Vesturland - 25.03.1995, Blaðsíða 6
BLAÐ VESTFIRSKRA SJÁLFSTÆÐISMANNA
Ur kraðakinu
KRATAR
LOKA
SJÁLFA
SIG ÚTI
- OG HENDA
LYKLINUM
Kratar hafa íkosningabaráttunni
lagt höfuðáherslu á þá sérstöðu
sína að vilja strax ganga til samn-
inga við Evrópubandalagið - svona
eins og til að máta hvort sú flíkin
passi okkur. Til þess að forða
sjálfum sér irá öllum ffeistingum í
þeim efnum og útiloka fyrirfram
að þeir geti samið af sér auðlindina
hafaþeir lagt til að sameign þjóðar-
innar á fiskimiðunum verði stað-
fest í stjórnarskránni.
í síðustu viku var svo hér á
ferðinni heimskunnur þýskur
þjóðréttarfræðingur og sérlfæð-
ingur í lagalegunt innviðum
Evrópubandalagsins, dr. Meinhard
Hilf. Hann sagði að eignaraðild að
fiskimiðunum hlyti að verða eitt
höfuðsamningsatriðið íviðræðunt
íslands við Evrópubandalagið. Það
væri mjög fyndið frá þjóðréttar-
legu sjónarmiði að að binda
fvrirfram í stjórnarskrá, það sem
ætti að vera niðurstöður samninga-
viðræðna. Það væri því alveg ljóst
að með stjórnarskrárbindingu
þessa atriðis væri fyrirfrant lokað á
samningaviðræður. Evrópubanda-
lagið gengi ekki til samninga áþess-
um forsendum. Semsagt kratar
telja sig frábrugðna öðrum flokk-
um í þessum kosningum af því að
þeir einir vilji semja. En áður vilja
þeir tryggja að hinn aðilinn geti
ekki gengið til samninga. Út á þetta
kosningabragð fáþeir atkvæði Hall-
dórs Hermannssonar. Þáerávinn-
ingurinn upp talinn. Er hægt að
skjóta rækilegar undan sér lappir-
nar?
BURT MEÐ
HVATA!
- SEGIR ÆGIR
HAFBERG
Ægir Hafberg skrifar í Alþýðu-
blaðið 15. mars á þessa leið:
•'Alþýðuflokkurinn vill tryggja stöðu
krókaveiða og vertíðarbáta, og
jafnvel banna veiðar stórra togara
á grunnslóð, meðan verið er að
byggja upp fiskistofnana á ný.
Jafnframt teljum við nauðsynlegt
að breyta kerfinu þannig að tryggt
sé að enginn hvati sé til þess að
henda verðminni fiski á hafi úti.”
Þarna hefur undirvitundin greini-
Iega stýrt pernnastönginni hjáÆgi
Hafberg. Og við ábendinguna sjá
auðvitað allir strax í hendi sér að
þannig mundu öll kerfi fúnkera
best, að enginn Hvati sé í þeim.
Burt með Hvata!
BETRA
ÍSLAND
BIs. 6
BETRI VESTFIRÐIR
- BETfíA ÍSLAND
Ég var ekki búinn að búa lengi
á Vestfjörðum, nánar tiltekið
Patreksfirði, þegar mér varð
Ijóst hver stœrstu vandamál
þessa svœðis voru. Atvinnu- og
samgöngumál.
Svo ég taki fyrst fyrir atvinnumál þá
er og verður undirstaðan fiskveiðar og
vinnsla. Þótt á Vestfjörðum sé ægi
fagurt þá tók fólk sér ekki búsetu hér
vegna þess, heldur vegna nálægðar við
fengsæl fiskimið. Dugnaður og kapp
sjómanna og útgerðarmanna lagði
grunninn að lífvænlegu samfélagi hér
á Vestfjörðum. Menn uppskáru sem
þeir sáðu. Þótt ég sé ungur að árum
upplifði ég þá tíma er ég stundaði
sjómennsku meðfram mínu námi, að
sjómenngátufiskaðánallrahafta. Þá
varekkertkvótakerfi. Minnkandifisk-
gegnd varð þess valdandi, ásamt stærri
og öflugri fiskiskipum, að við þurftum
að takmarka þann afla sem mátti sækja
í hafið. Illu heilli varð kvótakerfið það
kerfi sem notað er til takmörkunar.
Þetta kerfi er á góðri leið með að kippa
stoðunum undan atvinnulífi á mörg-
um stöðum á Vestfjörðum. Viðnjótum
ekki þess forskots sem er nálægð við
miðin. Hver er réttur þess fólks sem
býr á Vestfjörðum og áþar sínar eignir
þegar lífsbjörgin er tekin frá því; eins
og á sér stað meðkvótasölu af svæðinu.
Égvilkallaþettaeignaupptöku. Fram-
bjóðendur Sjálfstæðisflokksins á Vest-
fjörðum hafa nú lagt frant tillögur um
aflastýringu þar sem horfið er frá hel-
stefnu kvótakerfisins. Um þessar
tillögur eigum við Vestfirðingar að
fylkja okkur sem einn maður.
Samgöngumál
Mikið hefur áunnist í samgöngu-
málum á Vestfjörðum en betur má ef
duga skal. Ég þekki best til samganga
á suðurfjörðum Vestfjarða og þar þyrfti
aðtakarækilegatilhendinni. Nýlokið
er framkvæmd á Hálfdán og má segja
að sú framkvæmd hafi margsannað
gildisitt. En meiraþarfaðgera. Fyrir
það fyrsta að laga áætlun Breiðarf-
jarðar ferjunnar Baldurs að þörfum
íbúa í V-Barðarstrandarsýslu þannig
að ferjan gangi alla daga vikunnar,
Baldur er jú okkar þjóðvegur, og að
tímaáætlun ferjunnar sé sniðin að
þörfum íbúa svæðisins.
Það er einnig mikið hagsmunamál
Vestfirðinga að norðurhluti og suður-
hluti Vestfj arða verði tengdir með heil-
sársveg. Það hefur mikla þýðingu
fyrir samnýtingu á þ jónustu og önnnur
samskipti Vestfirðinga.
Ég treysti best frantbjóðendum
Sjálfstæðisflokksins í komandi þing-
kosningum að vinna að framfara-
málum okkar Vestfirðinga. Það er
raunhæfur möguleiki að þingmenn
Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum
verði þrír eftir kosningarnar 8. aprfl
næstkomandi.
Jón B.G.Jónsson
Lœknir Patreksflrði V-Byggð
Ég treysti bestfram-
bjóðendum Sjálfstœðis-
flokksins í komandi
þingkosningum að
vinna að framfara-
málum okkar Vest-
firðinga.
FATLAÐIR Á
VESTFJÖRÐUM
segir Hildigunnur L. Högnadóttir, ísafirði, sem skipar 5. sætið
á framboðslista Sjálfstæðisflokksins
Fyrir okkur, sem höfum starfað að málefnum fatlaðra á Vestfjörðum
undanfarin ár.erþað ánægjulegt hversu vel hefur tekist til að byggja
uþþ þjónustu á þessu erfiða svœði.
Ekki má þó taka orð mín svo að
starfinu sé lokið.heldur er það í
stöðugri mótun og endurnýjun og
miðað við þarfir fatlaðra á hverjum
tíma.
Mér er það bæði ljúft og skylt að
gera nokkra grein fyrir þessum málum
og þeim breytingum sem hafa átt sér
stað undanfarið.
Fjöldi fatlaðrasem nýturþjónustu
frá Svæðisskrifstofu Vestfjarða
er ekki ýkja stór eða
rétt innan við eitt
hundrað manns,
en fyrir þetta
fólk og að-
standendur
þ e i r r a
hefur tekist
að koma á
f ó t
þ j ó n u s t u
meðstuðningi
og ráðgjöf víðar
um kjördæmið en áður hefur verið.
Vestfjörðum hefur nú verið skipt í
fjögur þjónustusvæði,sem er ánægju-
leg viðurkenning á því að landfræði-
lega er það ófært fyrir fólk að þurfa að
sækjaallaþjónustu til ísafjarðar. Þessi
þjónusta fer nú fram í Strandasýslu og
er skrifstofa staðsett á Hólmavík.Annað
svæði er Vestur-Barðastrandarsýsla
með skrifstofu á Patreksfirði og
að lokum hefur verið
opnað útibú á
Reykhólum og
annast hún
starfið í
Austur-
B a r ð a -
strandar-
s ý s 1 u .
Svæðis-
skrifstofan
á ísafirði
heldur síð-
an utan um
þetta allt saman og samræmir.
Það er alveg ljóst,að með kröftugu
starfi að málefnum og aðbúnaði
fatlaðra hefur tekist að koma í veg fyrir
brottflutning fjölda fólks.með því að
færa þjónustuna nær því.
Bræðratunga
Eins og áður sagði fer mikið starf
fram á ísafirði.enda flestir sem þar
búa. Starfsemi Bræðratungu þekkja
líka flestir, en það heimili hefur fyrir
Iöngu sannað tilverurétt sinn á þeim
tæpu tólf árum síðan það var opnað.
Tólf ár eru ekki langur tími,en ótrú-
legar breytingar hafa þó átt sér stað í
þessum efnum,bæði hvað aðbúnað
fatlaðra varðar og ekki síður í við-
horfum fólks til fatlaðra og endur-
speglast það í miklum velvilja til þessa
heimilis.
Bræðratunga,sem er vistheimili
veitir einnig ýmsa aðra þjónustu svo
sem skammtímavistun og sumar-
vistun. Einnig fer þar fram starfs-
þjálfun og hæfing fyrir fatlað fólk á
Vestfjörðum sem er eldra en 16 ára.
Fatlaðir á eigin vegum
Fyrir aðeins 10-15 árum var það
fjarlægframtíðarsýn.að fatlaðir byggju
í eigin íbúðum. En nú hefur því mark-
miðiveriðnáðogmargireinstaklingar
búa nú í eigin íbúðum,sumir með
aðstoð frá Svæðisskrifstofu en aðrir
frá sveitarfélaginu.
Vonandi kemur til þess,að sem
flestir fatlaðir geti búið við sem eðli-
legastar aðstæður eins og aðrir,enda
samrýmist það lögum um málefni
fatlaðra að nýta almenn úrræði áður
en gripið er til sértækra aðgerða.
Framtíðarsýn
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hefur
lýst því yfir að stefnt skuli að því að
flytja málefni fatlaðra yfir til sveitar-
félaganna.Fyrsta skrefið verður,að þau
reynslusveitarfélög sem þess óska taki
yfir þessi mál,en þó ekki fyrr en í
fyrsta lagi á næsta ári. Ákvörðun um
framhald verður síðan metið í ljósi
reynslunnar.
Þeirsem vel þekkja til,sjábæði kosti
oggallavið þennan flutning. Kostirnir
eru helst þeir að ákvarðanatakan færist
nær þeim sem hana varðar, en gallar-
nir einkum þeir að sveitarfélögin eru
mjög misjafnlega í stakk búin til að
ráða við verkefnið. Það hefur verið
gagnrýnt að málefni fatlaðra heyri
undir þrjú ráðuneyti,þ.e. mennta-
mála-,félagsmála-og heilbrigðisráðu-
neyti. Þá skarast og verkefni ríkis og
sveitarfélaga nokkuð og má þar nefna
húsnæðismál, ferlimál, vinnumiðlun
o.fl.Með því að færa málaflokkinn til
sveitarfélaganna yrðu þau á einni
hendi. Efogþegarafþessuverður, þá
þarf að tryggja sveitarfélögunum fjár-
magn til að taka málaflokkinn til sín
og verður fylgst grannt með þeim
málum af þeim sem gæta hagsmuna
fatlaðra,enda nauðsynlegt að menn
hafi það að leiðarljósi að tryggt sé að
enginn missi neins við tilfærsluna.
Ég vil að lokum hvetja alla, hvar
sem þeir búa í kjördæminu og teljasig
þurfa aðstoð eða ráðleggingar að hika
ekki við af hafa samband við Svæðis-
skrifstofuna eða næsta útibú hennar.