Vesturland - 02.05.1996, Qupperneq 3
VESTURLAND
BLAÐ VESTFIRSKRA SJÁLFSTÆÐISMANNA
TRYGGJUM
ÓDNI GESTSSYNI
SETU í NÝRRI
BÆJARSTJÓRN
- STURLA PÁLL STURLUSON SKRIFAR
Nú styttist óðum í kosningar í okkar
nýja, sameinaða sveitarfélagi og þarf
því hinn almenni kjósandi að fara að
gera það upp við sig, hverjum hann
ætlar greiða atkvæði sitt. Margir hafa
fyrir löngu gert upp hug sinn en aðrir
eru enn að velta fyrir sér kostum og
göllum þeirra fulltrúa sem í fram-
boði eru. Ég er einn þeirra kjósenda
sem staðið hafa á krossgötum í því
efni, hverjum ég ætti að greiða at-
kvæði mitt.
Að vandlega athuguðu máli hef ég
nú tekið afstöðu og ákveðið að kjósa
D-lista, lista sjálfstæðismanna, og
leggjaþar með mitt lóð ávogarskálina
til þess að tryggja Óðni Gestssyni setu
í nýrri bæjarstjórn.
Nú vaknar eflaust eftirfarandi
spurning hjá þeim er til þekkja: -Af
hverju tekur sveitarstjórnarmaður og
eðalkrati (væntanlega fvrrverandi
eðalkrati eftir þessi greinarskrif) upp
á því að lýsa yfir stuðningi við fram-
boð D-listans??
Fyrir því eru nokkrar ástæður og
ætla ég að skýra hér frá tveimur þeirra
í stuttu máli.
x við umbúðirnar
eða innihaldið?
í kosningum til sveitarstjórna í
fámennum sveitarfélögum eiga
kjósendur ekki eingöngu að einblína
á flokkskírteinin sín þegar gengið er
til kjörklefans. Skoða verður inni-
haldið en ekki bara umbúðirnar og
leggja síðan mat á það, hvaða
einstaklingar eru hæfastir til
stjórnunarstarfa. Gamla kjörorðið
„Eitt sinn skáti, ávallt skáti“ á ekki að
ráða því, hvar þú setur x-ið í kjör-
klefanum.
Þeirri staðreynd verður þó ekki
breytt, að hvert framboð hefur að
baki sér ákveðinn stuðningsmanna-
hóp sem tryggir því ákveðin „örugg“
sæti. Atkvæði óákveðinna og þess
hóps sem ekki er rótfastur í flokks-
pólitískri moldu munu litlu breyta
þar um. Þau munu hins vegar ráða
úrslitum um það, hverjir frambjóð-
endannaíhinum svokölluðu baráttu-
sætum munu skipa hina nýju
sameiginlegu bæjarstjórn.
Óðinn Gestsson, 6. maður á D-
lista, er einn þessara frambjóðenda.
Af mörgum ágætum frambjóð-
endum sem sitja í þessum baráttu-
sætum tel ég Óðin unt margt hæfari
en aðra til starfa í nýrri bæjarstjórn
ogtel að hann eigi fullt erindi þangað
inn. Þetta er skoðun sem ég hef
myndað mér eftir að hafa starfað
með honum að sveitarstjórnar-
málum á liðnum árum.
Við Óðinn höfum setið saman í
minnihluta í hreppsnefnd Suður-
eyrarhrepps síðasta kjörtímabil og
þekki ég því vel til starfa hans sem
sveitarstjórnarmanns.
í störfum hans hafa farið saman
festa, áræðni og víðsýni ásamt ó-
bilandi trú og löngun til þess að snúa
við þeirri óheillaþróun sem orðið
hefur í byggðamálum hér á norðan-
verðum Vestfjörðum.
Velur hag heildarinnar
Óðni er ekkert óviðkomandi er
snýr að sveitarstjórnarmálum og
hann velur hag heildarinnar fram
yfir pólitískar flokkslínur. Eitt dæmi
um það er, að þrátt fýrir setu í
minnihluta síðasta kjörtímabil
var hann m.a. kjörinn til forystu
í skólanefnd Suðureyrarhrepps,
þar sem hann hefúr unnið með
góðu fólki mikið og gott starf við
uppbyggingu skólamála á Suður-
eyri.
Þá býr Óðinn yfir dýrmætri reynslu
sem hann hefur aflað sér með setu
sinni í hreppsnefnd Suðureyrar-
hrepps. Reynslu, sern er nauðsynleg
þeim er ætla að starfa í hinni nýju
bæjarstjórn.
Eftir kosningar verða mörg mál
óljós og í lausu lofti. Ýmis vandamál
og ágreiningsatriðimunuskjótaupp
kollinum, bæði innan sveitarfélagsins
og gagnvart ríkisvaldinu. Þá mun
reynaverulega á kunnáttu, þekkingu
og reynslu sveitarstjórnarmanna, því
að lög og reglur um sveitarstjórnar-
mál eru viðamikil og flókin og lærast
ekki á einni nóttu.
Tryggjum jafnvægi byggðanna
í bæjarstjórn
Eftir kosningar verður sveitar-
félagið orðið eitt. Það breytir ekki
þeirri staðreynd, að byggðakjarnarnir
verða áfram fjórir.
Reynsla mín af sveitarstjórnar-
málum segir mér, að nauðsynlegt
verði fyrir alla þessa byggðakjarna að
eiga fulltrúa í nýrri bæjarstjórn fyrsta
kjörtímabilið, á meðan fyrstu skrefin
verða stigin.
Þetta segi ég þar sem ennþá er
töluverður hópur fólks, sem þjáist
enn af hrepparíg og fælni við sam-
eininguna. Taka verður fiillt tillit til
þessa hóps á meðan hann er að laga
sig að nýjum og breyttum aðstæðum.
Það er því deginum Ijósara, að ef
einhver byggðakjarnanna fær ekki
fulltrúa í nýju bæjarstjórnina, mun
mörgum finnast sinn hagurfvrir borð
borinn. Það mun strax skapa óá-
nægju, tortryggni ogöfund. Slíkstaða
er ekki eftirsóknarverð, né líkleg til
framdráttar fyrir okkar nýja sveitar-
félag. Það er því mjög mikilvægt að
skipting bæjarfulltrúa sé sanngjörn,
svo að jöfnuður og sátt ríki milli
byggðakjarnanna.
Óðinn Gestsson.
D-listinn er eini raunhæfi
kosturinn
í þeim kosningum sem
framundan eru er ekkert fram-
boð sem býður upp á raunhæfan
möguleika til þess að skapa
þennan jöfnuð - nemaD-listinn,
listi sjálfstæðismanna.
Ég bið Súgfirðinga að hugleiða
þetta mjög rækilega áður en í kjör-
klefannkemur - ogreyndarallaþá
er ganga að kjörborðinu þann 11.
maí næstkomandi. Það varðar hag
okkar allra, að samstaða og eining
verði innan hins nýja sveitarfélags,
svo að nienn geti snúið bökum
saman og beint spjótum sínum útá-
við.
Ágæti kjósandi. Atkvæði þitt skiptir
máli. Tryggjum fulltrúa frá öllum
byggðakjörnunum og þar með
dreifingu valdsins. Tryggjum Óðni
Gestssyni öruggt sæti í nýrri
bæjarstjórn. Það verður okkar
sameiginlega sveitarfélagi til
heilla.
Höfundur er starfsmaður Flug-
málastjórnar, býr á Suðureyri og á
sœti í hreppsnefnd Suðureyrar-
hrepps.
Bls. 3