Morgunblaðið - 20.09.2022, Qupperneq 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þegar kemur að bílum er Bergþóra
Þorkelsdóttir með tiltölulega jarð-
bundinn smekk en hún er hins vegar
með brennandi áhuga á samgöngum
enda forstjóri Vegagerðarinnar.
Á æskuheimili hennar var til
dæmis lengi vel enginn bíll. „Það var
hins vegar mikið kappsmál á heim-
ilinu að eignast bifreið og áttu for-
eldarar mínir nokkra misáreiðan-
lega Volvóa,“ segir hún.
Bergþóra játar að hún líti fyrst og
fremst á bifreiðar sem tæki til að
komast frá A til B en þar með er
ekki sagt að hún kunni ekki að meta
glæsikerrur. Þvert á móti lítur hún á
það sem eftirsóknarverðan lúxus að
sitja á bak við stýrið á vönduðum,
kraftmiklum og þægilegum bíl: „Að
vera á mjög góðum bíl er svona eins
og vinaleg stroka í amstri dagsins,
eða góður kaffibolli sem lífgar upp á
tilveruna.“
„Ekkert sást nema stikurnar“
Bergþóra ber líka skynbragð á
mikilvægi þess að eiga bíl sem ræð-
ur við íslenskt veðurfar og minnist
hún góðrar reynslu af fjór-
hjóladrifnum Súbarú sem lét ekkert
stöðva sig. „Í tólf ár bjó ég á Selfossi
en sótti vinnu í Reykjavík. Þetta var
löngu áður en byrjað var að hafa vit
fyrir bílstjórum með því að beinlínis
loka vegum þegar færð var slæm, og
oft þurfti ég að aka þessa leið við
mjög slæmar aðstæður þar sem ekk-
ert sást nema stikurnar og eina leið-
in til að vita nokkurn veginn hvar ég
var stödd var að hafa kveikt á út-
varpinu – því þegar komið var á viss-
an stað á heiðinni rofnaði sambandið
við eitt loftnetið og þurfti að stilla á
aðra bylgjulengd.“
Komst Bergþóra alltaf klakklaust
á milli heimilis og vinnu nema einu
sinni þegar bíllinn hringsnerist.
„Þegar bíllinn stöðvaðist vísaði
húddið beint niður í hraunið en ég
var hin rólegasta og tókst að koma
mér aftur af stað. Landið hefur þessi
áhrif á mann að maður getur ekki
annað en brugðist við og haldið
áfram, og svo var það ekki fyrr en ég
var komin heim til mín að ég leyfði
mér að fá áfall yfir því sem hafði
gerst.“
Vegirnir þurfa að ráða
við þyngri umferð
Bergþóra er mjög ánægð með
hvernig vegurinn yfir Hellisheiðina
hefur batnað síðan þá. „Á þessum
tíma var þetta hættulegasti vegur
landsins en í dag er vegurinn orðinn
mun öruggari og búið að fækka slys-
um þar um 70%. Bráðum vígjum við
nýjan kafla sem bætir öryggið enn
frekar.“
Hún segir mörg brýn verkefni
fram undan í vegakerfi landsins
enda verði vegirnir að ráða við vax-
andi umferð: „Við sjáum að mikil
mannfjölgun er að verða á Íslandi og
umferðin að aukast að sama skapi.
Þá hefur atvinnulífið á landsbyggð-
inni eflst með tilheyrandi fjölgun
íbúa, og atvinnusóknarsvæði fólks er
að stækka með útþenslu byggðar.
Það er t.d. ekki óalgengt að fólk búi í
bæjum eins og Selfossi, Þorlákshöfn
eða Hveragerði og vinni í Reykjavík.
Við verðum, sem þjóðfélag, að átta
okkur á þessum breytingum og
hvernig þær kalla á aukna fjárfest-
ingu í uppbyggingu vegakerfisins.“
Draumabílskúr Bergþóru Þorkelsdóttur forstjóra Vegagerðarinnar
Góður bíll lífgar upp á tilveruna
Morgunblaðið/Hákon
„Þegar bíllinn stöðvaðist vísaði húddið beint niður í hraunið,“segir Bergþóra af atviki á hættulegum vegarkafla.
Sunnudagsbíllinn: er Volvo 142, eins og for-
eldrar mínir áttu á mínum æskuárum. Sá bíll
vekur gamlar og góðar minningar um ís-
bíltúra á sunnudögum.
Mótorhjólið : er ítölsk vespa,
vegagerðargul. Slík hjól eru
þægileg innanbæjar, auðvelt að
keyra þau og hafa stjórn á þeim
og eru vel sýnileg í umferðinni.
Litli borgarbíllinn : er Toyota Yaris en ég hef
átt bíl af þeirri gerð um nokkurt skeið. Þetta
eru liprir og þægilegir bílar, sem henta vel í
innanbæjarakstur.
Fyrir lottóvinninginn : myndi ég kaupa eldrauða Massey Ferguson 5460-dráttarvél með
göfflum, alvörutryllitæki til að nota í sveitinni og í hesthúsinu. Dráttarvélina gæti ég t.d.
notað á veturna til að flytja heyrúllur í hlöðuna í hesthúsinu. Fyrir afganginn myndi ég kaupa
almennilega hestakerru til að flytja hrossin á milli staða, þegar þess er þörf.
Draumabílskúrinn
Eitt ómissandi ökutæki í við-
bót : er flott rafhjól sem fer
mjúklega áfram með mið-
aldra konu sem vill
halda sér í formi, fara
á milli staða á
umhverfisvænan hátt
og komast upp allar
brekkurnar á leiðinni.
Hinn fullkomni íslenski hvers-
dagsbíll: til að aka á vegum úti
eða nota í sveitinni er Toyota
Land Cruiser. Hann er enginn
sportbíll heldur praktískur og
kraftmikill bíll, sem er lipur í
akstri þrátt fyrir stærðina.
Gott er að ferðast um landið í
slíkum bíl því hann er rúmgóð-
ur og nóg pláss fyrir ferða-
félagana og svo getur hann
dregið hestakerru.
Í villtustu draumum : ætti ég ann-
aðhvort buggy-bíl eða gott fjórhjól.
Ég sé fyrir mér að þegar ég verð
orðin rosalega gömul geti ég
ferðast um á slíku farartæki í sveit-
inni með barnabörnin með mér –
að sjálfsögðu með tilheyrandi ör-
yggisbúnað.
Ljósmyndir:
Toyota Europe Newsroom
Mercedes-Benz Group Media
Volvo Cars Global Newsroom
Íris Karlsdóttir
Honda Powersports News
Vespa.com
Ducati.com
Fíni bíllinn: er þýskur eðal-
vagn, EQE frá Mercedes Benz,
sem gengur fyrir rafmagni. Ég
get talað við bílinn og sagt
honum hvert á að fara og þá
finnur hann sjálfur fljótustu
leiðina hverju sinni.