Kirkjublaðið - 27.03.1953, Blaðsíða 3

Kirkjublaðið - 27.03.1953, Blaðsíða 3
KIRKJUBLAÐIÐ 3 SÉRA BÖÐVAR BJARNASON Minningarorð Séra Böðvar lézt að heimili sínu í Reykjavík háaldraður hinn 11. þ. m. Hann fæddist að Reykhól- um í Reykhólasveit 18. apríl 1872. Voru foreldrar hans Bjarni bóndi að Reykhólum Þórðarson, bónda í Belgsholti í Melasveit Steinþórssonar, og kona hans Þórey Kristín Ólína Pálsdóttir, bónda að Reykhól- um Guðmundssonar, en hann var albróðir Þóreyjar konu séra Eyjólfs Kolbeins á Staðar- bakka. Séra Böðvar ólst upp með foreldrum sínum til 9 ára aldurs, en dvaldist næstu 5 ár- in að Gröf í Bitru. Dvaldi hann síðan í föðurgarði til vorsins 1890. Undir skóla lærði hann hjá séra Arnóri Árnasyni. Tók hann síðan inntökupróf í latínuskólann vorið 1891. Stú- dentsprófi lauk hann 1897 og hóf þá þegar guðfræðinám í Prestaskólanum og tók em- bættispróf í guðfræði vorið 1900. Árið 1901 hinn 27. ágúst fékk hann veitingu fyrir Hrafnseyrarprestakalli og vígðist prestsvígslu 13. apríl 1902 af herra Hallgrími bisk- upi Sveinssyni. Árið 1899 hinn 26. apríl kvæntist hann Ragnhildi Teits- dóttur, gullsmiðs og veitinga- manns, frá ísafirði og eignuð- ust þau 4 börn. Þrjú þeirra eru á lífi, Bjarni Einar, Þórey Kristín Ólína og Sigfús Ágúst. Þau skildu árið 1913. Síðari kona séra Böðvars er Margrét Jónsdóttir frá Hrauni í Keldu- dal og eignuðust þau 3 börn. Tvö þeirra eru á lífi, Bryndís og Baldur. Séra Böðvar varð prófastur í Vestur-lsafjarðarprófasts- dæmi 1929 og gegndi því starfi til 1941. Hann var sýslunefnd- armaður í Vestur-ísafjarðar- sýslu um alllangt skeið og gegndi ótal trúnaðarstörfum öðrum fyrir hrepp sinn og sýslu. í stjórn Prestafélags Vestfjarða var hann frá stofn- un þess, 1. sept. 1928, til 1939. Lausn frá embætti fékk hann fyrir aldurs sakir 21. maí 1941 og fluttist þá til Reykjavíkur og hefir dvalið hér síðan. Auk prests- og prófastsstarfa gegndi séra Böðvar jafnan mikið kennslustörfum. Hann var frábær kennari og dvöldu námsmenn oft á heimili hans að Hrafnseyri og bjó hann þá undir framtíðarnám í skólum landsins. Stundaði hann einnig jafn- framt öðrum störfum kennslu í Reykjavík eftir að hann lét af embætti. Hann var . bæði snjall ræðumaður og hafði yndi af ritstörfum. Skrifaði hann margar blaða- og tímarits- greinar. Hann var í 4 ár með- ritstjóri „Lindarinnar", ársrits Prestafélags Vestfjarða. Hann ritaði og Námsbók í kristin- fræðum handa börnunum. — Ýmislegt mun hann láta eftir sig í handritum. Hafði hann þannig lokið við að semja sögu Hrafnseyrar og nokkuð kom- inn áleiðis með sögu Reykhóla og hafði hann hið mesta yndi af því verki og óskaði þess oft að fá að ljúka því áður en hann yrði að hverfa héðan. Séra Böðvar var frábær embættis- maður, reglusamur og skyldu- rækinn svo sem bezt má verða. Var hann hinn mesti áhuga- maður um málefni kristni og kirkju og ævinlega reiðubúinn, er hann var kvaddur til starfa fyrir kirkjuna, hvort heldur var í sínum eigin söfnuðum eða til fyrirlestra og fundar- halda á hennar vegum utan héraðs. Hann var áhugasamur starfsmaður í góðtemplara- reglunni og studdi málefni hennar eftir því sem hann fékk því við komið með ráðum og dáð. Séra Böðvar unni mjög ís- lenzkri tungu og gerði sér mik- ið far um að vanda málfar sitt og ritmál. Hann var hagmælt- ur vel og er til eftir hann all- mikið af Ijóðum, einkum trúar- Ijóðum, bæði prentuðum á víð og dreif í tímaritum og blöð- um, en mest þó í handritum. Útför séra Böðvars fór fram í Reykjavík miðvikudaginn 18. þ. m. að viðstöddu fjölmenni. Með honum er fallinn í val- inn merkur og góður maður, sem minnzt verður með þökk og hlýju. Kirkja íslands þakkar hon- um mikið og gott starf og bless- ar minningu hans. S. S. Safnaðarfélag í Háteigsprestakalli „Samherjar“, félag þeirra, er styðja vilja starfsemi Há- teigssafnaðar, var stofnað á sunnudaginn 15. þ. m. Rúm- lega 50 manns gengu í félagið á stofnfundinum. Félagar geta orðið allir karlar 16 ára og eldri. Formaður var kosinn Lúðvíg Guðmundsson skólastjóri, en meðstjórnendur Axel Sigur- geirsson kaupmaður, Eggert P. Briem fulltrúi, Jónas Jó- steinsson yfirkennari, séra Jón Guðnason skjalavörður, Stef- án Á. Pálsson kaupmaður og Þórður Jasonarson bygginga- meistari. Tilgangur félagsins er að vinna að heill Háteigssafnaðar í hvívetna og að vinna að því, að kirkjumál safnaðarins verði leyst hið fyrsta. Ljósavatnskirkja 60 ára Á þessum vetri varð kirkjan á Ljósavatni 60 ára. Fyrsta guðsþjónusta þar fór fram 1. janúar 1892. Þessara tíma- móta var minnzt með hátíða- messugjörð á nýjársdag síð- astliðinn. Sóknarpresturinn séra Þormóður Sigurðsson á Vatnsenda prédikaði og rakti sögu kirkjunnar, en kirkjukór safnaðarins annaðist sönginn undir stjórn forsöngvarans, Sigurðar Sigurðssonar. Kven- félagskonur höfðu prýtt kirkj- una af mikilli smekkvísi og þennan dag var kirkjan í fyrsta sinn lýst með mörgum rafmagnsljósum, þar á meðal frá fagurri ljósakrónu, sem frú Hólmfríður Sigurðardóttir á Fosshóli hafði gefið kirkjunni til minningar um látinn eigin- mann sinn, Vigfús Kristjáns- son frá Úlfsbæ. Ennfremur af- hentu forstöðukonur kvenfé- lags sóknarinnar kirkjunni þennan dag 5 þús. krónur sem afmælisgjöf með fyrirmælum um, að því væri varið til að koma í kirkjuna fullkomnu rafmagnshitunarkerfi. Einnig gaf kvenfélagið vegglampana, sem lýsa upp kirkjuna. Raf- magn fær kirkjan frá vandaðri heimilisrafstöð, sem kirkju- bóndinn, Þórhallur Björnsson, og börn hans hafa byggt á staðnum. Eftir messu buðu hjónin á Ljósavatni, Þórhallur Björns- son kennari og frú Jenný Björnsdóttir, kirkjugestum til stofu. Var þar setið að veizlu- fagnaði og ræður fluttar. Veður var hið fegursta þenn- an dag og bílfært um sveitina. Kirkjuna á Ljósavatni byggði timburmeistari Björn Jóhannsson, sem átti kirkjuna, eins og þá var talið. Hann gekk frá henni að öllu leyti af mikl- um hagleik og smekkvísi. Síðar afhenti hann söfnuðinum kirkjuna og fjárhald hennar. Þjónandi prestar þessi 60 ár hafa verið: Séra Lúðvíg Knud- sen, séra Sigtryggur Guðlaugs- son, séra Sigurður Guðmunds- son, séra Ingólfur Þorvaldsson, séra Sveinn Víkingur og séra Þormóður Sigurðsson, sem er það nú og hefir verið prestur í Þóroddsstaðarprestakalli síð- an árið 1928. Auk þesSara hafa eftirtaldir prestar starfað í Ljósavatnskirkju um skemmri tíma: Séra Helgi Hjálmarsson á Grenjaðarstað, séra Ásmund- ur Gíslason á Hálsi, séra Jón Arason á Húsavík og séra Her- mann Hjartarson á Skútustöð- um. — Organleikarar Ljósa- vatnskirkju þennan tíma hafa verið: Kristján Sigurðsson bóndi á Halldórsstöðum frá 1892 fram til 1928 með aðstoð Theódórs sonar síns hin síðustu ár, en lengst af síðan Sigurður Sigurðsson bóndi á Landamóti og er hann það nú. Sóknarnefnd skipa nú: Jón Jónsson bóndi í Fremstafelli formaður, Hermann Guðnason bóndi á Hvarfi gjaldkeri og Kristján Jónsson bóndi í Fremstafelli ritari. — Safn- aðarfulltrúi er Sigurður Geir- finnsson bóndi á Landamóti. J. J. Kvenfélag í Langholtsprestaka lli Fimmtudaginn 12. marz sl. var stofnað Kvenfélag Lang- holtssóknar. Stofnendur voru rúmlega 40. Stjórnina skipa: Formaður frú Ólöf Sigurðar- dóttir, forstöðukona Hlíðar- enda, varaformaður Ragnhild- ur Þórðardóttir, Langholtsv. 20, ritari Ingibjörg Þórðardótt- ir, Snekkjuv. 15, gjaldkeri Hansína Jónsdóttir, Kambsv. 33. Meðstjórnendur: María Guðmundsdóttir, Guðlaug Sig- fúsdóttir, Unnur Schram. Félagið mun starfa að safn- aðar- og öðrum menningarmál- um á grundvelli kristilegra hugsjóna. Nýsftofnaður kirkjukór Kirkjukór Ingjaldshólssókn- ar var stofnaður þann 15. marz sl., með 18 meðlimum. Stjórn kórsins skipa: Friðþjófur Guð- mundsson, bóndi í Rifi, formað- ur, Ólöf Jóhannsdóttir, húsfrú á Hellissandi, ritari, Guðbjörg Jónasdóttir, húsfrú á Hellis- sandi, gjaldkeri. Organisti er Jóhanna Vigfúsdóttir, húsfrú á Hellissandi. Séra Magnús Guðmundsson sóknarprestur og Kjartan Jó- hannesson söngstjóri stofnuðu kórinn.

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.