Morgunblaðið - 20.09.2022, Page 11

Morgunblaðið - 20.09.2022, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11 LANDSBANKINN. IS Þú greiðir ekkert lántökugjald og færð lægri vexti þegar þú kaupir rafmagnsbíl. Betri kjör á rafmagns- bílalánum Velkomin í Landsbankann Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is F erðaþjónustufyrirtækið Icelandia sem rekur m.a. Flugrútuna og bílaleiguna Enterprise er um þessar mundir að taka í notkun fyrsta rafmagnsvagninn í ferðaþjónustu- tengdri starfsemi. Bíllinn, sem er af gerðinni VDL, leysir af hólmi eldri díselrútu og ekur með ferða- menn á milli Keflavíkurflugvallar og bílaleiga í nánd við völlinn. Björn Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Icelandia, segir í samtali við Morgunblaðið að vagn- inn hafi verið sýningarbíll hjá framleiðanda og því fengist á betri kjörum en ella. Björn segir nýjan bíl af þessari tegund kosta ríflega 60 milljónir króna. „Við höfum verslað við þetta fyrirtæki í mörg ár og flutt inn rútur og strætisvagna frá þeim. Þeir hafa verið leiðandi í Evrópu í framleiðslu rafmagnsstrætis- vagna. Okkur langaði að prófa einn bíl og þreifa á þessari nýju tækni sem er að koma í stærri bíla og taka um leið skref í átt að orkuskiptum í okkar rekstri,“ seg- ir Björn. Þegar blaðamaður talaði við Björn var verið að ljúka við að merkja bílinn. „Það er verið að setja mjög flottar merkingar á hann með áherslu á okkar ís- lensku grænu orku.“ Björn segir aðspurður að hleðsla bílsins eigi að duga vel fyr- ir verkefni dagsins. „Aksturs- vegalengdin er ekki mjög mikil innan hvers dags. Aftur á móti fer orka í að halda uppi hita inni í vögnunum, sérstaklega þegar hurðir opnast og lokast í sífellu. Uppgefin drægni er 350 km. Svo hlöðum við hann á nóttunni.“ Nú þegar hefur Ísorka sett upp sérstaka hleðslustöð fyrir farþega- vagninn. Það verkefni er á ábyrgð Isavia, sem á og rekur Keflavík- urflugvöll. Guðjón Helgason, upplýsinga- fulltrúi Isavia, segir að hleðslu- stöðin sé sú fyrsta á vellinum sem sérstaklega er tengd orkuskiptum hjá rútum og hópferðabílum. Stöð- in sé ekki ætluð almenningi. „Við hjá Isavia tókum því fagn- andi þegar leitað var til okkar með þetta verkefni, enda rímar það af- ar vel við nýuppfærða sjálf- bærnistefnu okkar og áform okkar um orkuskipti í flugvallarsam- félaginu á Keflavíkurflugvelli. Verið er að kanna þörfina fyrir hleðslustöðvar á flugvallarsvæðinu enda orkuskipti hluti af okkar stefnu.“ Skref í átt að orku- skiptum í ferðaþjónustu Rafmagnsrúta frá VDL tengir flugvöllinn við bílaleigusvæðið Ljósmynd/Icelandia Rútan, sem hefur 350 km drægni, ekur stutta vegalengd en töluverð orka fer í að hita upp farþegarýmið. Hópur bandarískra vísindamanna hefur þróað nýja og betri leið til að stýra hleðslu rafmagnsbíla og er hugbúnaðar- uppfærsla allt sem þarf til að stytta hleðslutímann. Notaðist hópurinn við gervigreind til að gera tilraunir með ólíkar hleðsluað- ferðir og kom í ljós að með því að gera ákveðnar breytingar á straumi og spennu má fylla hefðbundnar lítín- jónarafhlöður mun hraðar án þess að fórna endingartíma þeirra eða gæðum. Var nýja hleðslustýringin sannreynd bæði í hermi og með prófunum á alvör- urafhlöðum og benda niðurstöður vís- indamannanna til þess að með þeirri að- ferð sem þeir hafa þróað geti tekið aðeins 10 mínútur að setja 90% hleðslu á raf- hlöður dæmigerðs rafmagnsbíls. Tækniritið NewScientist segir frá upp- götvuninni og bendir á að í dag vinni hugbúnaður hleðslustöðva og rafmagns- bíla þannig að þegar bíl er stungið í sam- band fer hleðslan fyrst rólega af stað en eykst smám saman, og lækkar svo að nýju þegar búið er að nýta 60-70% af geymslugetu rafhlöðunnar til að hlífa henni við álagi. Hjálpaði gervigreindin til við að bæta þetta ferli svo að meiri orka kæmist á rafhlöðurnar á skemmri tíma. Ekkert liggur fyrir um hvort rafbíla- eða hleðslustöðvarframleiðendur hyggj- ast nýta þessa uppgötvun. ai@mbl.is Morgunblaðið/Sisi Ná mætti 90% hleðslu á 10 mínútum Notuðu gervigreind til að stytta hleðslutíma

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.