Morgunblaðið - 20.09.2022, Side 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
L
ífið er of stutt til að keyra ekki
um á rafmagni. Það er ein-
faldlega svo gaman (ég á
reyndar bæði bensínbíl og
rafbíl). Næst þeirri skemmtun að aka
rafbíl kemst að fylgjast vakandi auga
með því hvernig orkuskiptin eiga sér
stað. Undrahratt og áreynslulaust að
mestu. Og það er líka gaman að sjá
hversu miklu auðveldara það er að
eiga rafbíl í dag en árið 2015 þegar ég
tók stóra stökkið, beint út í stóru raf-
magnslaugina.
Allt hefur orðið öflugra
Það er ekki bara vegna þess að raf-
hlöður bílanna eru orðnar miklu öfl-
ugri og stærri en áður var heldur einn-
ig vegna þess að hleðslumöguleikarnir
eru orðnir nær óteljandi.
Þegar ég setti upp mína fyrstu
heimahleðslustöð, sem ég fjárfesti í ár-
ið 2015, ráku margir upp stór augu.
Það voru ekki einu sinni til reglur í
húsfélaginu um hvernig skyldi staðið
að málum. Ég lét leggja taug úr töflu
íbúðarinnar og niður í stæðið í bíla-
geymslunni. Allt eftir settum reglum
og meðfram öðru „tauganeti“ hússins.
Eldri maður og gírugur, á hæðinni
fyrir neðan mig, ákvað að fara stystu
leið og lét verktaka bora sameignina
nærri því í sundur. Uppi varð fótur og
fit, enda ljóst að ef aðrir færu sömu
leið, yrði nýbyggingin, á besta og dýr-
asta stað í Reykjavík, fljótt útlítandi
eins og sovétblokk frá tíma Brésnevs.
Fyrir nokkru síðan hefur fólk áttað
sig á að framtíðina í áfyllingarmálum
bílaflotans er ekki að finna á bensín-
stöðvum. Þessum kuldalegu og
þreyttu stöðum verður ekki breytt í
„rafstöðvar“ fyrir bifreiðar lands-
manna nema að litlu leyti. Þess vegna
leita forsvarsmenn eldsneytisfyrir-
tækjanna logandi ljósi að því að koma
stöðvunum eða lóðunum undir þær í
gott verð. Dagur B. Eggertsson er
drjúgur í aðstoðinni og afhendir borg-
arland gegn vægu verði eins og að
enginn sé morgundagurinn.
Bensínstöðvar ekki málið
Þetta óðagot, sem að stórum hluta
er á kostnað borgarsjóðs, sem við
engu má, er komið til vegna þess að
rafbílar eru og verða að langmestu
leyti hlaðnir við heimahús og vinnu-
staði. Útgáfufélagið sem gefur út
Morgunblaðið, og er þekkt fyrir að
fara í engu óðslega, er meira að segja
búið að koma upp hleðslustöðvum fyr-
ir starfsfólk. Það er ekki aðeins gert
fyrir þá sem ekki hafa kost á því að
hlaða við heimili sín, heldur einnig til
þess að gera þeim sem það geta kleift
að velja á milli þessara tveggja góðu
kosta.
Sífellt fjölgar þessum stöðvum, sem
flestar eru tengdar við þriggja fasa
rafmagn og geta hlaðið á þokkalegum
afköstum. Þeim mun halda áfram að
fjölga og fjölga og í lok þessa áratugar
verða þær fleiri en póstlúgurnar við
heimilin. Ekki er ósennilegt að hægt
verði að tengja bíla við hvern einasta
ljósastaur og fáar verslanir munu ná
að laða til sín viðskiptavini ef ekki
verður hægt að tengja og tryggja að
bíllinn geti fengið „sopann sinn“ með-
an sjoppað er af miklum móð. Þetta
fattaði Þórarinn Ævarsson, fyrrum
framkvæmdastjóri IKEA fyrir óra-
löngu síðan og þess vegna er hvergi
fleiri hleðslustöðvar að finna en ein-
mitt í Kauptúni í Garðabæ. Þar sem
ég áttaði mig líka snemma — en
kannski ekki eins fljótt og Þórarinn —
hef ég farið vandalega yfir
hleðslustöðvamarkaðinn og það sem
er í boði þar. Mikið vatn hefur runnið
til sjávar frá því að ég keypti fyrstu
Wallbox-stöðina fyrir sjö árum síðan.
Og nú var komið að því að grípa nýja,
eða af einhverri annarri gerð.
Fjölmenningarstöð sem tekur
vel á móti öllum tengjum
Copper-stöðin frá sama fyrirtæki
varð fyrir valinu. Ekki síst vegna þess
að hún er handhæg ef hlaða þarf bíla
með Type 1 og 2 tenglunum til skiptis
(gamli jálkurinn minn er með Type 1).
Nú er ég að setjast niður og kynn-
ast þessum nýjasta fjölskyldumeðlimi
og þeim möguleikum sem hann býður
upp á til þess að gera ferðalögin milli
staða og jafnvel landshluta enn þægi-
legri en ella. Það tekur tíma að koma
sér inn í það, en það mun hafast.
Með stöðinni ætla ég að taka enn
nýtt skref inn í framtíðina. Eitt sem
mun skipta meira máli á komandi ár-
um en akkúrat núna. Þegar reynsla
verður komin á málið síðar í haust
birtist framhald af þessum pistli.
Hann mun breyta lífi rafbílaeigandans
til frambúðar.
Að byggja
upp gott
tengslanet
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Það er ekki aðeins á LinkedIn sem mikilvægt er
að koma upp réttu tengingunum. Það á líka við
um bílastæðið heima og aðra þá staði þar sem
maður leggur þarfasta þjóninum.
Morgunblaðið/Stefán E. Stefánsson
Fyrir nokkru var tími kominn á 7 ára gamla heimahleðslustöð sem hafði þjónað vel. Nú er ný kynslóð tekin við sem
býður upp á marga möguleika. Ætlunin er að nýta þá til fullnustu og gera rafbílaupplifunina enn betri en áður.
Sífellt fleiri húsfélög
leggja nú stórfé í að
koma upp hleðsluneti
í bílakjöllurum og á
stæðum. Þar opnast
möguleikar fyrir þá
sem ekki hafa áður átt
rafbíl. Mikil þróun á
eftir að eiga sér stað á
þeim vettvangi.
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR
um auglýsingapláss:
Berglind Bergmann
Sími: 569 1246
berglindb@mbl.is
fylgir
Morgunblaðinu
þriðjudaginn
18. okt. 2022
Auglýsendur athugið
SÉRBLAÐ
BÍ A
BLAÐ
Hleðslunetið í heiminum stækkar
og stækkar. Það tengist einnig æ
betur við netheima. Jafnt og þétt
munum við ekki aðeins sjá
hleðslustöðvarnar þjóna sem rás
rafmagns inn í rafbíla, heldur
einnig úr rafbílum og út á raf-
magnsmarkaðinn að nýju. Raf-
hlöður bílaflotans munu nefnilega
reynast forðabúr sem sækja má í
á þeim tímum sólarhringsins þeg-
ar þörf er fyrir orku í annað en
að koma fólki milli staða.
Ísorka, sem byggir upp net
Wallbox-stöðva vítt og breitt um
landið, býr samfélagið jafnt og
þétt undir þetta. Viðskiptavinir
fyrirtækisins eru þátttakendur í
hljóðlátri byltingu. Sífellt fjölgar
stöðvum sem notendur Ísorku-
appsins geta leitað í, séu þær á
annað borð lausar. Greiðslu-
miðlun í gegnum kerfið er sára-
einföld. Samkvæmt fyrirtækinu
eru stöðvarnar orðnar um 800 og
virkir notendur hvorki fleiri né
færri en 10.000 talsins.
Innan tíðar verðum við Íslend-
ingar allir ekki aðeins tengdir í
gegnum hið ósýnilega DNA-net,
sem Kári hefur kortlagt svo vel,
heldur einnig rafnetið sem er
næstum jafn ósýnilegt. Kannski
að þá verði kominn tími til að
sameina Decode og Ísorku, hver
veit?
Hleðslunet Ísorku 800 hleðslu-
stöðvar
10.000
virkir notendur
22.000 rafbílaeigendur
með appið
99%
uppitími hleðslustöðva
Gott að deila sín á milli