Fréttablaðið - 21.02.2023, Page 1
| f r e t t a b l a d i d . i s |
FRÍTT
2 0 2 3
KYNN INGARBL
AÐALLT
ÞRIÐJUDAGUR 21. febrúar 2023
Tónlistarmaðurinn Franz Gunnarsson lýsir stíl sínum sem naumhyggju. Hann vill ekki hafa óþarfa muni í öllum rýmum heimilisins. FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Hljóðheimur frá annarri plánetu
Franz Gunnarsson tónlistarmaður leggur mikla áherslu á hreint heimili og góðan anda
fram yfir dýrar hönnunarvörur. Næstu helgi mun hann ásamt einvala liði tónlistarmanna
flytja bestu lög Radiohead á Húrra í Reykjavík og á Græna hattinum á Akureyri. 2
Hlaupið með pönnuköku.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
sandragudrun@frettabladid.is
Þau sem vilja helst hafa fleiri sæta-
brauðsdaga eins og bolludaginn,
en eru lítið spennt fyrir saltkjöti og
baunum, gleðjast eflaust við þær
fréttir að í Bretlandi er pönnu-
kökudagurinn í dag. Því ekki að
taka upp breskar hefðir, líkt og
allar þær bandarísku hefðir sem
verða sívinsælli hér á landi, og
baka pönnukökur að breskum sið í
dag? Hefðbundnar breskar pönnu-
kökur eru þunnar líkt og þær
íslensku og borðaðar með sykri og
sítrónu eða sírópi. Pönnukakan á
sér mjög langa sögu í Bretlandi og
er að finna í matreiðslubókum allt
aftur til ársins 1439. Pönnuköku-
dagurinn tengist föstunni, líkt og
sprengidagur á Íslandi. Þetta var
síðasti dagurinn sem mátti neyta
eggja og fitu áður en fastan hófst
og því tilvalið að klára birgðirnar
með því að baka pönnukökur.
Hlaupa með pönnu
Líta má á innihaldsefnin í pönnu-
kökum sem tákn fyrir mikilvæg
hugtök á föstunni. Eggin tákna
sköpun, hveitið táknar lífsins
brauð, saltið táknar heilnæmi og
mjólkin hreinleika. Sums staðar
í Bretlandi er haldið pönnuköku-
hlaup á pönnukökudaginn. Þá
hlaupa þátttakendur oft klæddir
einhverskonar búningum eða með
svuntur og halda á pönnuköku-
pönnu. Á pönnunni er pönnukaka
sem hlaupararnir snúa á pönnunni
um leið og þeir hlaupa. n
Pönnukökudagur
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
HALLDÓR | | 8 PONDUS | | 20
3 6 . T Ö L U B L A Ð | 2 3 . Á R G A N G U R |
MENNING | | 15
LÍFIÐ | | 16
ÍÞRÓTTIR | | 10
LÍFIÐ | | 18
Byssur Balta
hitta í mark
Senuþjófurinn
Zeta-Jones
Hátíð sögu og bóka
í Hólminum
Þ R I Ð J U D A G U R 2 1 . F E B R Ú A R|
Enginn þeirra er skráð-
ur í fasteignamat. Bara
lóðirnar.
Snorri Styrkársson, fjármálastjóri
Fjarðabyggðar
Vanda fær 20 milljónir á ári
STUNDUM
ER BETRA
AÐ LEIGJA
Sumarbústaðir fráfarandi
bæjarstjóra Fjarðabyggðar
og fjölskyldu hans eru ekki
skráðir og ekki hafa verið
greidd gjöld af húsunum.
Bæjarstjórinn sagði af sér í gær.
kristinnhaukur@frettabladid.is
AUSTURLAND Minnihluti sveitar-
stjórnar Fjarðabyggðar hefur óskað
eftir skýringum á fasteignamálum
Jóns Björns Hákonarsonar, fráfar-
andi bæjarstjóra. Hann og fjölskylda
hans hafa átt óleyfisfasteignir í sveit-
arfélaginu og ekki greitt af þeim fast-
eignagjöld.
Jón Björn, sem er oddviti Fram-
sóknarflokksins, óskaði eftir upp-
sögn á fundi bæjarráðs í gær og
tilkynnti ákvörðunina á samfélags-
miðlum. Hann mun einnig hætta
sem sveitarstjórnarfulltrúi. Í meiri-
hluta sitja Framsóknarflokkur og
Fjarðarlisti en Sjálfstæðisflokkur í
minnihluta.
Bæjarfulltrúar fengu erindi í síð-
ustu viku frá íbúa varðandi sumar-
bústaðalóðirnar Fönn 1 til 4 í Fann-
ardal, innarlega í Norðfirði, sem eru
í eigu Jóns Björns og fjölskyldu hans.
Gjöld hafa ekki verið greidd af hús-
unum heldur aðeins lóðunum.
„Enginn þeirra er skráður í fast-
eignamat. Bara lóðirnar,“ segir Snorri
Styrkársson, fjármálastjóri Fjarða-
byggðar.
Samkvæmt Snorra er þetta á bilinu
fimm til tíu ára saga. Sótt hafi verið
um byggingarleyfi en því hafnað,
málið hafi svo verið í deiliskipulags-
gerð í mörg ár og byggingarfulltrúi
hafi hvorki stoppað né leyft húsin.
Nú sé verið að safna þessari sögu
saman fyrir bæjarráðsfund.
„Það má túlka það þannig,“ segir
Snorri aðspurður um hvort bústað-
irnir séu óleyfisframkvæmdir.
SJÁ SÍÐU 4
Fráfarandi bæjarstjóri ekki
greitt gjöld af sumarbústaðVINNUMARKAÐUR „Ábyrgðar okkar
vegna getum við ekki leyft verk-
föllum Eflingar að taka samfélagið
úr sambandi eftir úthugsuðum leið-
um forystu Eflingar,“ segir Halldór
Benjamín Þorbergsson, formaður
Samtaka atvinnulífsins í aðsendri
grein í dag.
Þar útskýrir hann hvers vegna SA
beitir verkbanninu en viðræður í
vinnudeilu Eflingar og SA hafa engu
skilað og engin lausn er í sjónmáli.
Hefur stjórn SA samþykkt einróma
að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu
um verkbann á félagsmenn í Eflingu
sem starfa samkvæmt aðalkjara-
samningi og veitinga- og gistihúsa-
samningi SA og Eflingar.
„Við verðum að geta náð stjórn
á framkvæmd þessara verkfalla og
verkbann er það tæki sem vinnu-
löggjöfin veitir okkur og er fyrst
og fremst varnaraðgerð og síðasta
úrræði okkar.“ SJÁ SÍÐU 8
Verkbann síðasta
úrræðið hjá SA
Fjölskylda gengur eftir götum borgarinnar Hatay í gærkvöldi en jarðskjálfti sem mældist 6,4 reið yfir borgina. Hún er þegar mjög illa farin eftir fyrri skjálfta.
Samkvæmt evrópsku jarðskjálftamiðstöðunni ESMC mældist skjálftinn á um tveggja kílómetra dýpi. Skjálftans varð víða vart og samkvæmt erlendum
miðlum fannst hann frá suðurhluta tyrknesku borgarinnar Antakya, í Sýrlandi og alla leið til Egyptalands og Líbanon. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY