Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.02.2023, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 21.02.2023, Qupperneq 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Þótt Franz Gunnarsson líti á hreint heimili sem fallegt heimili segir hann það stundum erfitt verkefni enda sé hann einstæður faðir. „Fyrst og fremst reyni ég þó að hafa heimilið eins hreint og hægt er. Einnig skiptir það miklu máli að andinn sé góður þannig að gestum líði vel í ástríku rými, fremur en að það sé fullt af iittala-vösum og Aalto-húsgögnum,“ segir Franz sem býr í Árbænum í Reykjavík. Hann lýsir stíl sínum sem naum- hyggju og hann vilji ekki hafa óþarfa muni í öllum rýmum enda varla pláss hvort eð er. „Praktíkin ræður ríkjum enda er heimilið mitt líka skrifstofa og æfingaað- staða þannig að ég er ekki mikið að versla inn Baccarat- eða Georg Jensen-muni. En það mun örugg- lega breytast ef ég fer í stærra rými.“ Elskar sturtubaðið sitt Hann segist vera sæmilega hand- laginn heima fyrir og reyni að græja sjálfur það sem þarf hverju sinni. „Ég reyni að redda mér eftir fremsta megni en ég er svo rosa- lega heppinn að hafa handlaginn pabba í næstu götu við mig sem er alltaf til í að koma og bjarga stráknum sínum ef ég kem mér í ógöngur.“ Aðspurður hvað sé í mestu uppáhaldi heima hjá honum segir hann það vera sturtubaðið sitt. „Ég elska að fara í sturtu á morgnana en í bað á kvöldin þannig að hafa baðherbergi sem býður upp á bæði er svo sannarlega munaður fyrir mér.“ Það eru alltaf einhverjar hug- myndir í gangi varðandi fram- kvæmdir og fleira heima fyrir að hans sögn. „Ég er að plana að fara í að lappa upp á eldhúsinn- réttinguna, mála heimilið og svo taka baðherbergið í gegn. En fyrst ætla ég að kaupa nýjan sófa fyrir stofuna.“ Franz Gunnarsson sýnir les- endum hér nokkra fallega muni frá heimili sínu. Elskar allar plöturnar Allar helstu perlur hljómsveitar- innar Radiohead verða fluttar á tónleikum næsta föstudag á Húrra í Reykjavík og daginn eftir á Græna hattinum á Akureyri. Þetta er í annað sinn sem tónlistarmaður- inn Franz Gunnarsson og félagar hans halda slíka tónleika en þeir fyrstu voru haldnir árið 2019 og vöktu mikla lukku meðal tónleika- gesta. „Við ætlum að koma víða við og leika lög af flestum plötum sveitarinnar,“ segir Franz. „Þetta er nokkuð jafnt á milli platna en sumar plötur eins og OK Computer og The Bends fá kannski aðeins meiri ást í prógramminu. En Franz erfði þennan fallega vasa frá ömmu sinni. Hann er um leið dýr- mæt tenging við ömmu hans. Heimili Franz er fullt af kassa- og rafmagnsgítur- um og bössum. Þeir eru ekki einungis til notkunar heldur eru líka stofu djásn sem taka mest allt veggplássið. Hér má sjá nokkra af gripunum. Myndin til vinstri er útprentun á myndrænu formi lags sem fjallar um Franz. Hin er teiknuð af Hugleiki Dagssyni og sýnir Franz með gítarinn á kletti. Þennan stjaka fékk Franz í afmælisgjöf frá vini sínum fyrir mörgum árum. Persónuleg og falleg gjöf. Starri Freyr Jónsson starri @frettabladid.is við elskum allar plöturnar og ég er ekki frá því að allar eigi þær fulltrúa í dagskránni hjá okkur á föstudag. Satt að segja þá erum við enn þá að pæla í að bæta inn lögum því það eru bara svo mörg geggjuð Radiohead-lög til. Þetta er því gullið tækifæri til að upplifa lög Radiohead sem er að okkar mati ein af merkustu hljómsveitum heims í dag.“ Utan Franz skipa hljómsveitina Eyþór Ingi Gunnlaugsson sem syngur og spilar á gítar, Þorbjörn Sigurðsson sem leikur á hljóm- borð og gítar auk þess að syngja líka, Hálfdán Árnason sem spilar á bassa og syngur og Skúli Gíslason á trommur auk þess að sjá um for- ritun. Franz leikur sjálfur á gítar og syngur einnig. Krefjandi tónleikar Undirbúningur fyrir tónleikana hefur gengið vel að sögn Franz. „Það er góður gangur í þessu hjá okkur. Við hittumst aðeins um síðustu helgi til að renna yfir prógrammið og það gekk furðu vel miðað við fyrsta rennsli. Svo höfum við hist og tekið æfingar í síðustu viku til að þétta raðirnar og höldum því áfram fram að tón- leikum.“ Franz hefur komið nálægt fjölmörgum sambærilegum tón- leikum þar sem hann og sveit hans flytja lög eftir þekktar rokksveitir. „Þessir tónleikar með lögum Radiohead eru þó aðeins öðruvísi en fyrri tónleikar þar sem þessi sveit er margslungin í lagasmíðum og þeim hljóðheimi sem hún fram- leiðir. Það er einfaldlega meira krefjandi að flytja þessi lög en þá líka mun meiri ánægja að leika þau fyrir vikið.“ Stórmerkileg sveit Fyrir honum er Radiohead stór- merkileg sveit fyrir margra hluta sakir. „Sveitin mun fá stóran sess í rokksögunni og ekki bara vegna lagasmíða heldur ekki síður hvern- ig þeir gera hlutina. Til dæmis hvernig þeir kolefnisjafna fótspor hljómsveitarinnar eða hvernig þeir komu með nýjar nálganir á útgáformið eins og að leyfa fólki að ráða hvað það borgaði fyrir In Rainbows-plötuna.“ Aðspurður um uppáhalds lag og plötu með Radiohead segir hann erfitt að svara því. „Ætli ég verði ekki að segja að lagið sé Paranoid Android af plötunni OK Computer því það hefur svo mikið fram að færa. Lagið er geggjuð lagasmíð með gullfallegum söngmelódíum, er með epískan millikafla og ádeilutexta og hljóðheim frá ann- arri plánetu. Undanfarin ár hefur platan In Rainbows frá árinu 2007 plantað sér í fyrsta sætið sem besta plata þeirra að mínu mati. Hún einfaldlega snertir eitthvað innra með mér og ég tárast alltaf yfir fegurðinni í lagasmíðunum.“ Margt spennandi í vændum Fjölmargt spennandi er á dagskrá hjá Franz í ár. „Eftir að Radiohead- rokkmessan klárast fer ég strax í að undirbúa Foo Fighters-rokk- messu sem verður haldin 24. mars á Akureyri og 1. apríl í Reykjavík. Svo verður AC/DC-rokkmessa í Reykjavík 6. maí en eftir hana sný ég mér að undirbúningi stærri viðburða því Nordic Live Events, sem ég vinn hjá, stendur fyrir tónleikum með Eros Ramazzotti í Laugardalshöllinni í ágúst og einnig tónleikasýningu úr Hárinu í október svo eitthvað sé nefnt.“ n Hægt er að kaupa miða á tón- leikana á midix.is og á graeni- hatturinn.is. Þessir tónleikar með lögum Radio- head eru þó aðeins öðruvísi en fyrri tón- leikar þar sem þessi sveit er margslungin í laga- smíðum. 2 kynningarblað A L LT 21. febrúar 2023 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.