Káess-blaðið - 16.01.1939, Side 2
2
K AES S-blaðið
Til starfa.
»---------Við vitum að íþrótta-
starfsemin sem uppeldisstarfsemi
er ómissandi þáttur einskonar skap-
andi máttur i þjóðlífi voru. Þess
vegna er það sorglegt að eigi skuli
meira vera gert af hálfu ríkisins íil
þess að bæta staðhættina fyrir í-
þróttaiðkanir almennings, en raun
ber vitni um.
Við skuium líta tii okkar eigin
íþróttafélags, á aðstöðu þess í bæj-
arfélaginu hér, til þess að vinna
fyrir íþróttamálin, hve erfið hún er
í samanburði við íáiög í öðrum
bæjarfélögum, þar sem víðast hvar
eru komnir fyrirmyndar íþrótta-
staðir. — Mætii t. d. nefnaReykja-
vik og Vestmannaeyjar.
Fyrir K. S. er líkt ástatt eins og
nyrri bifreið, sem gerð er fyrir og
ætluð er tii aksturs á rennisléttri
steinlagðri akbraut, en hér á að
aka eftir torsóttum og grýttum veg-
um, þar sem kostir bifreiðarinnar
aldrei geta komið í ljós, sakir þess
að hún einatt verður að hjakka í
í sama farinu. Til þess að nýtísku
bifreið komist afram og hraði henn-
ar og þægindi fyrir vegfarandan
geti komið í ljós, þarf að ryðja
henni nýja vegi, ryðja burtugrjót-
inu og torfærunum, svo að hraði
hennar geti notið sín. Það þarf að
byggja nýjar brautir, sléttaogvar-
andi akvegi, þar sem bifreiðin
getur brunað eftir með fullum hraða,
svo fólkið sem í henni situr, geti
haft gagn og gaman af ferðalag-
inu og akstrinum, og komist þang-
að sem það þráir.
Við þurfum að hjálpa tii þess
að byggja þessa vegi, sem svara
til kröfu timans, — ryðja nýjar
brautir í hinu torsótta íslenzka
fjalllendi, en ekki að leggja steina
i veginn til hindrunar, því torfær-
urnar eru nógu margar samt, sem
teppa eðlilega frjálsa framför. Því
þótt kunnátta bílstjóranna ogkost-
gæfni og þægindi slíkra bifreiða
sé mikil, þá kemur það aldrei að
gagni á úreitum gömlum lesta-
gangsvegum.
Ef við tökum annað dæmi og
likjum íþróttastarfi og viðleitni K.S.
og íþróttamanna þess hér í bæ
við lítið ávaxtatré, sem flutt hefir
verið inn úr erlendri gróðurmold,
til þess að gróðursetja það í ís
lenzkum jarðvegi, og við ætlum
þessu ávaxtatré að dafna í hrjóst-
ugum, grýttum og votum jarðvegi.
Hvernig á þetta litla tré að geta
orðið stórt og borið ávöxt, ef ekk-
ert væri gert til þess að frjóvga
moldina, sem er alltof næringar-
snauð og hrjóstug fyrir þennan
skjóllausa nýgræðing, ef ekkert
væri gert til þess að skapa trénu
lifsaíl með betri • ræktun.
Að sá írækorni í lélegan jarðveg,
án þess að hlúa að því, væri til
einskis, því þótt lífsmark leyndist
með þvi fyrst, myndi það efalaust
kafna í hýði sínu. —
Það mætti likja íþróttastarfsemi
K. S. hér í bæ við þessa nýtísku
bifreið ellegar við þetta litla ávaxta-
tré. — Það þarf að byggja nýja
og betri vegi, en áður hafa hér
þekkst og það þarf að ræktajarð-
veginn betur, — gera úr honum
gróðurmold, þar sem tréð gæti
vaxið og borið ávexti. — Með öðr-
um orðum. — Vér iþróttamenn í
K. S. teljum, að ríkinu og bæjar-
félaginu beri heilög skylda til að
ryðja íþróttastarfseminni nýjan betri
veg og færari, — að byggja henni
akur, sem hún mun vera sjálf og
einsömul fær um að rækta. —
Þetta getur hið opinbera bezt
gert með því, að útvega íþrótta-
mönnum sundlaug og íþróttavöllá
staðinn, svo íþróttalífið hér geti
vaxið, blómgast og dafnað til heilla
fyrir æskulýð bæjarins og kom-
andi kynslóðir.
íþróttafélagsskapurinn, félagið
sem við köllum K. S.. er ekki mitt
og ekki heldur þitt, — það er ekk-
ert til sem heitir mitt eða þitt,
heldur er hann sameiginleg eign
okkar allra, — sameign iþrótta-
mannanna, og á að vera miðstöð
þess sameinaða kraftar sem vill
starfa fyrir íþróttamálin til heilla
fyrir alþjóð.
Hlutverk K.S. er aðvinnaað eflingu
íþróttanna hér í bæ.
Til þess að starfsemi félagsins
geti borið árangur, þarf að velta
svo mörgum þungum steini af hinni
grýttu og torsóttu braut, er íþrótta-
menn félagsins vilja ganga í fram-
sóknarstarfi sinu fyrir íþróttamálin
hér. Það þarf að rækta nýjan og
betri akur í hinum óunna siglfirzka
jarðvegi, þar sem nýgræðingur
iþróttalífsins, íþróttastarfsemi félags-
ins getur dafnað og borið ávöxt.
Það þarf betri og frjósamari jarð-
veg. Og þessi jarðvegur er íþrótta-
völlur, sundlaug og fimleikahús,
sem fullnægir þörf og kröfum æsku-
lýðsins og almennings í bænum í
framtíðinni. Sundlaugina og íþrótta-
völlinn verður hið opinbera að láta
byggja, en íimieikahúsið getur fél.
af eigin rammleik og með aðstoð
góðra fórnfúsra manna reist. —
Alveg eins og það er hlutverk
bindindisfélags og stúku að efla
bindindisstarfsemi í bænum, og
berjast gegn ofnautn áfengis .—
eins og það er hlutverk kirkjunn-
ar og safnaðarins að efla kristin-
döm og krisíilega siðsemi í bæn-
um, þá er það hiutverk íþrótta-
félagstns að efla íþróttalífið og
starfa fyrir íþröttamálin og hafa
með Því góð og göfgandi áhrif á
uppeldi æskulýðsins á staðnum og
siðferði hans, að auka analega og
líkamlega hreysti og viljaþrek hans
og efla aliar góöar dygðir sem
leynast í fari æskumannsins.
Hlutverk þeíta getur K. S. bezt
leyst af hendi með því, að allir
íþröttalegir kraftar sameinist
innan vébanda þess, að allir
íþróttamenn taki saman höndum,
myndi einskonar hring tengdra
handa — tryggðaband einingar-
innar — í því, að starfa fyrir í-
þróttamálin í bæ þessum og aldrei
að vikja í heiðarlegri baráttu fyrir
batnandi skilyrðum fyrir tilveru
íþróttaæsku þessa bæjar og velferð
komandi kynslóðar. Látið þennan
bræðra og systrahring tengdra
handa útvarpa mörgum straum-
bylgjum til eflingar iþróttastarfsem-
inni, þar til tilganginum með batn-
andi skilyrðum fyrir íþróttastarf-
semina er náð. —
Við viljum óska þess að K. S.-
ingar og aðrir íþróttamenn nái tak-
marki sinu í þjóðþrifastarfsemi sinni
og að þeim takist að skapa þau
skilyrði, sem viðunandi eru fyrir
íþróttastarfsemi, í hvaða menning-
arbæ, sem vera skal. — Þetta
kostar þrautseiga baráttu, en ef
við viljum og leggjum okkar kraft
fram, hver á sínu sviði, og öli
saman, þá er sigurinn unninn.
K.-S.-ingur.