Sambandstíðindi - 01.04.1939, Blaðsíða 4
4
SAMBANDSTÍÐINDI
Frá óskiftum afla dregst: olíur,
beita, ís, áhnýting, ljós í beitinga-
skýlum og kol.
Lágmarkskauptrygging á vetr-
ar- og vor-vertíð kr. 150.00 á mán-
uði.
2. Hlutaskifti á síldveiðum með
reknetum:
36% af bruttoafla er skiftist í
jafn marga staði og menn eru á
skipinu + frí kol, hreinlætisvör-
ur og salt í fisk er áhöfnin dregur.
Matsveinar sömu kjör + kr.
40.00 á mánuði.
3. Hlutaskifti á síldveiðum með
dragnót:
5 manna áhöfn, 13 staða skifting,
6 manna áhöfn, 14 staða skifting,
7 manna áhöfn, 16 staða skifting.
Frá óskiftu dregst: olíur og ís.
Matsveinar sömu kjör + kr. 40,00
á mánuði.
4. Kaup háseta og matsveina við
flutninga skal vera kr. 240,00 á
mánuði + frítt fæði.
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ BRYNJA
Á ÞINGEYRI
samdi 20. jan. s.l. við vinnuveit-
endur á staðnum. Helztu kaup-
taxtar eru:
Eyrarvinna: Næturv
Karlar: Dag Eftir Helgid
18—60 ára 1.05 1.40 1.70
17 ára 0.95 1.30 1.60
15—16 ára 0.85 1.15 1.30
Konur:
17—60 ára 0.75 1.10 1.30
15—16 ára 0.70 1.00 1.20
Ofansetning skipa, hafnarvinna,
íshúsvinna, ístaka: 10 aurum
hærra kaup. Uppskipun á kolum
og salti 35 aurum hærra kaup pr.
klst.
Fiskþvottur pr. 50 kg. af himnu-
dregnum fiski kr. 0.42, af óhimnu-
dregnum fiski kr. 0.32. — Dag-
vinna kl. 7—18, eftirvinna kl.
18—21, næturvinna kl. 21—7.
Kaffihlé 2X% klst. í dagvinnu.
23. jan. s.l. gerði félagið samn-
ing við eigendur línuveiðagufu-
skipa á staðnum.
Helztu atriði samningsins eru:
Af óskiftu skal greiða kol, salt,
beitu og ís. Hlutaskifting skal vera:
18 manna áhöfn í 37 staði.
17 manna áhöfn í 36 staði.
16 manna áhöfn í 34 staði.
15 manna áhöfn í 32 staði.
Aukaþóknun matsveina kr. 50.00
á mánuði. »
VERKALÝÐSFÉLAG KALD-
RANANESSHREPPS, DRANGS-
NESI.
samdi 8. jan. s.l. við atvinnurek-
endur á staðnum.
Helztu kauptaxtar eru:
Kaup karla: Næturv
Dag Eftir Helgid
Alm. vinna 1.00 1.20 1.75
Fiskvinna 0.90 1.00 1.20
Kol og salt 1.15 1.30 1.75
Smíðavinna 1.10 1.30 1.50
Kaup kvenna 0.70 0.80 1.00
Fiskþvottur: Stórfiskur kr. 1.30
skpd., smáfiskur kr. 0,95 skpd.
Dagvinna kl. 7—18, eftirvinna kl.
18—22, næturvinna kl. 22—7.
Kaffihlé 2X15 mín. í dagvinnu.
Vinnuréttindi hafa allir með-
limir sambandsfélaga Alþýðusam-
bands íslandS, nema þeirra félaga,
sem ekki viðurkenna jöfn vinnu-
réttindi annara Alþýðusambands-
félaga.
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ
BJARMI, STOKKSEYRI
samdi 22. jan. s.l. við hreppsnefnd
Stokkseyrarhrepps um kaup og
kjör í þeirri vinnu er hreppsnefnd-
in hefir yfirráð yfir.
Skal kaupið vera samkvæmt
auglýstum taxta félagsins, en
hann er fyrir karlmenn: Dagvinna
kr. 1.00, eftirvinna kr. 1.25, helgi-
dagavinna kr. 1.50 og næturvinna
kr. 2,00 pr. klst.
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ AFTUR-
ELDING, HELLISSANDI.
8. febrúar s.l. undirrituðu Al-
þýðusamband íslands og Vinnu-
veitendafélag íslands samning um
hlutaskifti á vélbátum minni en 8
smálesta, sem stunda sjó í Krossa-
vík á Hellissandi.
Helztu atriði samningsins eru:
Eftir að búið er að taka af óskift
um afla hvers báts slysatrygging-
argjöld skipverja, skal skifta afl-
anum svo sem hér segir:
Á þeim bátum, sem hafa:
7 skipv. skal skifta í I2V2 staði.
6 sikpv. skal skifta í 11 staði.
5 skipv. skal skifta í 9 staði.
4 skipv. skal skifta í IVt. staði.
Beitukostnað greiðir útgerð báts-
ins í öllum tilfellum að hálfu og
skipverjar að hálfu. Allan annan
kostnað, sem til útgerðarinnar og
sjósóknar þarf, greiði útgerð báts-
ins að öllu leyti.
Frá sambands-
skrifstofunni.
Erindrekstur. Á fundi sam-
bandsstjórnar 31. okt. sl. var sam-
þykt tillaga um að félög sambands-
ins sjái erindreka og öðrum sendi-
mönnum sambandsstjórnar fyrir
uppihaldi, hvert á sínum stað, þeg-
ar þeir eru á ferðalagi 1 erindum
sambandsins.
Leiðrétting. Á bls. 19 í þingtíð-
indum síðasta sambandsþings hef-
ir fallið úr nafn Péturs Guðmunðs-
sonar, varamanns í miðstjórn
Alþýðusambands íslands og Al-
þýðuflokksins.
Sólbakkaverksmiðjan. Út af sam-
þykt þeirri, sem sambandsstjórn
er kunnugt um að gerð hafi verið
í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins,
um að flytja vélar Sólbakkaverk-
smiðjunnar til Raufarhafnar, sam-
þykti stjórn Alþýðusambands ís-
lands, á fundi sínum 30. janúar s.l.
eftirfarandi áskorun: „Stjórn Al-
þýðusambands íslands skorar ein-
dregið á hæstvirta ríkisstjórn að
koma í veg fyrir, að vélar verk-
smiðjunnar á Sólbakka við Flat-
eyri verði fluttar í burtu þaðan,
enda yrði slík ráðstöfun til lítils
sparnaðar á vélakaupum til annara
verksmiðja og þó óbærileg fyrir
atvinnulíf á Flateyri."
Á fundi Verkamannafélags
Raufarhafnar 1. febrúar s.l. var
samþykt svohljóðandi ályktun:
„Fundur haldinn í Verkamanna-
félagi Raufarhafnar 1. febrúar
1939 samþykktir að mótmæla því
gerræði Síldarverksmið just j órnar,
að Sólbakkaverksmiðjan verði
flutt þaðan,“