Morgunblaðið - 20.09.2022, Side 12

Morgunblaðið - 20.09.2022, Side 12
AUGLÝSING Aðstoða við orkuskipti í bílaflotanum Fyrirtækið Rafbox er stofnað árið 2018 með það að leiðarljósi að ýta undir og styðja við orkuskipti í samgöngum á Íslandi. Einstaklingarnir á bakvið fyrirtækið eiga það öll sam- eiginlegt að hafa brennandi áhuga á málefninu. Á þessum rúmu fjórum árum sem fyrir- tækið hefur verið starfrækt hafa eigendur og starfsfólk þess lagt mikla vinnu og metnað í að afla sér víðtækrar þekkingar á hleðslukerfum og -búnaði t.a.m. með því að sækja ráðstefnur um orkuskipti og rafbílahleðslu víðsvegar um heim. Rafbox sérhæfir sig í hönnun og uppsetningu á hleðslukerfum fyrir rafbíla við heimili og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Það flytur inn búnað frá skandinavískum framleiðendum sem sérstaklega er hannaður fyrir norrænt veðurfar, sem reynst hefur ótrúlega vel. Emil Örn Harðarson, sölu- og kerfisstjóri og einn eigenda Rafbox segir framtíðina klárlega liggja í rafmagninu. Nýlega gerði Rafbox samning við fyrirtækið MONTA sem rekur samnefndan hugbúnað. Í gegnumMONTA er boðið upp á greiðslumiðlun, flotastjórnun og fullkomna álags- og aðgangsstýringu svo eitthvað sé nefnt og er því frábær lausn fyrir fjölbýlishús og fyrirtæki sem vilja jafnvel fá aukatekjur af hleðslukerfunum sínum. Ræstinga- og fasteigna- umsjónarfyrirtækið Dagar hafa tekið stór skref í orkuskiptum og unnið náiðmeð Rafbox á þeirri vegferð. „Við hjá Dögum leggjum áherslu á að axla ábyrgð í umhverfismálum og vitum að til þess að árangur náist í þeimmálum þá þarf að vinna skipulega og markvisst í þessum málaflokki.“, segir Pálmar Óli Magnússon forstjóri Daga. „Afstaða okkar með umhverfinu er ákvörðun sem við höfum tekið föstum tökum og fyrir nokkrum árum síðan settum við af stað aðgerðaáætlun til að minnka kolefnisspor fyrirtækisins, í gegnum orkuskipti í bílaflotanum,“ útskýrir hann. „Þegar kom að uppsetningu hleðslustöðva lögðum við áherslu á að velja samstarfsaðila sem hægt væri að reiða sig á í útfærslu verkefnisins, meðal annars til þess að tryggt væri að við gætum viðhaldið háu þjónustustigi til okkar viðskiptavina á meðan innleiðingu stæði. Við leituðum til Rafbox eftir ráðgjöf og útfærslu verkefnisins. Þeir hafa reynst dýrmætur samstarfsaðili, útvegað og sett upp búnaðinn af mikilli fagmennsku.“ Pálmar Óli segir að í upphafi verkefnis hafi Rafbox sett upp átta 22 kw hleðslustöðvar með sextán hleðslupunktum við höfuðstöðvar fyrirtækisins. Til þess að tryggja enn betur að rekstur bílaflotans væri hnökralaus var tekin ákvörðun um að bæta við 200 kw hraðhleðslustöðvummeð hleðslupunktum fyrir fjóra bíla og möguleika á að stækka upp í átta hleðslupunkta í framtíðinni. „Það framtak hefur mælst vel fyrir hjá starfsfólki þar sem að þau geta nú nær fullhlaðið bíl sinn á 30 mínútum,“ segir Pálmar. „Það myndaðist strax mikill spenningur hjá okkur þegar Dagar höfðu samband með sína metnaðarfullu áætlun um orkuskipti í bílaflota þeirra. Við sáum fljótt að hér myndi lítið kerfi ekki duga og því lögðumst við í hönnun og uppsetningu á stóru hleðslukerfi við höfuðstöðvar þeirra í Garðabæ og nú á dögunum lukum við svo uppsetningu á öflugu hraðhleðslukerfi hjá þeim. Þetta var ótrúlega skemmtilegt og lærdómsríkt verkefni“ segir Emil. „Við seljum einnig ferðahleðslustöðvar, hleðslukapla og varahleðslutæki á frábæru verði. Við gerum tilboð í verkin, viðskiptavinum að kostnaðarlausu svo það þarf því ekki að hika við að hafa samband!“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.