Vesturland

Árgangur

Vesturland - 01.12.2007, Síða 8

Vesturland - 01.12.2007, Síða 8
nUnmna/ * Eg vil í nokkrum orðum minnast Einars Odds Kristjánssonar sem um árabil var burðarás í starfí Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum sem og landsins alls. Mín fyrstu kynni af Einari Oddi eru frá árun- um í kringum 1980 þegar Ieiðir okkar lágu saman í störfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Strax tókst með okkur mikil vinátta, hann hafði lengi verið virkur í flokksstarfinu og var boðinn og búinn til að gefa góð ráð og veita alla þá aðstoð sem Ieitað var eftir. • • Þórir Orn Guðmundsson skrifar: EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON Oft kom ég við á Sólbakka og kynntist þá Sigrúnu Gerðu og þeim miklu mannkostum sem hún býr yfir. Hún stjómaði heimilinu eins og Einar Oddur sagði, en allir sem til þekktu vissu hve samrýmd þau voru. Einar Oddur og Sigrún Gerða eignuðust þrjú mannvænleg börn: Brynhildi, Kristján Torfa og Björn Teit og allir fundu hve stoltur Einar Oddur var er hann minntist á þau. Ekki minkaði stolt hans er hann eignaðist afabarnið, „bamið eina“ eins og hann sagði svo oft. Margir geyma í huga sér minningu frá Hrafnseyrarhátíðinni sl. sumar er þeir sáu stoltan afa með nafna sinn. A árunum eftir 1980 sveif andi gömlu kjördæmaskipunarinnar frá 1959 enn yfir vötnum og oftar en ekki vorum við minntir á að við værum úr „vestur-sýslunni". Má vera að það hafi þjappað okkur enn betur saman og aldrei varð okkur sundurorða þó svo að í póli- tík sé oft allra veðra von. Þegar ég varð stjómarmaður í Kjördæmis- ráði Sjálfstæðisflokksins á Vest- fjörðum og seinna formaður þess, naut ég þess að eiga Einar Odd að. Þá kynntist ég enn betur hversu næmur hann var á alla þætti sam- félagsins og fljótur að setja sig inn í öll mál. Það var eins og ekkert væri eðli- legra þegar Einar Oddur árið 1995 lét í ljós áhuga á að taka sæti á lista flokksins í Vestfjarðakjördæmi að það gengi efiir. Þá hafði hann nokkrum árum áður gengt for- mennsku í Vinnumálasambandi Islands og komið að gerð, ásamt forystumönnum Verkalýðshreyf- ingarinnar samningum sem kall- aðir eru „þjóðarsáttin“ og mörkuðu endalok verðbólgu og upphaf þess hagvaxtar sem við þekkjum á íslandi í dag. Sem þingmaður Vest- fjarðakjördæmis bar hann ávallt hag allra landsmanna fyrir brjósti og kom að mörgum þjóðþrifa- málum. Hann sat sem þingmaður Vestfjarða til ársins 2003 að ný kjördæmaskipun var samþykkt á Alþingi og Norðvesturkjördæmi varð til. Einar Oddur var einstakt nátt- úrubarn sem hafði unun af að vera úti í náttúrunni, hann kunni að njóta hennar, lesa og hlusta. Stund- um sagði hann „góðar eru Guðs gjafimar“ og víst er að hann naut með lítilæti sköpunarverks hins hæsta höfuðsmiðs himins og jarðar. Oft kemur upp í huga minn þegar Einar Oddur ákvað bjóða sig fram í nýju sameinuðu kjördæmi, Norðvesturkjördæmi og taka þátt í prófkjöri flokksins. Síminn hjá mér hringir f byrjun júní og ég heyrði Einar Odd segja eins og svo oft „sæll ljúfur, ertu heima, ég er að hugsa um að heimsækja þig.“ Skömmu síðar kemur Einar Oddur og ég býð honum kaffi en hann segist frekar vilja fara í bíltúr. Hann hafi séð tildrumar á (Holts)vöð- unum og svo hafi rauðbrystingur- inn verið í fjörunni inni í Dýra- firði. Hann vilji sjá hvaða fleiri fuglar séu komnir. Við ökum út fyrir Þingeyri að Söndum þar sem Sanda Bárður bjó, sá sem steig upp úr búi sínu og bauð Þórði Kakala að taka við búforræði þar því slíkum höfðingja sæmdi stór- býli. I ferð okkar sjáum við jaðrak- an, þúftittling, stokkendur og fleiri fugla. Jafnframt hvernig jarðar- gróðurinn er að kvikna og búsmala á beit. Þegar haldið er heim á leið segir Einar Oddur: „Ég hef ákveðið að taka þátt í prófkjörinu og gefa kost á mér í eitt af efstu sætunum.“ Þekkjandi Einar Odd og svip hans þá brosti ég og sagði: „Það verður erfitt.“ „Ég veit það“, sagði hann á sinn einstaka hátt „og ég er búinn að sjá út hvernig ég fer að. I pólitík á enginn neitt ákveðið sæti, ég er ekki að fara fram á móti einum né neinum, ég fer fram á mínum eigin forsendum." í allri kosningabar- áttunni vann hann samkvæmt því sem hann lagði upp með og upp- skar eftir því. En, eins og öllum er kunnugt um hlaut hann glæsilega bindandi kosningu í þriðja sæti listans. Þá var hin baráttan eftir, sjálfar Alþingiskosningarnar. Þar komu mannkostirEinars Odds enn betur ljós, hans einstaki hæfileiki til að rökræða erfið mál og útskýra á skiljanlegan hátt meiningu sína og fylgja eftir sannfæringu sinni. Þannig fékk hann persónufylgi sem náði langt út fyrir raðir Sjálfstæðisflokksins. í Alþingis- kosningunum sl. vor var Einar Oddur enn á ný í baráttunni um þingsæti. Nú var baráttan erfiðari þar sem eitt þingsæti hafði verið fært frá kjördæminu og kosið um átta þingsæti í stað níu áður. í kosningabaráttunni kom berlega í ljós hve persónufylgi Einars Odds var mikið og hve fylginn sér hann var, aftur hlaut hann glæsilega kosningu til Alþingis. Sem þingmaður kom Einar Oddur að mörgum málum sem til framfara horfðu fyrir Vestfirði. Arið 1995 stóðu nokkrir framsýnir menn í Dýrafirði og Onundarfirði undir fory stu Sæmundar Þorvalds- sonar fyrir stofnun umhverfissam- taka um betri búsetu á Vestijörðum. Verkefnið nefndu þeir „Skjól- skógar á Vestfjörðum“. Til að vinna verkefninu brautargengi snéru þeir sér til Einars Odds og fengu hann til að greiða fyrir samskiptum við stofnanir og stjómvöld. A þessum árum var farið að undirbúa lands- hlutabundin skógræktarverkefni á lögbýlum. Skjólskógaverkefnið „eldra“ hafði gengið mjög vel og var fengið til að leiða þá vinnu á Vestfjörðum. Stofnað var sérstakt fyrirtæki um landshlutaskógrækt- ina sem fékk nafnið Skjólskógar á Vestfjörðum. Einar Oddur tók að sér að vera formaður þess og nutu öll skógræktarverkefni landsins góðs af þ ví. Þarna var Einar Oddur á heimavelli, ræktunarmaður af Guðs náð. Hafði hann lengi stund- að skógrækt á Sólbakka, vissi 26.12. 1942 hvaða tegundum var best að planta út allt eftir jarðavegi og umhverfi. Þá tengdist formennskan í Skjól- skógum líka öðru áhugamáli Einars Odds, að efla hinar dreifðu byggð- ir Vestfjarða. Ekkert mannlegt var Einari Oddi óviðkomandi. Hann varmikill list- unnandi og naut þess að horfa á leiksýningar og hlýða á hvers konar tónlist og söng. Hann vildi líka að aðrir fengju að njóta listar- innar með sér. Oft hafði hann veg og vanda af því að fá listafólk til að koma vestur til Flateyrar svo íbúar staðarins gætu notið þess að hlýða á þá listamenn sem fremst stóðu hverju sinni. Hann hafði yndi af lestri, mundi mjög vel það sem hann las og gat löngu seinna farið rétt með heilu setningarnar eftir að hafa lesið texta sem honum fannst áhugaverður. Hann hafði mikinn áhuga á sögu Frakklands og sérstaklega á ævi Napoleons Bonaparte, ég veit að hann kunni ævisögu hans utanbókar. Þá lagði hann sig líka mikið eftir þjóð- legum fróðleik og sérstaklega um lífsbaráttu á Vestfjörðum fyrr á öldum. Hann vissi við hvaða kjör forfeðurnir höfðu búið og vildi leggja sitt af mörkum til að næsta kynslóð hefði það betra en sú gengna. Aldrei heyrðu menn Einar Odd tala illa um nokkurn mann þó svo að hann fengi kannski misjafnar kveðjur. Ef hann hafði verið að tala eða rökræða við fólk sem hann fékk ekki til að hlusta á sig átti hann til að segja: „Ég skil bara ekki manneskjuna, ég gat ekkert tjónk- að við hana“ og svo var það ekki rætt meira. Þannig varEinar Oddur, 14.07. 2007 hann vildi fá sem flesta til sam- starfs með sér, en ef það gekk ekki þá var hann ekki að erfa það. En svo kemur að efsta degi, bjartur og fagur rennur laugar- dagurinn 14. júlí upp. Veðrið var eins dásamlegt og best getur orðið á Vestfjörðum, sól og logn. Oft hafði Einar Oddur haft á orði að hann ætti eftir að fara á Kaldbak. Hann vissi að til stæði að fara og fannst að nú væri komið að sér að ganga á fjallið. Á leiðinni frá Sól- bakka rifjar hann upp úr Gíslasögu Súrssonarorð Vésteins um að „nú falli vötn öll til Dýrafjarðar“ og útskýrir fyrir Sigrúnu Gerðu og Brynhildi dóttur sinni merkingu orðanna. Á Þingeyri er gert stutt stans, tré og plöntur skoðaðar og rætt um gróður jarðar. Þaðan er haldið áleiðis að Kaldbak. Á leið- inni er Einar Oddur að lesa fyrir ferðafélagana úr grein í tímariti, frásögn um Napoleon, og setur hana í samhengi við ævi hans tii fróðleiks fyrir ferðafélagana. Þegar komið er fram í botn Kirkjubóls- dals em bflamir yfirgefnir og haldið gangandi af stað áleiðis á Kaldbak. Ekki varð ferðin eins löng og til stóð, því eftir stutta göngu hneig Einar Oddur niður. Ég vil fyrir hönd sjálfstæðis- fólks á Vestfjörðum þakka Einari Oddi mikil og fórnfús störf fyrir samfélagið hér fyrir vestan sem og land og þjóð. Ljóst er að hans er og verður sárt saknað í þeirri miklu vinnu sem framundan er til varnar hinum dreifðu byggðum Vestfjarða. Minning um góðan mann og traustan vin mun ávallt lifa í hjörtum okkar.

x

Vesturland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.