Kirkjublaðið - 27.03.1953, Side 1
XI. árg.
Föstudagur 27. marz 1953
5. tbl.
Kirkjukórar stofnaðir í nýju
prestaköllunum í Reykjavík
Miðdalskirkg a
í Laugardal
í kirknaskrá Páls biskups
um 1200 er getið kirkju í Laug-
ardal hinum efra og svo hin-
um ytra. Þykir mér ekki ósenni-
legt, að með Laugardal hinum
efra sé átt við Miðdal, en að
hinn ytri Laugardalur sé þar,
sem nú kallast Laugarvatn.
Yíst er um það, að snemma hef-
ir komið kirkja á Laugarvatni.
Var það Blasiuskirkja og er
getið fyrst í Oddgeirsmáldaga
1379. Hefir það sennilega ver-
ið hálfkirkja og þaðan sungið
frá Miðdal og að öllum líkind-
um staðið fram um siðaskipti.
Nokkur merki um kirkju sjást
þar laust eftir 1700, er Árni
Magnússon er þar á ferð, en
enginn man þó til þess, er kirkj-
an stóð þar. Ennfremur getur
Á.M. um að til forna hafi kirkja
verið í Efstadal, en ekki eru til
máldagar þeirrar kirkju og má
vera, að þar hafi aðeins verið
bænhús.
í Miðdal var Maríukirkja og
prestssetur. En prestakallið
var lagt niður með lögum 1880
og Miðdalskirkja gjörð út-
kirkja frá Mosfelli og hefir svo
verið síðan.
Miðdalskirkja er timbur-
kirkja járnvarin og með turni
á mæni, lítið hús en snoturt.
Kirkjan er raflýst og rafhituð.
Af kirkjugripum má nefna auk
altaristöflu tvo kertastjaka úr
kopar þríarma, gefna af Böðv-
ari Magnússyni á Laugarvatni
og Ingunni Eyjólfsdóttur, konu
hans. Enn er þar kaleikur og
patína, hvortveggja úr silfri,
tveir altarisstjakar og einnig
ljósakróna með átta ljósastæð-
um. Messu- og altarisklæði eru
talin í ágætu standi.
Sigurður Birkis söngmála-
stjóri hefir í þessum mánuði
stofnað kirkjukóra í öllum
sóknum hinna þriggja nýju
prestakalla í Reykjavík. Er
þar með stigið stórt spor til efl-
ingar safnaðar- og kirkjulífs í
þessum prestaköllum.
Kirkjukór Kópavogssóknar
í Bústaðarprestakalli. Stofnað-
ur 8. marz sl. Stofnfélagar voru
þrettán. í stjórn voru kjörin:
Frú Margrét Halldórsdóttir,
Digranesvegi 40, formaður,
Egill Bjarnason, Hofgerði 8,
ritari, Þórir Guðmundsson,
Digranesvegi 12 A, gjaldkeri.
Varamenn: Aðalbjörn Sigfús-
son og frú Ólafía Jóhannes-
dóttir.
Organisti og söngstjóri:' Guð-
mundur Matthíasson, Digra-
nesvegi 2.
Kirkjukór Bústaðarsóknar í
Bústaðarprestakalli. Stofnað-
ur þann 18. marz sl. með tíu
stofnfélögum. Stjórnina skipa:
Frú Þorgerður Elíasdóttir, Bú-
staðarvegi 55, formaður, frú
Katrín Egilsson, Hólmgarði 32,
gjaldkeri, Guðmundur Jóns-
son, Laugavegi 131, ritari.
Organisti og söngstjóri: Jón
G. Þórarinsson, Hólmgarði 35.
Kirkjukór Háteigssóknar í
Háteigsprestakalli. Stofnaður
þann 22. marz sl. og voru stofn-
endur tólf. Stjórn hans skipa:
Garðar Bergmann, Háteigsvegi
52, formaður, Sigríður Briem,
Flókagötu 29, ritari, Torfi
Háskólafyrirlestrar
um uppruna trúar-
bragða
Sunnudagana 15. og 22. þ.
m. flutti Sigurbjörn Einarsson
prófessor fyrirlestra fyrir al-
menning í hátíðasal Háskólans.
Fjölluðu fyrirlestrar þessir um
uppruna trúarbragða meðal
mannkynsins og leitaðist fyrir-
lesarinn við að rekja þann upp-
runa til fyrstu róta. Fyrirlestr-
arnir voru fróðlegir og má telja
sennilegt, að þeir muni þirtast
á prenti áður langt líður.
Magnússon, Blönduhlíð 11,
gjaldkeri.
Organisti og söngstjóri:
Gunnar Sigurgeirsson, Drápu-
hlíð 34.
Kirkjukór Langholtspresta-
kalls. Stofnaður þann 23. marz
sl. með fjórtán félögum. I
stjórnina voru kjörin: Erling-
ur Dagsson, Barðavogi 24, for-
maður, frú Berga Ólafsdóttir,
Laugarnesvegi 66, ritari, Sig-
urður J. Sigurðsson, Skipa-
sundi 3, gjaldkeri. Meðstjórn-
andi: frú Oddfríður Sæmunds-
dóttir, Langholtsvegi 53.
Organisti og söngstjóri:
Helgi Þorláksson, Nökkvavogi
21.
Biskup heimsækir
Skógaskóla
Sunnudaginn 22. þ. m. heim-
sótti biskup Skógaskóla ásamt
tveimur guðfræðistúdentum,
þeim Ingimari Ingimarssyni og
Sigurði Hauki Guðjónssyni.
Hafa slíkar skólaheimsóknir
átt sér stað á vegum „Bræðra-
lags“ undanfarin ár og hafa
I ár eru liðin átta hundruð
ár frá stofnun erkibiskupsstóls
í Niðarósi, og var það upphaf
að fullu sjálfstæði norsku
kirkjunnar.
Erkibiskupsstóllinn í Niðar-
ósi og erkibiskuparnir þar
koma á tímabili mjög við ís-
lenzka kirkjusögu, eins og
kunnugt er. Nú hefir verið
ákveðið að hafa mikil hátíða-
höld í Niðarósi til þess að minn-
ast afmælisins. Mun aðalhátíð-
in standa yfir dagana 28. og
29. júlí.
Hefst hátíðin að morgni þess
28. júlí með hátíðasamkomu á
biskupssetrinu. Niðaróssbiskup
býður gesti velkomna, en síðan
einkum þeir biskup og prófess-
or Ásmundur Guðmundsson
farið slíkar ferðir ásamt nem-
endum guðfræðideildar.
I Skógaskóla hófst samkoma
kl. 2 e. h. og fluttu þeir þar
allir erindi, biskup og stúdent-
arnir og ennfremur skólastjór-
inn, Magnús Gíslason, en skóla-
stjórafrúin lék á hljóðfæri und-
ir söngnum. Viðstaddir voru
nemendur skólans ásamt kenn-
urum og heimafólki.
Skógaskóli stendur á glæsi-
legum stáð og eru húsakynni
hans hin prýðilegustu. Skóla-
starfið virðist og vera með fall-
egum svip og í góðum höndum.
Um það er mest vert.
Söngskemmfun
kirkjukórs á Selfossi
Hinn 25. janúar sl. hélt
kirkjukórinn á Selfossi söng-
skemmtun í Selfossbíó og
skyldi ágóða varið til þess að
kaupa orgel í Selfosskirkju,
sem nú er verið að byggja. Að-
sókn var mjög góð.
Til skemmtunar var, auk
kórsöngsins, upplestur Guð-
mundar Daníelssonar rithöf-
undar og íslenzk litkvikmynd,
er Gísli Bjarnason sýndi.
Fyrr í vetur hafði söngflokk-
urinn um hálfs mánaðar skeið
notið kennslu og leiðbeininga
hjá Einari Sturlusyni söngvara.
flytur dr. Arne O. Johnsen er-
indi um sögu erkibiskupsstóls-
ins. Eftir það munu fulltrúar
flytja kveðjur frá kirkjum
þeim og stofnunum, sem þeir
eru fulltrúar fyrir. Síðar um
daginn verður opnuð kirkjuleg
sýning, en um kvöldið verða
kirkjuhljómleikar í Niðaróss-
dómkirkju.
Daginn eftir verður meðal
annars haldin hátíðaguðsþjón-
usta í Niðaróssdómkirkju, þar
sem Oslóarbiskup mun stíga í
stólinn.
Biskupi íslands og frú hans
hefir verið boðið á hátíð þessa
og er ákveðið að því boði verði
tekið.
átta alda aímæli
erkibiskupsstóls í Niðarósi