um. Segir Vilchin að þar skuli vera heimilisprestur. Þessi kirkja var, ásamt Arnarbælis- kirkju, lögð niður með stjórnar- ráðsbréfi 17. júlí 1909 og ný kirkja reist að Kotströnd. 10. Vellir. Þangað mun Reykjakirkja hafa verið flutt og staðið þar um tíma, líklega á 17. öld. Um þetta segir Árni Magnússon: Her hefur kirkja verið flutt frá Reykjum um 30 ára tíma. Sjást enn merki til kirkjugarðs. 11. Kotströnd. Þar var kirkja reist árið 1909, er Reykja- og Arnarbælis- sóknir voru sameinaðar, og stendur sú kirkja enn. 12. Arnarbæli. Þar var Nikulásarkirkja og er hennar getið í kirkjuskrá Páls biskups um 1200. Heimilis- prestur var þar og djákn. Árið 1528 mun Snæbjörn Gíslason hafa gefið Arnarbæli í vald Ög- mundar biskups og hefur það síðan verið prestssetur (bene- ficium). Kirkjan þar var, sem áður segir, lögð niður árið 1909. 13. Auðsholt. Þar er kirkju getið í Vilchins- máldaga um 1397, en efgi er mér kunnugt hve lengi hún hef- ur staðið. I 14. Kirkjuferja. Þar getur Vilchinsmáldagi um kirkju og virðist hún hafa staðið fram yfir siðabót að minnsta kosti. Getur Gissur biskup þess (1545) að ráð sé fyrir gjört, að Arnór Eyjólfs- son taki 4 kúgildi er fylgt hafa Kirkjuferju, „en eg skal sjálf- ur í svari við kirkjuna um þau kúgildi". Þessi kirkja er þó löngu nið- urlögð, er Árni Magnússon ferðaðist þarna um. Segir hann svo um þetta: So segja menn, að hér hafi að fornu kirkja verið. Sjást einnig merki kirkju- garðs. 15. Árbær. Vilchinsmáldagi getur þar kirkju, en hve lengi hún hefur staðið, er óvíst. í núverandi Arnarbælis- prestakalli hafa því kirkjur staðið að minnsta kosti á 14 bæjum auk bænhúss í Herdís- arvík. Þar hafa og í kaþólskum sið verið að minnsta kosti þrír prestar, einn í Selvogsþingum, annars að Reykjum og þriðji í Arnarbæli og djákn að auki. Framh. í næsta blaði. Kirkjuhljómleikar í Hallgrímskirkju Söngkór Hallgrímskirkju í Rvík hefur tvívegis að undan- förnu haft söngsamkomur í kirkjunni. Söngstjóri er organ- isti kirkjunnar Páll Halldórs- son' en aðstoðað hafa Þórarinn Guðmundsson fiðluleikari, ósk- ar Cortes (fiðlur), Indriði Bogason (viola), Þórhallur Árnason (celló), Guðmundur Gilsson (harmonium), Adolf Kern (fagot) og dr. Victor Urbantschitch (harmonium). í lok samsöngvanna hafa prestar safnaðarins flutt bæn og kirkjugestir allir tekið undir síðasta lagið. Efnisskrá þessara samsöngva beggja hefur verið hin ágæt- asta, sálmalög forn og ný og andleg og kirkjuleg tónverk. Söngurinn hefur tekizt mjög vel, bæði hjá kirkjukórnum sem heild og einsöngvurunum Sverri Kjartanssyni, Þórhalli Björns- syni, Ingu Markúsdóttur, Matt- hildi Pálsdóttur og Baldri Pálmasyni. Mjög fallegur blær ríkti yfir samkomunum og er hér á ferð- inni merkilegt starf, sem mörg- um mun þykja vænt um og án efa hefur góð áhrif. Væri á- nægjulegt, ef aðrir söfnuðir, sem því geta við komið, tækju upp líkt starf og hér er hafið í Hallgrímssöfnuði. Matteusarguðspjall Skýringar eftir prófessor Ás- mund Guðmundsson. Útgefandi: Isafoldarprentsmiðja h.f. Reykjavík 1950. Þetta er ný útgáfa af skýr- ingum prófessorsins á Markús- arguðspjalli, er hann gaf út 1942. Þótti ekki séu margar breytingar frá fyrri útgáfu, vill Kirkjublaðið þó fara nokkrum oi’ðum um þessa útgáfu. Það er mjög ánægjulegt að lesa þessar skýringar prófessors Ásmund- ar. Þær eru mjög vel skrifaðar og margt er þar um fróðleik fyrir þá, sem öðlast vilja skiln- ing á þessu elzta guðspjalli, er vér eigum. Ber bókin vott um mjög mikla vinnu höfundarins og rannsóknir í allar áttir varð- andi guðspjallið, efni þess og innihald. Er ánægjulegt, að prófessor- inn hefur getað helgað sig ó- skiptan hinum guðfræðilegu vísindum. Skýringarnar eru fyrst og fremst ætlaðar guð- fræðinemum Háskólans og nem- endum Kennaraskólans. En þær eru vissulega fyrir fleiri. Munu prestar landsins yfirleitt hafa gagn og ánægju af því að lesa þessar skýringar og vil ég einn- ig hiklaust mæla með þeim við alla þá, leika og lærða, sem á- huga hafa á því að lesa og* kynna sér guðspjallið fræðilega. Prófessor Ásmundur er orðinn afkastamikill rithöfundur á sviði guðfræðilegra vísinda og á kirkja íslands honum miklar þakkir að gjalda fyrir ritstörf hans, kennslustörf hans í Há- skólanum og brennandi áhuga á málefnum kirkjunnar. Framan við skýringar próf. Ásmundar er prentuð ný þýð- ing á Markúsarguðspjalli, sem hann og séra Gísli prófastur Skúlason unnu að í Norðtungu sumarið 1942 á vegum íslenzka Biblíufélagsins. Mun ef til vill síðar verða ritað um þýðingu þeirra hér í blaðinu, er tími gefst til að at- huga hana og breytingar þær, er þeir gera á fyrri þýðingu guðspjallsins. — S. S. Séra Guðm. Sveinsson dvelur enn við nám erlendis Séra Guðmundur Sveinsson, prestur á Hvanneyri, sem nú dvelur í Danmöi’ku og stundar framhaldsnám við Kaupmanna- hafnarháskóla í semitiskum málum og gamlatestamentis- fræðum, hefir nýlega farið þess á leit við kirkjustjórnina, að leyfi hans til námsdvalar verði framlenga um 7—8 mánuði, svo að honum gefist kostur á að ljúka námi og taka kandidata- próf í hinum semitisku málum. Nágranna prestar hafa þjónað fyrir hann prestakallinu í fjar- veru hans.

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.