Kirkjublaðið - 22.05.1950, Qupperneq 4

Kirkjublaðið - 22.05.1950, Qupperneq 4
Og er nú var kominn hvíta- sunnudagurinn, voru þeir allir saman komnir á einum stað. (Post. 2. 1). Og skyndilega varð gnýr af himni eins og aðdynjandi sterk- viöris, og fyllti allt húsið, sem þeir sátu í. (Post. 2. 2). Áhrif andans Framh. af 1. síðu. um, þar sem stöðugt er gerður munur á Þjóðverja og Pólverja, Rússa eða Grikkja, — þá er engrar lausnar að vænta frá hinni rangsnúnu kynslóð. Þá verður aftur á móti að því stefnt, að næsta kynslóð verði enn rangsnúnari en sú, sem nú lifir. Nei, til þess að móta Krists- mynd úr mannkyninu, dugar ekkert nema eitt: Hinn heilagi andi í hjörtum mannanna — hvítasunna. Vér gumum mikið af því, Is- lendingar, að farið sé að telj a oss með í samstarfi þjóðanna í heiminum. En ég fæ ekki varist þeirri hugsun, að margar radd- ir, sem fram koma, minni á böimin, sem syngja: Má ég ekki mamma, roeð í leikinn þramma! í skessuleik mannkynsins verð- um vér lengst a_f talin með litlu börnunum. Og hætt er við að stórveldin taki ekki mikið eftir því, þótt þau stígi ofan á tána á litlu systur, hvort sem táin heitir Reykjanes eða eitt- hvað annað. En þó að hin póli- tíska saga sýni magnleysi smá- þjóðanna, þá sýnir saga and- legs lífs að smáþjóðirnar hafa sína miklu þýðingu. Guð útvaldi smáþjóð sem vermireit fyrir frækorn kristindómsins. Og Guð hefur af náð sinni leyft Islendingum að verða á sínum tíma útverðir frelsis og lýðræð- is, flestum öðrum þjóðum frem- ur. Hver er kominn til að segja um það, nema íslendingar geti orðið heiminum að liði með því að framleiða andleg verðmæti, hafa áhrif á andlegt lif heims- ins, ef vér þekkjum vorn vitj- unartíma. En mér er engin launung á þeirri skoðun minni, að ný hvítasunna er skilyrði fyrir því, að svo megi verða. Láti þjóð vor ekki stjórnast af anda Krists, verður hún aldrei fær um að leggja sinn skerf til þess guðsríkis, er heimurinn þráir. Ég skal játa, að í því efni virðist ekki byrlega blása. Fleiri eru fúsari til að verða á- horfendur hvítasunnutáknanna en þátttakendur. Ef til vill vantar fátt meira í kristnilíf þessa lands en einmitt hugar- far mannanna, sem spurðu,: Hvað eigum vér að gjöra? Ekki stórveldin, ekki ríkisstjórnin, ekki Alþingi -eða bæjarstjórn, heldur vér sjálfir. Grátlegasta einkenni þessa tíma er einmitt þetta, að oss skortir það, sem hin fyrsta hvítasunna kom til leiðar í frumsöfnuðinum: Stöð- uglyndið við kenningu postul- anna, samfélagið, brotningu brauðsins og bænirnar. Áhuginn á kenningu postul- anna lýsir sér í því, að þó að sóknarpresturinn komi sjálfur úr öðru byggðarlagi til að messa, þá verður hann að skrá- setja messufall vegna veðurs eða vondra vega. Og samt get- ur hinn lélegasti prédikari ekki komizt hjá því að flytja sálu- hjálplegri vísdóm í einni pré- dikun, en allir frambjóðendur í öllum kjördæmum til samans í margra mánaða kosningabar- áttu. Um samfélagið er bezt að tala sem minnst. Brotning brauðsins í kristilegum anda getur hún tæplega talizt, hin æðisgengna barátta um efna- leg verðmæti, sem hvað eftir annað leiðir menn út í ólögleg- an þjófnað, eða þá lögleyfða fjárglæfra. Og bænrækni þjóðarinnar kemur meðal annars fram í því, að það hefur sézt auglýst við hátíðlegt tækifæri í sögu þjóð- arinnar, að bænin, sem flutt yrði, væri stutt. Því fyrr, sem bænin er hespuð af, því betra, kom manni til hugar. Lærður maður spurði raunar að því Oveitt prestakall Svalbarðsþingaprestakall í Norður-Þingeyjarprófasts- dæmi (Raufarhafnar- og Svalbarðssóknir). Heimatekjur: 1. Árgjald af prestsseturshúsi (grunngjald) Kr. 353,33 2. Fyrningarsjóðsgjald (grunngjald) . — 65,00 Kr. 418,33 Umsóknarfrestur til 1. júlí 1950. Veitist upp úr kosningu. Biskupinn yfir íslandi. Reykjavík, 22. maí 1950. Sigurgeir Sigurðsson. einu sinni í blaðagrein, hvort vér prestarnir hefðum fundið upp nokkrar nýjar og betri að- ferðir til að biðja til Guðs. Það má vel vera að þessi spurning sé ekki eins vitlaus og hún sýn- ist í fyrstu. Ég skal ekki bera á móti því, að til séu ýmsar að- ferðir til að vekja hjá sjálfum sér t)g öðrum bænaandann. En ég hygg þó að vísindalegasta aðferðin sé í þessu sem öðru að ganga út frá þeirri reynzlu, sem hver fyrir sig kann að eiga. Og engin ný aðferð við bæna- gjörð, þótt til kynni að vera, útilokar þá staðreynd, sem öll- um biðjandi mönnum ber sam- an um, að kjarni bænalífsins sé auðmjúk og einlæg sam- stilling hugans við þann anda, sem er að ofan, þann kraft, sem hvítasunnan sannar, að til er. Hér komum vér sem sé enn að sömu niðui’stöðu, að það verða ekki útreikningar um hið ytra fyrst og fremst, heldur heilagur andi, sem kraftaverkið gerir á mannkyninu. Heilögum anda hefur stund- um verið líkt við storminn, sem knýr seglskipið áfram. Hversu fagurlega sem skipið er útbúið, kemst það ekkert áfram án hins ósýnilega máttar stormsins. — Hversu fagrar jurtir, sem gróð- ursettar eru og hvernig sem gróðurreiturinn er lagaður, dafna þar engin grös án hinna óáþreifanlegu krafta ljósins. Eins er því farið um menn- ina. Hvei'su mikið sem vitið kann að vera, hæfileikarnir og in ytri tækni, vex ekki samfé- lag guðsríkis án hins heilaga anda. Það sem þú átt því að gjöra, er að fylgja hinu gamla ráði Péturs: Endurskoða líf þitt, gefa þig Kristi á vald og þá munt þú öðlast gjöf heil- ags anda, því að yður er ætlað fyrirheitið og börnum yðar og öllum þeim, sem í fjarlægð eru, og öllum þeim, sem Drottinn Guð vor kallar til sín. —- Og þú ert einn þeirra, sem hefur heyrt orð Drottins kalla. Amen. DAGSKRA Prestastefnu íslands (Synodus) í Reykjavík dagana 21.—23. júní 1950. Miðvikudagur 21. júní: Kl. 1,30 e. h. Guðsþjónusta í Dómkirkjunni, séra Jón Kr. Isfeld prestur á Bíldudal prédikar. Altaris- þjónustu annast séra Jón prófastur Þor- varðsson í Vík. Kl. 4,00 e. h. Prestastefnan sett í Kapellu Háskólans. Á- varp biskups og skýrsla um starf kirkjunn- ar á liðnu synodusári. Kl. 5,30 e. h. Biskup býður erlenda gesti velkomna. Þeir ávarpa prestastefnuna. Kl. 8,30 e. h. Opinbert erindi í Dómkirkjunni. (Prófessor Magnús Már Lárusson). Fimmtudagur 22. júní: Kl. 9,30 f. h. Morgunbænir (Prófessor Ásmundur Guð- mundsson). Kl. 9,55 f. h. Biskup leggur fram skýrslur um messugerð- ir og altarisgöngur, reikning Prestsekkna- sjóðs og tillögur um úthlutun styrktarfjár. Kl. 10,00 f. h. Manfred Björkqiust Stokkhólmsbiskup flyt- ur erindi. Kl. 10,30 f. h. Skipað í nefndir. Kl. 10,45 f. h. Kirkjuleg eining (Málshefjendur séra Helgi Sveinsson Hveragerði og séra Sigurður Páls- son Hraungerði). Kl. 2,00 e. h. Regin Prenter prófessor flytur erindi. Kl. 2,30 e. h. Framhaldsumræður um kirkjulega einingu. Kl. 5,30 e. h. Fulltrúi Finnlands flytur erindi. Kl. 6,00 e. h. Almennur bænadagur (Sigurgeir Sigurðsson biskup). Kl. 8,30 e. h. Opinbert erindi í Dómkirkjunni (Sigurbjörn Einarsson prófessor). Föstudagur 23. júní: Kl. 9,30 f. h. Morgunbænir (séra Þorgrímur V. Sigurðs- son Staðarstað). Kl. 10,00 f. h. Kristian Hansson skrifstofustjóri flytur er- indi. Kl. 10,30 f. h. Friðarmálin og kirkjan (Sigurgeir Sigurðs- son biskup). Kl. 2,00 e. h. Dr. theol. Harry Johansson framkvæmda- stjóri flytur erindi. Kl. 4,00 e. h. Veiting prestakalla (Sigurgeir Sigurðsson biskup). Kl. 4,30 e. h. Erindi (séra Finnur Tuliníus). Kl. 5,00 e. h. Skýrsla barnaheimilisnefndar (séra Hálfdán Helgason prófastur). Kl. 5,30 e. h. Önnur mál. Kl. 9,00 e. h. Heima hjá biskupi. Gjafir og áheit Strandarkirkja. Tímabilið 1. jan. til 1. maí ’50. Sveinssína Stefánsdóttir kr. 50,00. Kristján Loftsson kr. 100,00. E. Þingeyri kr. 50,00. Afhent af Alþýðublaðinu kr. 849,00. Afhent af séra Friðrik J. Rafnar kr. 3890,00. S. f. kr. 20,00. H. A. kr. 100,00. N. N. kr. 10,00. N. N. kr. 200,00. Vestf. kona kr. 25,00. N. N. kr. 15,00. Afh. af Vísi kr. 5443,00. P. J. Sauðárkróki kr. 100,00. N. N. kr. 20,00. S. N. kr. 20,00. K .K. kr. 10,00. Sigr. Jónsd. kr. 10,00. N. N. kr. 50,00. N. N. kr. 50,00. L. kr. 100,00. N. N. kr. 10,00. S. S. kr. 60,00. N. N. kr. 50,00. N. N. kr. 50,00. S. A. kr. 100,00. ónefnd kona kr. 100,00. N. N. kr. 100,00. G. A. kr. 50,00. Afhent af séra Helga Konráðssyni kr. 230,00. Geir J. kr. 100,00. Ragnar Jak. kr. 20,00. E. K. tvö áheit kr. 600,00. M. S. S. kr. 100,00. Ungur sjó- maður kr. 50,00. Ingibj. Ólafs kr. 20,00. Afhent af Morgun- blaðinu kr. 8587,00. N. N. kr. 20,00. S. S. Sólh. kr. 50,00. Jónas kr. 100,00. Ó. S. kr. 10,00. Kona kr. 10,00. Sjúklingar á Landsspítala kr. 50,00. G. B. kr. 100,00. Afhent af Tímanum kr. 395,00. H. B. kr. 50,00. N. N. kr. 20,00. Margr. Guðm. kr. 30,00. L. S. kr. 100,00. P. kr. 100,00. P. J. kr. 25,00. Ónefnd kona kr. 10,00. N. N. kr. 10,00. G. Ó. kr. 50,00. Hildur þ. kr. 100,00. ónefndur kr. 20,00. N. N. Haganesvík kr. 150,00. Á. Einars kr. 50,00. N. N. AK. kr. 100,00. Afhent af Morgunblað- inu kr. 7595,00. J. H. G. kr. 50,00. Ónefndur kr. 5,00. Ó- nefndur kr. 20,00. Akureyring- ur kr. 2000,00. Gömul kona kr. 20,00. Þ. Þ. kr. 50,00. F. J. kr. 200,00. J. M. Súðavík kr. 25,00. N. N. kr. 10,00. Sjómaður kr. 100,00. B. B. kr. 25,00. Vígl Pét. kr. 150,00. P. V. kr. 10,00. E. F. kr. 50,00. Samtals kr. 33199,00.

x

Kirkjublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.