Kirkjublaðið - 29.10.1951, Page 3

Kirkjublaðið - 29.10.1951, Page 3
KIRKJUBLAÐIÐ 3 Séra Hermann Gunn- arsson á Skútu- stöðum Dánœrminning. Hann andaðist að Skútustöð- um af slysförum hinn 10. okt. s. 1. Séra Hermann var aðeins 31 árs er hann lézt. Hann var fædd- ur 30. júní 1920 að Fossvöllum í Jökulsárhlíð. Var hann sonur hjónanna er þar bjuggu, Gunn- ars bónda Jónssonar og konu hans Ragnheiðar Stefánsdóttur, og eitt af 14 systkinum, barna þeirra hjóna. Ungur tók hann að stunda nám, í Alþýðuskólan- um að Eyðum og að loknu námi þar í Menntaskólanum á Akur- eyri, en þar lauk hann stúdents- prófi 1943. Hóf hann þá nám í Guðfræðideild Háskóla íslands og lauk þar embættisprófi 1948. Vígðist hann prestsvígslu í dóm- kirkjunni, til Skútustaða- prestakalls í Suður-Þingeyjar- prófastsdæmi 28. ágúst 1949. Séra Hermann kvæmtist eft- irlifandi eiginkonu sinni Sigur- laugu Þóreyju Þorsteinsdóttur Johnsson 12. júní 1948, og eign- uðust þau eina dóttur barna, Ragnheiði, sem er nú tveggja ára gömul. Höfðu þau hjónin aðeins dvalið í tvö ár á Skútustöðum hinn 8. október s. 1., en 10. okt, lézt hann. Séra Hermann Gunnarsson var án efa í hópi hinna beztu presta landsins. Átti hann lif- andi áhuga á því að starfa fyrir kirkjuna og rækja skyldur sín- ar sem bezt. Hann var búinn mörgum ágætum hæfileikum sem prestur, góður ræðumaður, tónaði og söng ágætlega, en um- fram allt var framkoma hans falleg og aðlaðandi, enda var hann góðgjarn í allra garð og fús að rétta fram bróðurhönd þar sem á þurfti að halda. Hann var því einkar vinsæll í söfnuð- um sínum, og eru þeir, sem von er, harmi lostnir við fráfall hans. Séra Hermann var frábær heimilisfaðir og sambandið milli hans og foreldra hans og systkina einkar ánægjulegt. Minningin um hann er falleg og björt, bæði hjá skyldmennum hans og vandalausum. Kirkjublaðið sendir öllum vinum hans svo og söfnuðum innilegar samúðarkveðjur og biður þeim blessunar Guðs. S. S. Héraðsfundur Húna- vatnsprófastsdæmis Hérðasfundur Húnavatns- prófastsdæmis var haldinn að Blönduósi sunnudaginn 7. okt. og hófst með guðsþjónustu í Blönduósskirkju. Séra Jóhann Kr. Briem að Melstað predikaði. Hinn nýskipaði héraðspróf- astur, síra Þorsteinn B. Gísla- son í Steinnesi setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Minntist hann fráfarandi próf- asts síra Björns Stefánssonar á Auðkúlu, er fengið hafði lausn frá prestsskap fyrir aldurs sak- ir, og þakkaði störf hans í hér- aðinu. Auk venjulegra héraðsfund- armála voru einkum tvö mál rædd á fundinum: Altarissakra- menntið og prestakallaskipun landsins. 1. Altarissakramentið: Fram- sögu hafði síra Pétur Ingjalds- son. Urðu um málið allmiklar umræður, og skoraði fundurinn á alla þá, sem kirkju og kristni- haldi unna, að styðja og efla þennan þátt kristnilífsins, sem svo ótal mörgum fyrr og síðar hefur verið helgur og hjartfólg- inn. 2. Prestakallaskipunin. 1 því máli hafði prófastur framsögu. Samþykkt var í einu hljóði svo- feld ályktun: „Héraðsfundur Húnavatns- prófastsdæmis haldinn á Blöndu ósi 7. okt. 1951 mótmælir þeirri prestafækkun í prófastsdæm- inu, sem fyrirhuguð er í frum- varpi til laga um skipun presta- kalla er prestakallaskipunar- nefnd hefir samið. Telur fund- urinn þetta prófastsdæmi svo hart leikið með frumvarpi þessu, ef að lögum yrði, að það hljóti að verða andlegu lífi og kirkjulegu starfi í héraðinu til verulegs hnekkis. Væntir hann þess, að nefndin, sem samið hefur frumvarpið, sjái við nán- ari yfirvegun að hér hefur verið allt of langt gengið í niðurrifs- átt“. Norskur sjómanna- prestur í Kaup- mannahöfn Samkomulag hefur nýlega orðið á milli dönsku og norsku kirkjunnar um það, að norskur prestur starfi framvegis í Kaup- mannatrúboð þar. En sjó- mannatrúboðið þar. En sjó- mannaheimilið þar sækja, eins og kunnugt er, margir norskir sjómenn. Ekki væri vanþörf á því, að við íslendingar hefðum einnig prest að staðaldri í Kaupmanna- höfn, er héldi uppi guðsþjónust- um fyrir landa þar. Séra Hauk- ur Gíslason flutti þar íslenzkar guðsþjónustur um margra ára skeið, en síðan hann lét af því starfi, mun ekkert hafa verið gert fyrir hina mörgu landa vora þar í þeim efnum. Soffía Gunnlaugsdóttir Syðri-Reistará. Séra Ingvar Nikulás- son 85 ára Séra Ingvar Nikulásson f. prestur að Skeggjastöðum á Langanesströndum varð 85 ára í þessum mánuði. Hann er fæddur 16. október 1866 að Múlaseli í Hrauns- hreppi, sonúr Nikulásar Sig- valdasonar og konu hans Odd- nýjar Jónsdóttur frá Hauka- tungu. Stúdentsprófi lauk hann í Reykjavík 1889 og embættis- prófi úr Prestaskólanum 1891. Vígður þá um haustið aðstoðar- prestur Síra Jóns Björnssonar á Stokkseyri og settur prestur þar vorið 1892. Veittur Gaul- verjabær 1893, en fékk sama ár lausn frá störfum og fluttist til Reykjavíkur. Vorið 1907 fékk hann veitingu fyrir Skeggja- stöðum og gengdi þar prests- þjónustu til vorsins 1936, er hann fékk lausn frá enbætti, og fluttist þá til Reykjavíkur. Árið 1894 kvæmtist hann Júlíu Guðmundsdóttur frá Keldum á Rángárvöllum, en hún andaðist 1934. Séra Ingvar var einn af hin- um hógværu mönnum, sem vann starf sitt af alúð og samvizku- semi og ávann sér með ljúf- mennsku sinni og hógværð vin- áttu og traust safnaðarins. Hann gengdi ýmsum trúnaðar- störfum fyrir sveit sína og hérað og var meðal annars sýslu- nefndarmaður um skeið. Síðan hann fluttist til Reykja- víkur hefir hann lengst af dval- izt hjá dóttur sinni frú Soffíu Ingvars og manni hennar Svein- birni Sigurjónssyni kennara. Alls eignuðust þau hjónin þrjú börn og eru þau auk frú Soffíu Helgi yfirlæknir á Vífilsstöðum og frú Ingunn kona séra Vig- fúsar I. Sigurðssonar á Desjar- mýri. Kirkjublaðið árnar séra Ing- vari heilla og blessunar á þess- um tímamótum um leið og það þakkar honum dyggilegt starf hans í þjónustu kirkjunnar. TIL KAUPENDA Gjalddagi blaðsins var 1. júlí. Gleymið ekki að greiða ársgjaldið. Utanáskriftin er: KIRKJUBLAÐIÐ Reykjavík. Þú ert óvalt sjúku barni nœr SÁLMUR 1. Vanheil þó eg mæóist marga stund mun eg reyna aö hafa glaöa lund. Frelsarans því finn eg kærleiks mátt friöinn senda hverjum, sem á bágt. 2. Ein blóösjúk kona bað þig, Jesús kær .\um blessun þá að mega koma nær, og faldi þinna fata þreifa á. Hún fékk þá bæn og læknaðist hún þá. 3. Og eg er sjúk, því bið eg, Kristur kær, að kærleikur þinn sé mér ávallt nær, og lækni mig á likama og sál. Lífsins faSir: Heyr það bæna mál. U. Eftir skilur aldrei Jesús neinn, ást hans því og kærleikur er hreinn. Ríkur eins og fátækur því fær frið og lækning Drottins hjarta nær. 5. Ennþá sendir Guð mér geislann sinn. Glóir sól á rúmið til mín inn. Þökk og heiður þér sé, Drottinn kær. . Þú ert ávallt sjúku barni nær.

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.