Morgunblaðið - 20.09.2022, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ | 9
mennings töluvert fyrr, eða í mynd-
inni Avengers: Endgame sem kom
út árið 2019, þegar uppfinningamað-
urinn Tony Stark ók honum í hlað
höfuðstöðva sjálfskipaða löggæslu-
liðsins. Að viðbættum vélarhljóðum
að vísu, sem ekki fer fyrir í raun-
heimum okkar hinna.
Nei, þvert á það sem læra má af
myndinni þá er bíllinn 100% rafknú-
inn. Rafhlaðan er 93 kWst og er
drægnin 488 kílómetrar samkvæmt
hinum þekkta WLTP-staðli. Þá er
fullyrt að hún nái að fara úr 5% í
80% hleðslu á einungis 22,5 mín-
útum. Ekki gafst tími til að láta á
það reyna, en til þess þyrfti einnig
hleðslustöð sem styður hámarks-
hleðslumöguleika bílsins, eða sem
nemur 270 kW.
Hljóðkerfi frá Bang & Olufsen má
fá sem aukabúnað fyrir 240 þúsund
krónur, en kerfið var að finna í bíln-
um sem blaðamaður fékk að reyna.
Er ekki hægt að bera því annað en
gott vitni. Händel, Sibelius, Avicii,
Deadmau5 og Run The Jewels; allt
fær þetta að flæða þýðlega um
dönsku hátalarana á meðan greitt er
ekið áleiðis til Þingvalla, þangað sem
tíu öldum fyrr bauðst mönnum að-
eins eitt hestafl til leiðarinnar.
Rafmagnað faðmlag
Bíllinn tekst vel á við krappar
beygjur sem annars myndu reyna
vel á aðra farkosti á sama hraða.
Hann faðmar veginn á sama tíma og
sætið faðmar ökumanninn, sem sjálf-
ur fær hamingjuna í faðm sinn. Hún
er þá hér, á Lyngdalsheiðinni. Hver
vissi það? Kannski Kjalnesinga-
goðar, forðum daga.
Allar þessar hugsanir leita á mann
og fá til þess nóg pláss, því ekki þarf
að hafa mikið fyrir akstrinum. Fram-
úrakstur er nokkurra sekúndna at-
höfn, svo eru það rólegheitin ein.
Rennislétt malbik. Haustlitir trjánna
verða að gulrauðri móðu. Maður yrði
ekki seinn til vorþings á honum þess-
um.
Numið er staðar í þjóðgarðinum
og bíllinn tekinn til nánari skoðunar.
Afturmyndavélin er í góðri há-
skerpu, sem reynist vel í ljósi þess að
útsýni um bakspegilinn er af skorn-
um skammti, að minnsta kosti í
gegnum afturrúðuna. Myndavélin er
þó aukabúnaður og ekki gefst færi á
að reyna hana í íslensku roki og rign-
ingu, þessa heiðskíru september-
helgi.
Undir vélarhlífinni svokölluðu er
að finna 81 lítra farangursrými. Ef
maður vill nota það til að hýsa
hleðslukapla þá er samt sem áður
ekki mikið eftir fyrir annars konar
varning.
Að aftan kemur svo á óvart hvað
rýmið er stórt, að minnsta kosti mið-
að við sportlega byggingu bílsins. Þó
rúmar það ekki nema 405 lítra, sem
er töluvert minna en til dæmis í
Teslu Model S, en þar komast einir
744 lítrar fyrir. Að vísu má fella niður
sætin, eða einungis miðjusætið, vilji
maður koma meiru fyrir. En þessi
bíll er ekki smíðaður fyrir fraktflutn-
inga. Hann er gerður til að flytja
fólk. Hratt. Og gerir það frábærlega.
Að innan er hönnunin engu síðri. Framsætin rafstýrð og þægileg og veita ökumanni og farþega góðan stuðning.
Á sleða milli sæta er þægilegt skrunhjól með tökkum, til að stýra útvarpi.
Fótaplássið er gott aftur í og glerþakið gerir mikið fyrir þá sem þar sitja.
Útlitið gefur til kynna kraftana sem bíllinn býr yfir. Rafhlaðan er 93 kWst og drægnin 488 kílómetrar.
Farangursrýmið reyndist meira en blaðamaður hélt í fyrstu. Þó er það ekki mikið, enda ekki tilgangur bílsins.