Morgunblaðið - 20.09.2022, Page 4

Morgunblaðið - 20.09.2022, Page 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ Andrés Magnússon andres@mbl.is Þ að er óhætt að segja að það eigi sér stað bylting í bíla- heiminum þessi árin, þar sem orkuskipti í sam- göngum hafa orðið til þess að menn hafa þurft að hugsa sumt upp á nýtt, en sumt þarf þó ekki að hugsa alveg upp á nýtt og það er svo sem ekkert nýtt að fortíðarþráin blundar í mörgum. Í Wolfsburg í Þýskalandi rifjaðist það upp fyrir mönnum að rétt eins og Bjallan var elskuð og dáð af mörgum kynslóðum, þá var annar bíll frá Volkswagen sem vakti svipuð hughrif, en það er gamla góða rúg- brauðið eða Bulli, eins og Þjóðverjar nefndu það sín á milli. Rúgbrauðið var smárúta, örrúta eiginlega, sem var fyrst kynnt til sögunnar rétt upp úr seinni heims- styrjöld 1949. Það fékkst í margs konar útgáfum og var sérlega vin- sælt til ferðalaga, fyrst af hinni hag- sýnu fjölskyldu þýska efnahagsund- ursins, en síðar uppgötvuðu hipp- arnir að þetta væri bíll við þeirra hæfi. Áður en yfir lauk voru fram- leiddar 1,8 milljónir eintaka af því og nú er nýtt og glóðvolgt rúgbrauð á leiðinni. Íslenskum blaðamönnum var boð- ið að kynna sér gripinn í einn dag í Danmörku og Svíþjóð og skemmst frá því að segja að nýja rúgbrauðið stóð undir öllum væntingum. Yðar einlægur fékk að reynsluaka gripnum í félagi við Mörtu Maríu Winkel, ritstjóra Smartlands, og hún gat algerlega staðfest það álit, að þettta væri fallegur, glaðlegur og já, smart bíll. En það voru þó kannski ekki síður aðrir vegfarendur, sem staðfestu það. Hvert sem við fórum var flautað og blikkað af öðrum bílstjórum og þar sem við gerðum stuttan stans Volkswagen ID. Buzz er eilítið kubbslegur að sjá líkt og gamla rúgbrauðið en hann er vel rennilegur og rennur vel á þjóðveginum eða hér á Eyrarsundsbrúnni á leið yfir til Svíþjóðar. Rafmagnað rúgbrauð snýr aftur Það var gaman að sjá gamla og nýja rúgbrauðið hlið við hlið, gerólíkir bílar en ættarmótið er öllum augljóst. Það er ekki verið að fela hvers konar bíll hér er á ferð og hið fræga VW merki áberandi.Það verða ekki mjög margir litir í boði fyrsta kastið, en ekki vantar litadýrðina samt. Volkswagen er á leiðinni með glænýtt og ilm- andi rúgbrauð. Af fyrstu sýn og akstri að dæma hefur það alla burði til þess að slá í gegn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.