Morgunblaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 1
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Embætti eins dómanda og eins varadómanda
við Endurupptökudóm laus til umsóknar
Endurupptökudómur er sérdómstóll sem sker úr um hvort heimila skuli endurupptöku dómsmála sem dæmd hafa verið í
héraði, Landsrétti eða Hæstarétti. Dómsmálaráðherra skipar fimm dómendur í Endurupptökudóm, þar af þrjá, ásamt jafn-
mörgum varamönnum, tilnefnda af hverju hinna þriggja dómstiga. Embætti tveggja dómenda og jafnmargra varadómenda
skulu auglýst og við veitingu þeirra gætt ákvæða III. kafla laga um dómstóla, nr. 50/2016, og reglna um störf dómnefndar,
nr. 970/2020. Dómendur Endurupptökudóms fá greitt fyrir hvert mál sem þeir taka sæti í samkvæmt tímagjaldi sem ákveðið
er af stjórn dómstólasýslunnar.
Með vísan til framangreinds auglýsir dómsmálaráðuneytið laus til umsóknar embætti eins dómanda og eins varadómanda
við Endurupptökudóm. Skipað verður í embættin til fimm ára frá 1. febrúar 2023.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 13. gr. laga nr. 50/2016, og koma úr röðum annarra en fyrrverandi eða starfandi
dómara eða núverandi starfsmanna dómstóla.
Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 970/2020 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun,
2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum,
s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra
o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning
lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) tvo fyrrverandi/
núverandi samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra eða netföng, sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og
skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr. 970/2020 og 11) aðrar upplýsingar
sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf dómanda við Endurupptökudóm.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) afrit dóma í munnlega fluttum málum sem
umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið
og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 5) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og
6) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar
verði auðkenndar. 7) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem dómandi við Endurupptökudóm.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 14. nóvember næstkomandi. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna
og bréfaskipta er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á
netfangið starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Dómsmálaráðuneytinu,
28. október 2022.
Laus er staða sérfræðings í kerfisstjórnun upplýsingakerfa hjá
Mjólkursamsölunni (MS). Ef þú hefur mikinn áhuga á upplýs-
ingatækni og ert með góða þjónustulund þá erum við að leita
að þér!
Starfssvið og helstu verkefni
• Umsjón upplýsingakerfa og annara tæknikerfa MS.
• Rekstur miðlægra og sérhæfðra kerfa MS.
• Þátttaka í eða framkvæmd úrbótaverkefna, ásamt vali og
innleiðingu tæknilausna.
• Regluleg áætlunargerð um rekstur kerfa ásamt samskiptum
við innri sem ytri aðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Nám í tölvunarfræði, kerfisstjórnun og/eða farsæl reynsla
sem nýtist í starfi.
• Góð þekking á upplýsingatækni með áherslu á Microsoft
umhverfi.
• Kostur að hafa þekkingu á rekstri VMWare umhverfis, Veeam
afritunarbúnaðar, MSSQL, Office365 og þess háttar.
• Frumkvæði og metnaður í starfi, lausnarmiðuð hugsun og áhugi
til að tileinka sér nýjungar.
• Greiningarhæfni í flóknum kerfisrekstri.
Umsókninni þarf að fylgja starfsferilsskrá.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknafrestur er til og með 6. nóvember.
Nánari upplýsingar veitir
Ómar Þorgeirsson omarth@ms.is
Sótt er um starfið í gegnum alfred.is
Kerfisstjóri – Upplýsingatækni intellecta.is